Fréttablaðið - 18.03.2017, Qupperneq 30
Ö ll störf eru kvennastörf,“ eru einkunn ar orð átaksins #kvenn a starf sem hófst í mars. Myllumerkið hefur
verið áberandi á samfélagsmiðlum
en um er að ræða átak og kynn
ing ar her ferð á veg um Sam taka
iðnaðar ins og Tækni skól ans, í sam
starfi við alla iðn og verk mennta
skóla á Íslandi. Markmið átaksins
er að hvetja ung ar stúlk ur og kon ur
til að skrá sig í nám í svo kölluðum
„karllægum grein um“.
„Það þarf fleiri nemendur í
iðn og tækninám. Kveikjan að
þessu átaki er hversu fáar konur
stunda nám í vissum geirum iðn
aðar. Vinnumarkaðurinn líður
fyrir þessa einhæfni. Svo er þetta
líka fyrst og fremst bara mikilvægt
jafnréttismál sem skólarnir vilja
láta sig varða,“ segir Ágústa Sveins
dóttir, hönnuður og markaðsfull
trúi hjá Tækniskólanum og einn
talsmanna átaksins.
Þegar Ágústa fór að kanna þátt
töku stúlkna og kvenna í iðngrein
um kom henni lágt hlutfall þeirra
á óvart. „Tölfræðin er sláandi svo
Tekjumöguleikar fyrir konur
Kynjahallinn er útbreiddur í atvinnulífinu,“ segir Ágústa. Fréttablaðið/Eyþór
Ég veit ekki af hverju þetta stafar. Mér dettur helst í hug að stelpur skorti fyrirmyndir og kannski er
það eitthvað í samfélaginu,“ segir Jara
Fatima Brynjólfsdóttir, flugmaður hjá
Icelandair, sem skaust á ritstjórnar
skrifstofu Fréttablaðsins til viðtals
skömmu áður en hún fór í flug. „Ég
vil endilega gefa mér tíma til þess að
ræða þessi mál og ég vona að umræða
um fáar konur í flugi verði hvatning
þeim sem vilja láta drauminn rætast,“
segir hún.
Í dag eru samanlagt 807 flugmenn
og flugstjórar hjá helstu flugfyrir
tækjum landsins. Aðeins 57 þeirra
eru konur eða um 7%.
Jöru langaði til þess að verða flug
maður frá því hún var lítil stelpa. „Ég
átti ekki fyrirmyndir í fluginu. En for
eldrar mínir studdu mig og hvöttu og
ég held það hafi skipt miklu máli. Það
eru sterkar konur í fjölskyldunni sem
voru í ábyrgðarstöðum og ég held það
hafi líka skipt máli. Áður en ég hóf
nám þá var erfitt að fá vinnu sem flug
maður hjá flugfélögum landsins. Mér
var ráðlagt að fara fyrst í háskóla til
að hafa eitthvað til vara. Ég hugleiddi
það en svo ákvað ég að læra það sem
ég vildi starfa við, flug.“
Jara telur líklegt að kvenkyns flug
mönnum fjölgi eftir því sem fyrir
myndirnar verða fleiri. Sjálf er hún
meðvituð um að vera orðin fyrir
mynd. „Ég á litla frænku og reyni að
vera góð fyrirmynd fyrir hana. Hún
segist vilja verða flugmaður.“
Hún segist ekki finna fyrir mótbyr í
starfi sínu sem flugmaður. „Strákarnir
hafa alltaf tekið mér vel en stundum
fæ ég samt þessa tilfinningu að ég
þurfi að sanna mig. En þá kröfu geri
ég líklegast til sjálfrar mín, hún kemur
ekki utan frá eða frá strákunum, langt
frá því,“ segir Jara.
Þakklát konum sem ruddu brautina
Markmið átaksins
#kvennastarf er að
hvetja ungar stúlkur
til að skrá sig í nám í
karllægum greinum.
Ágústa Sveinsdóttir,
segir vannýtta tekju-
möguleika fyrir kon-
ur felast í iðnnámi.
Tölfræði um konur í iðngreinum
Forritun
Á tölvubraut í Tækniskólanum þar
sem lögð er áhersla á forritun og
tölvunarfræði eru 260 manns við
nám. 8 þeirra eru stelpur.
3%
Konur
Konur eru í minnihluta þeirra sem
læra og vinna við forritun í dag.Hér
má sjá kynjahlutfall þeirra sem
lokið hafa sveinsprófi í ýmsum
málmiðngreinum í gegnum árin.
Blikksmíði
452 Karlar
7 Konur
Rennismíði
10 Konur
543 Karlar
Stálsmíði
0 Konur
463 Karlar
Vélvirkjun
22 Konur
4407 Karlar
Matreiðsla
Frá upphafi hafa 1406 karlmenn
útskrifast með sveinspróf í mat-
reiðslu á Íslandi en aðeins 194
konur. Árið 1970 lauk fyrsta konan
sveinsprófi í matreiðslu á Íslandi.
35%
Konur
65%
Karlar
87 nemendur eru skráðir í mat-
reiðslunám á vorönn 2017 í MK og
VMA. Þar af eru 23 konur eða um:
35%.
Sveinspróf kvenna
84%
16%
n karlar
n konur
Heildarfjöldi karlmanna á Íslandi
sem lokið hafa sveinsprófi í lög-
gildri iðngrein eru 32.641.
