Fréttablaðið - 18.03.2017, Síða 12
Fjällräven Fünas 35
19.800 kr.
Fjällräven Kånken No. 2
19.800 kr.
Fjällräven Kånken
12.800 kr.
Patagonia Black Hole 60L
16.800 kr.
Mount Hekla Bjarmi
19.800 kr.
Hanwag Tatra GTX
36.800 kr.
Patagonia Black Hole Cube
4.800 kr.
Patagonia Bolur
4.900 kr.
Fjällräven Abisko Svefnpoki
23.800 kr.
Hestra Alpine Leather
12.800 kr.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 12
Patagonia Torrentshell
16.800 kr.
Fjällräven Keb
29.800 kr.
fiskeldi Hafrannsóknastofnun
telur að aðstæður í Ísafjarðardjúpi
leyfi ekki eldi á meira en 30.000
tonnum af fiski á hverjum tíma.
Þetta er undir því magni sem fisk-
eldismenn hafa talið að mögulegt
sé að ala í Djúpinu. Ef fyrirhuguð
áform um eldi, sem þegar hafa verið
kynnt, ná fram að ganga slagar það
upp í það magn sem þar er mögu-
legt að framleiða eða um 25.000
tonn á ári.
Hafrannsóknastofnun birti á
dögunum burðarþolsmat sitt, en
með breytingu á lögum um fiskeldi
árið 2014 voru sett inn ákvæði um
að rekstrarleyfi skuli fylgja burðar-
þolsmat, sem framkvæmt sé af Haf-
rannsóknastofnun. Í lögunum er
mat á burðarþoli svæða skilgreint
sem þol þeirra til að taka á móti
auknu lífrænu álagi, án þess að það
hafi óæskileg áhrif á lífríkið. Hluti
burðarþolsmats er að meta óæskileg
staðbundin áhrif af eldisstarfsemi.
Í greinargerð Hafró segir að
vegna aðstæðna í Ísafjarðardjúpi,
og varúðarnálgunar varðandi raun-
veruleg áhrif áætlaðs eldis á vatns-
gæði og botndýralíf, sé gert ráð fyrir
að heildarlífmassi í firðinum verði
aldrei meiri en 30 þúsund tonn og
að vöktun á áhrifum eldisins fari
fram. „Slík vöktun yrði forsenda
fyrir hugsanlegu endurmati á burð-
arþoli fjarðarins, til hækkunar eða
lækkunar, sem byggt yrði á raun-
gögnum,“ segir í greinargerð Hafró.
Höskuldur Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
fiskeldisstöðva (LF), segir það ekk-
ert launungarmál að Ísafjarðardjúp
hafi verið talið bera meiri eldisstarf-
semi en burðarþolsmat Hafró gerir
ráð fyrir.
„En sérþekkingin liggur hjá Hafró
og því mun vöktun eldissvæðanna,
eftir að framleiðsla er hafin, leiða
í ljós hvort rými verði fyrir endur-
skoðað mat í framtíðinni. Allt snýst
þetta jú um að reyna að hámarka
nýtingu eldissvæðanna án þess
að valda neikvæðum varanlegum
áhrifum á umhverfið. Þar fer hagur
okkar eldismanna og umhverfisins
saman því ef viðkomandi svæði ber
ekki áætlað framleiðslumagn þá
viljum við ekki hefja þar starfsemi,“
segir Höskuldur í skriflegu svari til
Fréttablaðsins.
Áform þriggja fyrirtækja um eldi
í Ísafjarðardjúpi hafa verið kynnt.
Arnarlax áformar 10.000 tonna
eldisframleiðslu í Ísafjarðardjúpi
sem stjórnað verður frá Bolungar-
vík. Eins að fyrirtækið Háafell, sem
er dótturfyrirtæki Hraðfrystihússins
Gunnvarar í Hnífsdal, hafi áætlanir
sem gera ráð fyrir 7.000 tonna fram-
leiðslu á laxi í Ísafjarðardjúpi og
verður vinnsla fyrirtækisins á Ísa-
firði. Þá áformar fyrirtækið Arctic
Sea Farm eldi af svipaðri stærð og
Háafell. svavar@frettabladid.is
Telja Djúpið bera 30.000 tonna eldi
Áform fiskeldisfyrirtækja, sem þegar hafa verið kynnt, slaga nú þegar upp í það magn sem Hafrannsóknastofnun telur hægt að leyfa –
eða 25.000 tonn. Burðarþolsmat Hafró leyfir 30.000 tonn. Eldismenn segja ekkert athugavert við niðurstöðu Hafró, þar sé sérþekkingin.
Mikil uppbygging er á Vestfjörðum vegna fiskeldis, en í skugga harðrar gagnrýni úr ýmsum áttum. Fréttablaðið/Pjetur
Allt snýst þetta jú um að reyna að hámarka nýtingu
eldissvæðanna án þess að valda neikvæðum varan-
legum áhrifum á umhverfið.
Höskuldur Steinarsson, framkvæmdastjóri Landssam-
bands fiskeldisstöðva
25
þúsund tonn eru áform
þriggja fyrirtækja um eldi í
Ísafjarðardjúpi.
1 8 . m a r s 2 0 1 7 l a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
7
8
-A
E
3
C
1
C
7
8
-A
D
0
0
1
C
7
8
-A
B
C
4
1
C
7
8
-A
A
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K