Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 16

Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 16
Úr stefnuskrá Norrænu mótstöðu- hreyfingarinnar l Með öllum ráðum vinna að því að taka völdin af alþjóð- legum Síonistum sem með valdi eða fjármunum stjórna stórum hluta þessa heims. l Skapa sjálfbært norrænt sam- félag með sameiginlegum her, sameiginlegum gjaldmiðli og miðstýrðum banka, einnig sameiginlegum landslögum. Þátttöku í Evrópusambandinu og öðrum óvinveittum sam- tökum verður þegar í stað hætt. l Norrænir fjölmiðlar skulu vera í eigu ríkisborgara hins nýja Norðurs. Innlendir sem og erlendir fjölmiðlar sem vinna gegn norrænu fólki verða bannaðir. l Skapa samfélag þjóðernis- félagshyggjumanna þar sem skipting auðlinda verður gerð með alla ríkisborgara í huga – hina sterku sem og hina veiku. l Taka upp herskyldu og stækka herinn. Allir sem hafa lokið norrænni herskyldu munu halda vopnum sínum og búnaði. Hver borgari á að vera tilbúinn að hjálpa til við að verja þjóðina gegn innlendum sem og erlendum óvinum. l Skapa ríki byggt á réttlæti og heiðarleika þar sem allir borg- arar eru jafnir fyrir lögum. VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS Aðalfundur VR verður haldinn þriðjudaginn 28. mars kl. 19.30 á Hilton Reykjavík Nordica. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, lagabreytingar og ákvörðun um innborgun í VR varasjóð. Dagskrá og frekari upplýsingar er að finna á vr.is. Við hvetjum félagsmenn til að mæta. Aðalfundur samfélag Forstöðumenn Norrænu mótstöðuhreyfingarinnar, Íslands- arms hreyfingar á Norðurlöndum sem kennd hefur verið við nýnasisma, segja í nafnlausu skriflegu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins að þeir séu ánægðir með vöxt hreyfingarinnar undanfarið ár. Þó vildu þeir ekki svara því hversu margir væru í hreyf- ingunni eða hversu mikið meðlimum hefur fjölgað. Fréttablaðið fjallaði um hreyfing- una í ágúst á síðasta ári. Var þá send fyrirspurn á netfang hreyfingarinnar sem finna má á heimasíðu hennar og barst sams konar nafnlaust svar. Þá fengust þau svör að hreyfingin væri vaxandi og myndi vaxa enn meira. Ekki fékkst heldur svar við spurn- ingum um fjölda meðlima. „Íslendingar eru orðnir vanir því að kjósa týpíska smáborgaraflokka sem að styðjast við tölur. Við erum ekki að leita að tölum, við erum að leita að baráttumönnum. Við erum ekki að leita að fólki sem segist kjósa okkur í næstu kosningum. Við viljum fólk sem er tilbúið í götuaðgerðir,“ segir í svarinu. Þar er vísað til þess að setja upp veggspjöld og dreifa dreifibréfum með upplýsingum um hreyfinguna. Enn fremur segir að margir hafi hitt meðlimi hreyfingarinnar en fáir séu tilbúnir til að „berjast í þessu ósýni- lega stríði sem kerfið býður okkur upp í“. Þeir aðilar mæti þó kurteisi og sé ekki bolað í burtu heldur komið í skilning um að þeir eigi ekki heima í hreyfingunni. „Ef einhver vill vera virkur á fjög- urra ára fresti þegar kosningar eru þá eru nægir flokkar í landinu. Það jákvæða við hreyfinguna okkar, síðan við urðum opinberlega virkir á landinu, er að þar er ungt fólk sem hefur fengið nóg og er reitt ástandinu í landinu okkar,“ segir í svarinu. Það sé hreyfingunni mikil hvatning að ungt fólk með hátt menntunarstig sé áhugasamt. Þá sé fólk innan hreyfingarinnar sem vill ekki koma fram undir nafni eða sýna sig í störfum fyrir hana, til Íslandsarmur nýnasista ætlar í aðgerðir Íslandsarmur norrænnar hreyfingar sem kennd hefur verið við nýnasisma kveðst ánægður með vöxt hreyfingarinnar undanfarið ár. Markmiðið sé ekki þingframboð heldur að upplýsa fólk um það sem hreyfingin kallar fjölmenningargildruna. Frá kröfugöngu sænska arms Norrænu mótstöðuhreyfingarinnar í Stokkhólmi árið 2007. Mynd/Peter Isotalo dæmis vegna atvinnu eða stöðu innan ríkisins. Það styðji hreyfinguna með öðrum hætti. „Í heild þá erum við ánægðir með vöxt okkar vegna þess að fólkið sem við skráum nær yfir okkar staðla.