Heildarfjöldi kvenna er 5.151.
ekki sé meira sagt, það er ljóst að
það er þörf á þessu átaki. Enda er ég
viss um að námið og störfin henta
konum jafn vel og körlum. Mér
finnst líka ólíklegt að bara strákar
hafi áhuga á þeim. Tekjumöguleik
arnir eru líka góðir,“ bætir hún við.
„Ég gerði til að mynda sjálf rann
sókn á konum sem starfa sem flug
menn. Ég hafði samband við Félag
íslenskra flugmanna, hringdi í öll
fyrirtæki á Íslandi sem eru með
flugmenn í starfi. Konurnar eru
ótrúlega fáar, á mörgum stöðum
voru engar starfandi flugmenn.
Hlutfallið var best hjá Icelandair,
eða um tíu prósent,“ segir Ágústa og
nefnir annan geira sem kom henni
á óvart hvað fáar konur starfa við.
„Það kom mér mikið á óvart hvað
það eru fáar konur með sveinspróf í
matreiðslu. Maður tengir konur við
matargerð, það er alveg á hreinu
að þær hafa mikinn áhuga á mat
og matargerð. En það sést ekki á
vinnumarkaðnum. Þær eru fáar
í matariðnaði,“ segir Ágústa sem
talaði við bæði stúlkur og konur
sem tengjast iðnaðinum.
„Sumar þeirra nefndu að barn
eignir þeirra þættu fyrirstaða. Það
er með ólíkindum að svo úrelt við
horf skuli viðgangast. Karlmenn
eiga börn líka, við búum í nútíma
samfélagi og það sló mig að konur
hafi þurft að mæta þessu gamal
dags viðhorfi og eigi því erfiðara
með að fá inngöngu. Sumar hafa
líka talað um að það sé gert ráð
fyrir því að vaktaálag geri þeim
erfitt fyrir að halda heimili. Eins og
karlmenn haldi ekki líka heimili,“
bendir Ágústa á.
Til að byrja með stóð aðeins til að
fara í átak tengt námi í Tækniskól
anum. Strax við undirbúning þess
kom í ljós að þörf væri á almennri
vitundarvakningu,. „Maður fór
að rýna í tölur og niðurstöðurnar
bentu til þess að kynjahallinn væri
svo mikill að þörf væri á umræðu
og aðgerðum. „Svo kemur í ljós að
kynjahallinn er miklu útbreiddari í
atvinnulífinu eins og maður hefur
séð í þjóðfélagsumræðunni síðast
liðna mánuði.“
Hún segir að flest fyrirtæki í dag
sýni mikinn velvilja og sum þeirra
meira að segja eru mjög spennt
Hún segir þurfa að fjölga konum
í flugi. „Mér finnst flestöll fyrirtæki
vera meðvituð um þetta. Hjá Ice
landair eru tíu prósent flugmanna
konur og vonandi hækkar hlutfallið.
Fyrsta konan sem varð atvinnuflug
maður á Íslandi er enn starfandi
hjá Icelandair. Mér finnst það gott.
Konurnar sem voru fyrstar og ruddu
brautina eru mikilvægar fyrirmyndir.
Ég er þeim þakklát. Hlutirnir breytast
hratt og í rétta átt.
Í sumar flaug ég með konu í fyrsta
skipti. Áður hafði ég alltaf flogið með
karlmanni. Ég man að ungur maður
horfði inn í klefann og fannst þetta
augljóslega mjög sérstakt. En á sama
tíma þá fannst mér það nú líka. Þetta
er undrun sem ég verð vör við, ekki
hneykslan,“ segir Jara. En hvað skyldi
það vera sem þarf til að verða flug
maður? „Það þarf að hafa mjög mikla
ástríðu fyrir flugi. Þú þarft virkilega að
vilja þetta. Þetta eru mörg skref sem
maður fer í gegnum og mikil sía. Til
að ná á endapunktinn þarftu að vera
ákveðin, viljasterk og full ástríðu.“
fyrir því að fá stelpur til starfa. En
þó tala sumar stelpur í iðnnámi
um að þær þurfi að berjast meira
fyrir sínu. Til dæmis hafa nokkrar
stelpur nefnt að þær hafi átt í
meiri erfiðleikum með að komast
á samning heldur en strákarnir.
„Þetta þarf að laga, það þarf að fara
yfir aðgangshindranir stelpna í
iðnnám. Iðnaðarstörf hafa breyst
mikið, efnin eru léttari og tæknin
hefur breyst. Iðnaðarstörf eru ekki
endilega mikið erfiði,“ segir Ágústa
sem segir þátttöku í herferðinni
hafa vakið hana til umhugsunar.
„Stelpur virðast þurfa að segja
hlutina fimm sinnum oftar en
strákar. Þeim líður oft eins og þær
megi ekki gera mistök og finna fyrir
því að það eru gerðar aðrar og meiri
kröfur til þeirra en strákanna. Það
er að minnsta kosti mitt persónu
lega mat,“ segir Ágústa.
Jara segir mikilvægt að fjölga fyrirmyndum. Fréttablaðið/Ernir
Konur í flugi á Íslandi
7%
93%
n karlar
n konur
Um það bil 110.000 flugmenn
eru starfandi í heiminum í dag og
samkvæmt nýjustu könnunum eru
um 5.000 þeirra konur og 1.500
flugstjórar.
Í dag eru samanlagt 807 flugmenn
og flugstjórar starfandi hjá helstu
flugfyrirtækjum á Íslandi en aðeins
57 konur.
1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
7
8
-A
4
5
C
1
C
7
8
-A
3
2
0
1
C
7
8
-A
1
E
4
1
C
7
8
-A
0
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K