Fréttablaðið - 18.03.2017, Page 68
kopavogur.is
Lausar kennslustofur
Samkeppnisviðræður
Kópavogsbær óskar eftir viðræðum við aðila sem geta
byggt eða reist úr einingum allt að 10 lausar færanlegar
kennslustofur fullbúnar til notkunar.
Fimm kennslustofum skal skila fyrir 20. ágúst 2017 og
öðrum fimm fyrir 20. október 2017.
Gert er ráð fyrir að allar kennslustofurnar verða staðsettar
við Kársnesskóla við Vallargerði í Kópavogi.
Heildarstærð á kennslustofu skal vera 80 - 85m², með 60m²
kennslurými og að auki salernis- og ræstiaðstöðu ásamt
forrými. Veggir að innan skulu vera í flokki 1. og skulu
útveggir vera með óbrennanlegri útveggjaklæðningu.
Kennslustofurnar skulu uppfylla allar kröfur sem gerðar eru
í byggingareglugerð til skólahúsnæðis.
Þeir sem óska eftir frekari gögnum um verkefni þetta
skulu senda tölvupóst á netfangið utbod@kopavogur.is ,
frá og með 20. mars nk.. Í tölvupósti skal koma fram nafn
tengiliðs, símanúmer og netfang.
Áhugasamir skulu senda nafn, netfang og upplýsingar um
fyrirtæki ásamt lýsingu á því sem boðið er á sama netfang
fyrir 3. apríl 2017.
ÚTBOÐ
Hafnararðarbær óskar eftir tilboðum í viðgerð
á þökum á eftirtöldum mannvirkjum:
• Álfaskeið 64 C
• Álfaskeið 64 D
• Leikskólinn Norðurberg
• Tónkvísl
• Víðistaðaskóli - íþróttahús
Áætlaðir heildarfermetrar eru um 1080 m2
Hver verkstaður hefur sína verklokadagsetningu en
öll verkin eiga að vera búin fyrir 10. ágúst 2017.
Útboðsgögn eru seld hjá umhverfis- og
skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu
2, frá og með þriðjudeginum 21. 03. 2017. Verð kr.
3.000.- Tilboð verða opnuð á sama stað,
þriðjudaginn 4. apríl 2017, kl. 11.
Nánar á hafnarordur.is
585 5500
HAFNARFJARÐARBÆR
hafnarfjordur.is
ÚTBOÐ
Hafnararðarbær óskar eftir tilboðum í málun á
eftirtöldum mannvirkjum:
• Engidalsskóli
• Hvaleyrarskóli
• Setbergsskóli
• Öldutúnsskóli
• Leikskólinn Hlíðarendi
• Leikskólinn Smáralundur
Áætlaðir magntölur eru um:
• Gluggar: 2940 lm
• Steyptir veggir: 430 m2
• Þak: 3018 m2
Hver verkstaður hefur sína verklokadagsetningu en
öll verkin eiga að vera búin fyrir 10. ágúst 2017.
Útboðsgögn eru seld hjá umhverfis- og
skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu
2, frá og með þriðjudeginum 21. 03. 2017 á kr.
3.000.- Tilboð verða opnuð á sama stað,
þriðjudaginn 4. apríl 2017, kl. 11:15.
Nánar á hafnarordur.is
585 5500
HAFNARFJARÐARBÆR
hafnarfjordur.is
Styrkir úr þróunarsjóði innflytjenda-
mála 2016-2017
Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki
úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins
er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði inn-
flytjendamála með það að markmiði að auðvelda
gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks sam-
félags. Við ákvörðun um styrkveitingar verður að
þessu sinni lögð áhersla á eftirfarandi:
• Rannsóknar- og þróunarverkefni sem leggja áherslu
á þau samfélagslegu áhrif sem fólk af erlendum
uppruna hefur á íslenskt samfélag.
• Rannsóknar- og þróunarverkefni sem falla vel að
áherslum þingsályktunar um framkvæmdaáætlun
í málefnum innflytjenda fyrir árin 2016-2019 sem
samþykkt var á Alþingi 20. september 2016.
• Rannsóknar- og þróunarverkefni sem stuðla að
virkri þátttöku innflytjenda í samfélaginu og auka
sýnileika þeirra.
Önnur rannsóknar- og þróunarverkefni koma einnig
til álita.
Styrkir verða veittir félögum, samtökum og opin-
berum aðilum og eru félags- og hagsmunasamtök
innflytjenda sérstaklega hvött til þess að sækja um.
Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir
styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 15 millj-
ónir króna. Styrkir geta numið að hámarki 75% af
áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að
sækja um jafnt á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til 7. apríl 2017. Vakin er sér-
stök athygli á að umsækjendum er gert að sækja
um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins
(minarsidur.stjr.is).
Vísað er á nánari upplýsingar um þróunarsjóðinn
á vef velferðarráðuneytisins, meðal annars reglur
þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýs-
ingum um skilyrði fyrir styrkveitingum. Einnig er
bent á framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
Nánari upplýsingar fást í velferðarráðuneytinu í síma
545 8100 og með tölvupósti á netfangið postur@vel.is.
Trúnaðar er gætt við meðferð allra umsókna.
Óska eftir tilboði í grásleppu
sem landað verður á
Húsavík. Verð miðist við að
kaupandi taki við aflanum
við löndun og sjái um
löndunarþjónustu.
Tilboð sendist á
grasleppa640@gmail.com
ÚTBOÐ VEIÐIRÉTTAR Í HAFRALÓNSÁ
Veiðifélag Hafralónsár í Þistilfirði óskar eftir tilboði í alla
lax- og silungsveiði á laxgengu svæði Hafralónsár frá
og með árinu 2018. Leyfðar eru 6 stangir á laxasvæði og
3 stangir á silungasvæði. Aðeins er leyfð fluguveiði á
laxasvæði. Tvö veiðihús eru við ána og er vegur að öllu
veiðisvæðinu.
Nánari upplýsingar gefur stjórn Veiðifélags Hafralónsár.
Jóhannes Sigfússon s.4681270 - 8687832
gunnarsstadir@simnet.is
Ævar Marinósson s. 4681457 -8666465 tsel@magnavik.is
Júlíus Sigurbjartsson s. 4627014 -8924034 julli@magnavik.is
Frestur til að skila inn tilboði rennur út föstudaginn
21. apríl.
Tilboð sendist á Veiðifélag Hafralónsár
Jóhannes Sigfússon Gunnarsstöðum 681 Þórshöfn, merkt
tilboð
Tilboð verða opnuð í Svalbarðsskóla í Þistilfirði miðviku-
daginn 26. apríl kl. 16.00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem
þess óska.
Veiðifélag Hafralónsár áskilur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Tillaga að nýju deili-
skipulagi lóðarinnar
Breiðamörk 1c í
Hveragerði.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti þann 9. mars
sl. að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóð
Hótels Arkar, Breiðamörk 1c í Hveragerði, skv. 1. mgr.
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsreiturinn
afmarkast af Breiðumörk til austurs, Bjarkarheiði til
norðurs, Réttarheiði til vesturs og opnu svæði til suðurs.
Meginmarkmið deiliskipulagsins er að auka nýtingar-
hlutfall lóðarinnar Breiðumörk 1c og koma þannig til
móts við aukna þörf á gistirými í Hveragerði. Tillagan
liggur frammi á bæjarskrifstofunni Sunnumörk 2, frá og
með mánudeginum 20. mars til mánudagsins 1. maí 2017.
Tillagan er einnig til sýnis hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b í Reykjavík og á heimasíðu Hveragerðis-
bæjar, www.hveragerdi.is
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar
og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi þriðjudaginn
2. maí 2017 annað hvort á bæjarskrifstofu Hveragerðis
Sunnumörk 2 eða á netfangið: gfb@hveragerdi.is.
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar
ÚTBOÐ
Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið
„Miðsvæði – Gatnagerð og lagnir –1. áfangi”
Verkið er fólgið í gatnagerð í nýju íbúðahverfi á Miðsvæði í
Vogum; uppúrtekt fyrir götum og lögnum, fyllingar í götu-
stæði og yfir lagnir, söndun og lagningu lagna, leggja lagnir
vegna götulýsingar, reisingu ljósataura, útlagning jöfnunarlags
undir malbik, malbikun, tengja lagnir við núverandi lagnir og
annað það sem kemur fram á uppdráttum, í verklýsingu og
magnskrá.
Helstu magntölur eru u.þ.b:
Uppúrtekt 2000 m³
Fyllingar 3800 m³
Malbik 2400 m²
Fráveitulagnir 800 m
Vatnslagnir 440 m
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2017.
Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum
með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða
hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og
netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti.
Útboðsgögn verða afhent frá og með mánudeginum 20. mars
2017.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal
2, 190 Vogar eigi síðar en þriðjudaginn 4. apríl 2017, kl. 11:00
og verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
7
9
-1
A
D
C
1
C
7
9
-1
9
A
0
1
C
7
9
-1
8
6
4
1
C
7
9
-1
7
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K