Fréttablaðið - 18.03.2017, Qupperneq 24
Ólafía Þórunn í beinni á Golfstöðinni
LAUGARDAG OG SUNNUDAG
365.is Sími 1817
Tryggðu þér
áskrift á aðeins
233 kr. á dag
6.990 kr. á mánuð
i
Við lifum ekki í
fullkomnum heimi
fótbolti Ísland spilar gríðarlega
mikilvægan leik við Kósóvó í Alban-
íu þann 24. mars næstkomandi og
fjórum dögum síðar spilar liðið vin-
áttulandsleik gegn Írlandi ytra.
Alfreð Finnbogason, Birkir Bjarna-
son, Jóhann Berg Guðmundsson og
Kolbeinn Sigþórsson eru allir meidd-
ir og svo er Theodór Elmar Bjarnason
í leikbanni. Það eru heldur betur stór
skörð að fylla.
Kári Árnason og Arnór Ingvi
Traustason eru báðir í leikmanna-
hópnum þó að þeir séu búnir að
vera meiddir. Báðir munu væntan-
lega spila með félagsliðum sínum
um helgina og að öllu óbreyttu mæta
þeir leikfærir í landsleikina. 24 leik-
menn voru þó valdir út af óvissunni
um meiðsli.
Landslið Kósóvó kom aðeins á
síðasta ári inn í UEFA og FIFA og það
er því lítil reynsla hjá leikmönnum
liðsins að spila saman. Í liðinu eru
þó sterkir einstaklingar og sumir
hafa spilað með öðrum landsliðum
áður en færðu sig um set þegar tæki-
færið til að spila fyrir Kósóvó kom
upp. Liðið er í 165. sæti á heimslist-
anum en Heimir Hallgrímsson lands-
liðsþjálfari segir að það muni rjúka
upp þann lista enda mun sterkara
en staða þess á listanum
segi til um. Það sé svona
neðarlega þar sem það sé
nýtt og hafi ekki sankað að
sér neinum stigum.
„Þetta er leikur sem
íslenska landsliðið þarf
að vinna en við gerum lítið
úr öllum mótherjum ef við
eigum að vinna einhvern
leik. Ég vona að þú og allir
Íslendingar hafi vit á því
að vera ekki að tala niður
andstæðinginn. Það hjálp-
ar aldrei til að vinna,“ segir
Heimir en hann hefur
skoðað andstæðing sinn
vel og ber mikla virðingu
fyrir honum.
„Þetta er ný þjóð sem
hefur ekki spilað marga
landsleiki en það eru þarna leik-
menn með mikla hæfileika. Þeir spila
með góðum liðum í góðum deildum.
Ef við berum saman þeirra lið og lið
íslensku leikmannanna þá er ekki
mikill munur þar á. Einstaklings-
gæðin eru svipuð. Þeir eru í því ferli
að mynda lið og það tekur svolítinn
tíma. Þeir hafa ekki þann lúxus að
hafa horft á þessa leikmenn með
sínum yngri landsliðum eða spilað
lengi saman. Ég hrósa þjálfaranum
fyrir hversu fljótt honum hefur tek-
ist að mynda lið. Það tekur tíma því
þjálfarinn fær liðið aðeins í nokkra
daga á ári.“ Landsliðsþjálfarinn vill
lítið ræða um hvar veikleikarnir
liggja hjá Kósóvó en segir að flestir
andstæðingar Kósóvó hafi pressað
þá framarlega og það horfi hann á.
Á þeim tíma sem Heimir hefur
verið með landsliðið hefur hann
nánast undantekningalaust getað
spilað á sama liðinu og ekki þurft að
gera miklar breytingar á hópnum.
Nú reynir í fyrsta skipti almenni-
lega á breiddina og menn með litla
reynslu eins og Aron Sig-
urðarson, Óttar Magnús
Karlsson, Kjartan Henry
Finnbogason og Viðar Ari
Jónsson eru í hópnum.
„Þetta starf er oftast
krefjandi. Þetta hefur verið
frekar þægileg sigling hing-
að til og við höfum nánast
alltaf getað valið sama
leikmannahóp. Örugglega
hundleiðinlegt á blaða-
mannafundum að fá sömu
glæruna aftur og aftur. Að
þessu sinni eru mikil forföll
og sem betur fer fengum
við verkefni í janúar og
febrúar þar sem við gátum
skoðað leikmenn og þeir
mátað sig í þessu umhverfi.
Þeir hafa virkilega staðið
sig vel og þessi verkefni í byrjun árs-
ins eru að hjálpa okkur mjög mikið
akkúrat í dag,“ segir Eyjamaðurinn en
hann sagði liðið vera að fá of mörg
mörk á sig og svo vantar hann sína
helstu framherja einnig í þessum
leikjum.
