Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 100
Lagið Lítill fugl hljómar um salinn og á sviðinu stendur… Ellý Vil-hjálms? – nei, það getur ekki verið þó bæði rödd og útlit bendi til
þess, hún féll jú frá árið 1996. Ég er
stödd á æfingu í Borgarleikhúsinu.
Eftir síðasta lag og dramatísk loka-
orð er leikstjórinn Gísli
Örn Garðarsson spurður
hvernig hann hafi farið
að því að endurskapa
hina ástsælu söngkonu
Ellý Vilhjálms.
„Ég ákvað að gera sýn-
ingu um hana og var að
leita að einhverri í hlut-
verkið, það átti meira að
segja að fara í gerð sjón-
varpsþátta sem hétu Leit-
in að Ellý. Katrín Hall-
dóra Sigurðardóttir var
með einstaklingsverkefni
í Leiklistarskólanum sem
hét Ellý Vilhjálms og þá
var sett handbremsa á
leitina miklu, Ellý var
fundin. Síðan eru liðin
tvö ár. Það er dásamlegt
að vinna með Kötu. Það
að hún sé lík Ellý í útliti
er alger bónus en söng-
og leikhæfileikarnir réðu
úrslitum.“
Áður kveðst Gísli Örn
hafa gengið með hugmynd um
að gera sýningu um Vilhjálm Vil-
hjálmsson söngvara, bróður Ellýjar.
„Ég hafði áhuga á Villa Vill sem lést
ungur en lét þó eftir sig mikinn arf.
Ég vissi hins vegar ekkert um Ellý
systur hans fyrr en bókin hennar
Hún lagði
grunn að því
sem við erfðum
Enn ein tónlistarveislan er að hefjast
í Borgarleikhúsinu. Sýningin Ellý sem
fjallar um fyrstu atvinnudægurlaga
söngkonu Íslands verður frumsýnd í
kvöld og uppselt er á yfir 40 sýningar.
Þau Gísli Örn og Katrín Halldóra hafa bæði stúderað líf og starf söngkonunnar Ellýjar Vilhjálms síðustu tvö árin. Af-
raksturinn verður frumsýndur í kvöld á Nýja sviði Borgarleikhússins. FréttABlAðið/EyÞór ÁrNAsoN
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Möggu Blöndal kom út. Því sneri
ég mér að því að gera sýningu um
hana en auk hennar koma Raggi
Bjarna, Villi Vill, Sigrún Jóns,
Svavar Gests og galleríið frá þessum
tíma við sögu.“
Gísli Örn segir Ellý hafa orðið
fyrstu atvinnudægurlagasöng-
konu Íslands þegar hún fékk
fastan samning hjá Kristjáni Krist-
jánssyni, hljómsveitarstjóra KK-
sextetts. „Sigrún Jóns var áður að
syngja með KK en flutti til Noregs
og KK gerði mikla leit að annarri
söngkonu, meðal annars
í Danmörku, enda voru
danshljómsveitir að
fylla húsin sex sinnum í
viku á þeim árum. Sagan
segir að Raggi Bjarna hafi
stungið upp á Ellý og svo
fór að hún fékk fyrsta
íslenska atvinnusamn-
inginn. Hún var braut-
ryðjandi – dægurlaga-
söngkona sem saumaði
kjólana sína sjálf. Ég vildi
fjalla um lífsbaráttu lista-
manns sem lagði grunn
að því sem við erfðum
og skýrir að vissu leyti
af hverju við erum hér í
vel kyntu Borgarleikhúsi,
með deild þar sem allir
búningar eru saumaðir
af fólki sem er á launum
við það.“
Gísli Örn skrifaði sjálf-
ur handritið ásamt Ólafi
Egilssyni. „Við styðjumst
við bókina hennar
Möggu og heimildir sem lágu bak
við hana. Ellý var dul kona en við
erum búnir að hitta fullt af fólki
sem kynntist henni. Sýningin segir
margt um hana og hennar lista-
mannsþörf en líka um hvernig litið
var á konur í hennar bransa enda
gafst hún upp gagnvart fordóm-
unum og kom ekki fram í 22 ár, frá
árinu 1964 að telja. Lokaorðin eru
bein tilvitnun í útvarpsviðtal við
hana og eru býsna sláandi.“
Í þessu gengur Katrín Halldóra
í salinn og fær sér sæti við borðið,
aðeins búin að slaka á eftir æfing-
una. „Þetta tekur helling á,“ viður-
kennir hún. „Ég syng 28 lög en það
er yndislega gaman að fá að leika
Ellý og mikill heiður.“
„Við hlustuðum stundum á
plötur Ellýjar í byrjun til að finna
tóntegundir og á æfingatímabilinu
kom fyrir að ég var ekki viss um
hvor þeirra væri að syngja: Er Kata
að mæma? hugsaði ég – nei, hún er
að syngja!“ segir Gísli Örn hlæjandi.
Aðdáun vekur hversu lengi var
hægt að halda því leyndu hver færi
með aðalhlutverkið. „Það voru
allir að giska,“ segir Gísli Örn. „Ég
var búinn að heyra Steinunni Ólínu
nefnda, Hönsu, Ágústu Evu, Bryn-
hildi, Selmu og Guðrúnu Gunnars
– sem allar hefðu örugglega verið
frábærar líka en Katrín Halldóra er
eins og sköpuð í hlutverkið.“
Spurð hvort þær Ellý hafi
verið skyldar svarar Katrín Hall-
dóra brosandi: „Ekki það ég veit.
Mamma kannast ekki við það,
þó finnst mér amma, mamma og
systur hennar líkar henni.“
„Einhvers staðar í keðjunni liggur
kannski leyndarmál,“ skýtur Gísli
Örn inní.
Að lokum er leikkonan spurð
hvort hún eigi eftirlætislag í sýn-
ingunni. „Já, Lítill fugl eftir Sigfús
Halldórsson er í uppáhaldi, textinn
eftir Örn Arnarson er svo fallegur.
Það er líka lagið sem Ellý var sjálf
ánægðust með, enda var það samið
með hana í huga.“
Ég var Búinn að
hEyra StEinunni
ÓlÍnu nEfnda,
hönSu, ÁgúStu
Evu, Brynhildi,
SElmu og guð-
rúnu gunnarS –
SEm allar hEfðu
örugglEga vErið
frÁBærar lÍka
En katrÍn hall-
dÓra Er EinS og
Sköpuð Í hlut-
vErkið.
Katrín Halldóra
á sviðinu sem er
eins og hljóm-
sveitarpallur á
skemmtistað.
Áhorfendur sitja
svo við dúkuð borð
í salnum.
MyNd/GríMur
BjArNAsoN
1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r52 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð
menning
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
7
8
-B
8
1
C
1
C
7
8
-B
6
E
0
1
C
7
8
-B
5
A
4
1
C
7
8
-B
4
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K