Fréttablaðið - 18.03.2017, Qupperneq 10
Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is
Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið: hildur@nmi.is
Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
Ný verkefni í ferðamálum á sviði þjónustu, upplifunar og
afþreyingar og eiga að stuðla að því að dreifa ferðamönnum
jafnar um landið
Sérstök áhersla er lögð á
Umsóknarfrestur til kl. 12:00 á hádegi þann 18. apríl 2017
Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum
sem hlotið gætu frekari ármögnun sjóða og árfesta
Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða
frumkvöðla og fyrirtækja
Markmið verkefnisins:
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til
atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til
nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða
starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Á markað með
snjallt nýsköpunarverkefni?
Átak til atvinnusköpunar
F U N D A R S TA Ð U R :
H Ó T E L R E Y K J AV Í K N AT U R A
D A G S E T N I N G :
2 2 . M A R S 2 0 1 7
K Y N N I N G A R F U N D U R V E G N A
Ú T B O Ð S Á A Ð S T Ö Ð U H Ó P B I F R E I Ð A
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
Isavia boðar til kynningarfundar vegna útboðs á aðstöðu hópbifreiða
á Keflavíkurflugvelli. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 22. mars
kl. 14:00 á Hótel Reykjavík Natura. Markmið fundarins er að kynna útboðs-
ferlið og svara spurningum þeirra sem hafa áhuga á að taka þátt í útboðinu.
Útboðið sjálft hefst innan nokkurra vikna og verður auglýst sérstaklega.
Við hvetjum áhugasama aðila til að mæta á fundinn og kynna sér
væntanlegt útboðsferli. Nánari upplýsingar má fá með tölvupósti
á netfangið vidskipti@isavia.is.
1
7
-
0
9
0
1
-
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
Í
A
skák GAMMA Reykjavíkurskák-
mótið 2017 er hið sterkasta í rúm-
lega hálfrar aldar sögu mótsins
og gæti ennfremur orðið það fjöl-
mennasta. Þegar er 251 skákmaður
skráður til leiks frá 46 löndum. Þrír
ofurstórmeistarar tefla, nokkrar af
sterkustu skákkonum heims, auk
undrabarna og goðsagna úr sögu
mótsins.
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands, segir að fjölda-
metið frá því árið 2015 sé í verulegri
hættu. Eins og áður sagði er 251
skákmaður skráður til leiks. Þar af
eru 69 Íslendingar. Fjölmennastir
gestanna eru Indverjar sem eru 29
talsins. Í næstu sætum eru Banda-
ríkin en þaðan koma tuttugu skák-
menn, þrettán frá Kanada en einn-
ig mæta stórir hópar Hollendinga,
Svía, Englendinga og Þjóðverja.
„Mótið, sem stendur dagana
19. til 26. apríl, hefur fengið mikla
athygli erlendis og var nýlega kosið
næstbesta opna skákmótið af Sam-
tökum atvinnuskákmanna en mörg
hundruð alþjóðleg skákmót eru
haldin ár hvert. Reykjavíkurskák-
mótið hefur á þessari rúmu hálfu
öld unnið sér orðspor sem einstakt
skákmót sem íslensk skákhreyfing
er ákaflega stolt af,“ segir Gunnar.
Meðal skráðra keppenda er 31
stórmeistari sem er umtalsverð
fjölgun frá síðustu árum og enn
á eftir að bætast eitthvað í þann
hóp, ef að líkum lætur. Stigahæsti
keppandi mótsins er Anish Giri,
einn allra sterkasti skákmaður
heims, sem hefur 2.769 skákstig.
Hann er stigahæsti skákmaður í
sögu Reykjavíkurskákmótanna.
Tveir aðrir keppendur hafa meira
en 2.700 skákstig, sem oft er notað
til að greina ofurstórmeistara frá
þó mjög sterkum kollegum þeirra.
Það er Rússinn Dmitry Andreikin og
Georgíumaðurinn Baadur Jobava,
sem þykir einn frumlegasti og
skemmtilegasti skákmaður heims.
„Meðal keppenda nú er Rames-
hbabu Praggnanandhaa, sem er
nafn sem er rétt er að leggja á minn-
ið, ef það er á annað borð hægt. Sá
er aðeins 11 ára og þykir líklegur
til að slá met Sergey Karjakin sem
yngsti stórmeistari allra tíma,“ segir
Gunnar sem bætir við að á mótinu
megi einnig finna sterkustu skák-
konur heims. Þeirra á meðal er hin
indverska Hariku Dronavalli sem
er á topp 10 í heiminum og landa
hennar Tanja Sadchev sem sló eftir-
minnilega í gegn á Reykjavíkurskák-
mótinu í fyrra. svavar@frettabladid.is
Undrabörn og
ofurmeistarar
Nokkrar af sterkustu skákkonum heims og undra-
börn mæta á Reykjavíkurskákmótið. Þegar eru
keppendur frá 46 löndum búnir að melda sig.
Reykjavíkurskák-
mótið hefur á þessari
rúmu hálfu öld unnið sér
orðspor sem einstakt skák-
mót sem íslensk skákhreyfing
er ákaflega
stolt af.
Gunnar Björnsson,
forseti Skáksam-
bands Íslands
Vatnsskortur í Perú
Íbúar í úthverfi Líma, höfuðborgar Perú, safna vatni úr gosbrunni.
Óvenju mikil rigning hefur valdið flóðum á svæðinu. Það hefur orðið
til þess að flest vatnsveitukerfi borgarinnar hafa fallið saman. Skortur
hefur því myndast á drykkjarvatni í borginni. Nordicphotos/AFp
1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
7
8
-C
1
F
C
1
C
7
8
-C
0
C
0
1
C
7
8
-B
F
8
4
1
C
7
8
-B
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K