“ Líkt og í ágúst í fyrra hyggur hreyf- ingin ekki á framboð. Markmiðið sé ekki að sitja á þingi heldur að breyta hugarfari fólks. Í svarinu segir að kerf- ið hafi brugðist og á meðan fólk geri sér ekki grein fyrir því sé ekki hægt að biðja fólk um að kjósa hreyfinguna. „[Fólk verður] að gera sér grein fyrir því að það sé að  hverfa hægt og við erum nær því að verða eins og Norður og Mið-Evrópulönd með glæpatíðnina, nauðganir, morð og svo framvegis,“ segir í svarinu. Enn fremur segir að ef hreyfingin hefði fjármagn til að reka kosningabaráttu yrði það frekar notað í dreifingu dreifibréfa, veggspjalda og þess háttar til þess að „fá fólk til að átta sig á fjölmenningar- gildrunni“. Líkt og Fréttablaðið greindi frá í ágúst kennir Norræna mótstöðu- hreyfingin sig við þjóðernisfélags- hyggju. Vilji hreyfingarinnar sé meðal annars að stöðva innflutning á fólki til landsins og stuðla að brott- flutningi meirihluta fólks sem ekki er af norðurevrópskum uppruna. Skapa eigi norrænt samfélag með sameigin- legum her og herskyldu. thorgnyr@frettabladid.is Við erum ekki að leita að fólki sem segist kjósa okkur í næstu kosningum. Við viljum fólk sem er tilbúið í götuaðgerðir. Úr svari Norrænu mótstöðuhreyf- ingarinnar til Fréttablaðsins. HEIlBRIgÐIsmÁl Innan við 1% þeirra sem eru skráðir með heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu hafa nýtt sér þann möguleika sem gafst um ára- mótin að skipta um heilsugæslu- stöð. Þessi tala er þó líklega ekki marktæk, að sögn Ingveldar Ing- varsdóttur, deildarstjóra hjá Sjúkra- tryggingum Íslands. „Í byrjun janúar var verið að leiðrétta skráningar. Verið var að ljúka við skráningu þeirra sem ekki höfðu heilsugæslustöð og einnig var nokkuð um að einstaklingar væru skráðir á tveimur stöðum, bæði hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni og á heilsugæslustöð. Það er ekki heimilt,“ greinir Ingveldur frá. Samkvæmt nýja fjármögnunar- kerfinu sem tók gildi um áramótin eiga allir sjúkratryggðir að vera skráðir á heilsugæslustöð eða hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni. Í lok nóvember í fyrra voru rúmlega 21 þúsund manns á höfuðborgar- svæðinu ekki með heilsugæslu- stöð en í byrjun þessa árs voru allir sjúkratryggðir íbúar á höfuð- borgarsvæðinu, 205 þúsund manns, skráðir. Ef einstaklingur ákveður að færa sig á milli stöðva flyst fjármagn sem greitt er með viðkomandi yfir á nýju stöðina. „Með þessu myndast hvati hjá heilsugæslustöðvum til að bjóða upp á betri þjónustu við skjólstæð- inga sína,“ tekur Ingveldur fram. Innt eftir því hvort hægt sé að merkja hvort einhverjar heilsu- gæslustöðvar séu vinsælli en aðrar segir Ingveldur að ekki sé hægt að sjá neitt slíkt út úr þeim gögnum sem Sjúkratryggingar hafi. „Það er auðvitað meiri breyting hjá stærri stöðvunum sem stýrist líklega mest af því að þær eru staðsettar í fjölmennum hverfum. Hlutfallsleg breyting á skráningu virðist vera svipuð milli stöðva.“ Nú eru 17 heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og 12 sjálf- stætt starfandi heimilislæknar. Tvær nýjar stöðvar verða opnaðar í sumar. – ibs Fáir hafa nýtt réttinn til að skipta um heilsugæslustöð Einnig var nokkuð um að einstaklingar væru skráðir á tveimur stöðum, bæði hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni og á heilsugæslustöð. Það er ekki heimilt. Ingveldur Ingvarsdóttir, deildarstjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands 1 8 . m a R s 2 0 1 7 l a U g a R D a g U R16 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a Ð I Ð 1 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 7 8 -8 6 B C 1 C 7 8 -8 5 8 0 1 C 7 8 -8 4 4 4 1 C 7 8 -8 3 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.