Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 22
mma Blaðamaður bíður rólegur
eftir að formlegri dagskrá á fjöl-
miðladegi ljúki til að spjalla við
Gunnar Nelson sem er búinn að
sitja á barstól og svara spurningum
fréttamanna í 45 mínútur. Gunnar
er í gráum joggingbuxum, blárri
þægilegri peysu, strigaskóm og með
úfið hár eins og hann hafi verið að
stíga fram úr rúminu. Fjölmiðla-
hluti bardagalífsins hefur aldrei
verið í miklu uppáhaldi hjá honum
en svona reynslubolti lætur þetta
ekkert á sig fá.
„Þetta er alltaf voðalega svipað
og tiltölulega auðvelt,“ segir Gunn-
ar sallarólegur. „Þetta er líklega
síðasta viðtalið mitt í dag og við
byrjuðum nú bara upp úr hádegi.
Ég get ekki kvartað.“
Mótherji hans í kvöld, Alan
Jouban, er fyrirsæta og mætti eins
og klipptur út úr tískutímariti. Því
var skondin sjón að sjá þá saman
á pallinum – tveir ólíkir menn í
ólíkum fötum.
„Hann er náttúrlega Versace-
módel – helvíti huggulegur. Ég veit
ekki hvort maður hefur það í sér að
vera að slá hann of mikið í andlitið
og eyðileggja eitthvað meira fyrir
honum en bara UFC-ferilinn. Það
er kannski óþarfi,“ segir Gunnar
skælbrosandi.
Með sinn eigin stíl
Gunnar hefur oftast hugsað nán-
ast eingöngu um sjálfan sig þegar
kemur að undirbúningi fyrir bar-
daga. Hann hefur svo oft lent í
því að fá nýjan mótherja nánast á
síðustu stundu að það hefur engu
skilað að undirbúa sig sérstaklega
fyrir einhvern ákveðinn mann.
Hann er þó að undirbúa sig vel fyrir
spörkin hans Joubans en segir ann-
ars allt með hefðbundnu sniði.
„Þetta er allt í rauninni eins og
við höfum alltaf haft þetta. Maður
horfir á nokkra bardaga með
mótherjanum og reynir aðeins
að láta líkja eftir vopnum hans
þegar maður er að æfa. Við erum
samt ekki að búa til leikáætlun í
kringum það sem hinn maðurinn
gerir. Það höfum við aldrei gert.
Þetta er svipað og og alltaf. Maður
horfir aðeins á hreyfingarnar hans
og virkjar aðeins viðbrögðin við
þeim,“ segir Gunnar.
Jouban vill halda bardaganum
standandi því hann er góður að
slá og sparka – sérstaklega sparka.
Gunnar er hvergi banginn við að
standa á móti honum eða hverjum
sem er því hann er alltaf að bæta sig
standandi. Staðreyndin er einfald-
lega sú að Gunnar er nákvæmastur
allra í veltivigtinni þegar kemur að
því að slá frá sér og landa höggum.
„Ég er með minn eigin stíl og ég
held að fólk hafi bara ekki
séð neitt sérstaklega mikið
af honum. Hann er alltaf
að þróast. Ég fékk aðeins
að nota hann í síðasta bar-
daga sem gaf mér líka til-
finningu fyrir því hvernig
hann virkar í bardaga. Það
var gott því það er öðruvísi
að gera þetta á æfingum
heldur en í bardaga,“
segir Gunnar.
Sér beltið í hillingum
Einn helsti löstur Alans
Jouban í búrinu er hvað
hann byrjar oft hægt og
það ætlar Gunnar að
nýta sér. „Mér finnst
það líklegt. Ég fer yfir-
leitt inn með sterka
byrjunar árás. Mér
finnst það skipta máli
og það er líka minn
stíll. Ég reyni að klára
b a r d a g a n a m í n a
þegar ég sé opnanir.
Þær eru mjög víða
og svo býr maður
sjálfur til opnanir.
Ég á sennilega eftir
að byrja nokkuð
sterkt,“ segir hann.
John Kavanagh,
þjálfari Gunnars,
sagði í viðtali við
íþróttadeild að hann sjái
Gunnar fá titilbardaga í lok árs
ef hann hefur betur gegn Jouban og
fá svo stóran bardaga í sumar sem
hann klári með sigri. Gunnar er
ekkert að hlaupa fram úr sér en er
að hugsa svipaða hluti.
„Ég er ekkert að fara að hætta
núna. Ég er að vinna mig upp enn
þá. Svona er þetta ferðalag. Ég horfi
ekkert fram hjá Alan en ég ætla að
reyna að ná tveimur bardögum
til viðbótar á árinu. Að sjálfsögðu
mun ég reyna að vinna þá og þá
gæti ég vel trúað að maður
gæti barist um titilinn á
næsta ári,“ segir Gunnar
Nelson.