„Það er kannski hægt að segja að
ég sé með áhyggjur en ég er þó meira
spenntur fyrir þessum leik. Auðvitað
vilja allir þjálfarar hafa alla sína leik-
menn heila á leikdegi en svoleiðis
gerist bara í fullkomnum heimi og
við lifum ekki í fullkomnum heimi.“
henry@frettabladid.is
Það er hausverkur hjá Heimi Hallgrímssyni hvernig hann á að stilla upp liði sínu í næsta leik. Margir lykilmenn eru fjarverandi. fréttablaðið/ernir
Heimir Hallgrímsson
landsliðsþjálfari valdi
í gær 24 manna leik-
mannahóp fyrir lands-
leiki gegn Kósóvó og
Írlandi. Mikil meiðsli
herja á íslenska hópinn
og mörg ný andlit fá nú
tækifæri til þess að láta
ljós sitt skína.
Markverðir:
Hannes Þór Halldórsson, Randers
Ögmundur Kristinsson, Hammarby
Ingvar Jónsson, Sandefjord
Varnarmenn:
Hörður B. Magnússon, Bristol City
Ari Freyr Skúlason, Lokeren
Ragnar Sigurðsson, Fulham
Kári Árnason, AC Omonia
Hólmar Örn Eyjólfsson,
Maccabi Haifa
Sverrir Ingi Ingason, Granada
Viðar Ari Jónsson, Brann
Birkir Már Sævarsson, Hammarby
Miðjumenn:
Aron Sigurðarson, Tromsö
Elías Már Ómarsson, IFK Göteborg
Emil Hallfreðsson, Udinese
Aron Einar Gunnarsson, Cardiff City
Gylfi Þór Sigurðsson, Swansea
Ólafur Ingi Skúlason, Karabukspor
Rúrik Gíslason, Nürnberg
Arnór Ingvi Traustason, Rapid Vín
Sóknarmenn:
Jón Daði Böðvarsson, Wolves
Viðar Örn Kjartanss. Maccabi
Björn Bergmann Sigurðars., Molde
Kjartan Henry Finnbogas., Horsens
Óttar Magnús Karlsson, Molde
Hópurinn
Hans mál hvað hann gerir áður en kemur í landsliðsverkefni
Á blaðamannafundi landsliðsins í gær kom fram
að framherjinn Viðar Örn Kjartansson hefði
komið ölvaður til móts við landsliðið í undir-
búningi leiksins gegn Króatíu síðasta nóvember.
Hann kom degi á undan landsliðinu til Ítalíu í
æfingabúðirnar.
Þjálfarinn var augljóslega ekki mjög kátur
með það en refsaði þó leikmanninum ekki þar
sem undirbúningurinn var ekki formlega hafinn.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari ræddi
þó málið við Viðar Örn sem baðst afsökunar á
hegðun sinni.
„Við hreinsuðum þetta mál á fyrsta degi og
héldum svo áfram. Hvað hann gerir áður en
hann kemur í landsliðsverkefni er hans mál.
Við ræddum málið og hann er ekki í skammar-
króknum,“ segir Heimir sem sagði málið vera á
gráu svæði því spurning væri hvenær menn séu
komnir í landsliðsverkefni.
„Það gera allir mistök í lífinu og svo þurfa
menn að sýna að þeir vilji bæta fyrir sín
mistök og ég hef enga trú á öðru en að
Viðar vilji gera það.“
Heimir segir að reglurnar séu alveg
skýrar hjá landsliðinu, að ekkert
áfengi sé leyft með liðinu. Hann
vísaði á bug sögusögnum um að
tveir leikmenn landsliðsins hefðu
setið að sumbli eftir áðurnefndan leik
gegn Króatíu. Hann sagði að það hefði
komið beiðni um að menn fengju
leyfi til þess að fá sér bjór
sem hann hefði hafnað.
„Það var ekki agabrot
að neinu leyti. Menn
voru að horfa á UFC
og voru nánast
allir í orkudrykkjum.
Sumir voru í vatni,“
sagði Heimir.
Það
er
kannski hægt
að segja að ég
sé með áhyggj-
ur en ég er þó
meira spennt-
ur fyrir
þessum leik.
Heimir Hallgríms-
son landsliðs-
þjálfari Íslands
1 8 . m a r s 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r24 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
7
8
-D
0
C
C
1
C
7
8
-C
F
9
0
1
C
7
8
-C
E
5
4
1
C
7
8
-C
D
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K