Svona er
þetta ferðalag
Gunnar Nelson telur að hann gæti fengið titilbar
daga á næsta ári ef allt gengur vel. Hann snýr
aftur í búrið eftir tíu mánaða fjarveru í kvöld er
hann mætir Bandaríkjamanninum Alan Jou
ban. Sá kappi er sýnd veiði en ekki gefin.
Um helgina
Stöð 2 Sport:
L 12.20 West Brom - Arsenal Sport
L 14.50 Stoke - Chelsea Sport 2
L 15.15 Bilbao-Real Mad. Sport 3
L 15.50 ÍR - Stjarnan Sport 2
L 16.20 Keflavík - Valur Sport 4
L 16.30 Arnold Palmer Golfstöðin
L 17.20 B’mouth - Swansea Sport
L 17.25 Leeds - Brighton Sport 3
L 21.00 UFC: Gunni Nelson Sport
L 23.00 Bank of Hope Golfstöðin
L 01.00 Box: Golovkin /Jacobs Sp.
S 11.50 M´boro - Man. Utd. Sport
S 14.00 Tottenh. - S+hamton Sport
S 16.30 Man. City - Liverpool Sport
S 16.30 Gladbach - Bayern Sport 2
S 16.30 Arnold Palmer Golfstöðin
S 18.05 Valur - Víkingur Ó. Sport 3
S 18.30 Keflavík - Tindast. Sport
S 19.40 Barcelona-Valencia Sport 2
S 21.00 Körfuboltakvöld Sport
S 23.00 Bank of Hope Golfstöðin
Frumsýningar á leikjum:
L 18.30 W. Ham-Leicester Sport 4
L 19.30 C. Palace - Watford Sport 4
L 19.50 Sunderl. - Burnley Sport 2
L 20.15 Everton - Hull Sport 4
Olís-deild karla:
L 15.00 Fram - Valur Safamýri
S 16.00 Haukar - Akureyri Ásvellir
L 15.00 Fram - Valur Safamýri
Domino’s-deild karla 8 liða úrslit:
L 16.00 ÍR - Stjarnan Seljaskóli
L 16.00 Þór Ak. - KR Höllin, Ak.
S 19.15 Keflavík - Tindast. Keflavík
S 19.15 Þór Þorl. - Grind. Þorláksh.
Domino’s-deild kvenna:
L 16.30 Keflavík - Valur Keflavík
L 16.30 Grindav. - Snæfell Grindav.
L 16.30 Skallagr.- Njarðv. Borgarn.
S 19.15 Haukar - Stjarnan Ásvellir
Í London
Tómas Þór Þórðarson
tomas@365.is
Ég er með minn
eigin stíl og ég held
að fólk hafi bara ekki séð
neitt sérstaklega mikið af
honum.
Gunnar Nelson
9.
Þetta verður níundi UFC-
bardagi Gunnars Nelson
á ferlinum en hann hefur
hingað til unnið sex bardaga
og tapað tvisvar sinnum.
Nýjast
AtHyGliSVErðir lEiKir BíðA í
MEiStArAdEildiNNi
Evrópumeistarar real Madrid
mæta Bayern München í átta liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu
en dregið var í gær.
Englandsmeistarar leicester City
mæta Atlético Madrid, silfurliði
Meistaradeildarinnar í fyrra.
ítalíumeistarar Juventus mæta
Spánarmeisturum Barcelona. Þessi
lið mættust í úrslitaleik Meistara-
deildarinnar 2015 þar sem Barce-
lona hafði betur, 3-1. Þá mætast
tvö skemmtilegustu lið Evrópu,
Borussia dortmund og Monaco.
Fyrri leikirnir fara fram 11. og 12.
apríl og þeir seinni 18. og 19. apríl.
íSlENSKt GUll í SAN MAríNó
ísland vann gull í tvímenningi
kvenna og silfur í tvímenningi
karla á Smáþjóðaleikunum í Keilu
sem fara fram þessa
daganna í San
Marínó.
KFr-stelp-
urnar Magna
Ýr Hjálmtýs-
dóttir og dagný
Edda Þórisdóttir
tryggðu sér gullið í
tvímenningi kvenna með sann-
færandi sigri. íslenska karlaliðið
komst einnig í úrslit en þeir Björn
G. Sigurðsson og Arnar davíð Jóns-
son töpuðu eftir spennuleik.
UNitEd FEr til BElGíU
Manchester United mætir
Anderlecht í átta liða úrslitum
Evrópudeildarinnar en United er
eina enska liðið sem er eftir í Evr-
ópudeildinni. Belgía á hins vegar
tvo fulltrúa; Anderlecht og Genk
sem mætir Celta Vigo. Ajax mætir
Schalke 04 og lyon og Besiktas
eigast við. Fyrri leikirnir fara fram
13. apríl og þeir seinni 20. apríl.
1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r22 s p o r t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
sport
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
7
8
-B
D
0
C
1
C
7
8
-B
B
D
0
1
C
7
8
-B
A
9
4
1
C
7
8
-B
9
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K