Fréttablaðið - 18.03.2017, Blaðsíða 100

Fréttablaðið - 18.03.2017, Blaðsíða 100
Lagið Lítill fugl hljómar um salinn og á sviðinu stendur… Ellý Vil-hjálms? – nei, það getur ekki verið þó bæði rödd og útlit bendi til þess, hún féll jú frá árið 1996. Ég er stödd á æfingu í Borgarleikhúsinu. Eftir síðasta lag og dramatísk loka- orð er leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson spurður hvernig hann hafi farið að því að endurskapa hina ástsælu söngkonu Ellý Vilhjálms. „Ég ákvað að gera sýn- ingu um hana og var að leita að einhverri í hlut- verkið, það átti meira að segja að fara í gerð sjón- varpsþátta sem hétu Leit- in að Ellý. Katrín Hall- dóra Sigurðardóttir var með einstaklingsverkefni í Leiklistarskólanum sem hét Ellý Vilhjálms og þá var sett handbremsa á leitina miklu, Ellý var fundin. Síðan eru liðin tvö ár. Það er dásamlegt að vinna með Kötu. Það að hún sé lík Ellý í útliti er alger bónus en söng- og leikhæfileikarnir réðu úrslitum.“ Áður kveðst Gísli Örn hafa gengið með hugmynd um að gera sýningu um Vilhjálm Vil- hjálmsson söngvara, bróður Ellýjar. „Ég hafði áhuga á Villa Vill sem lést ungur en lét þó eftir sig mikinn arf. Ég vissi hins vegar ekkert um Ellý systur hans fyrr en bókin hennar Hún lagði grunn að því sem við erfðum Enn ein tónlistarveislan er að hefjast í Borgarleikhúsinu. Sýningin Ellý sem fjallar um fyrstu atvinnudægurlaga­ söngkonu Íslands verður frumsýnd í kvöld og uppselt er á yfir 40 sýningar. Þau Gísli Örn og Katrín Halldóra hafa bæði stúderað líf og starf söngkonunnar Ellýjar Vilhjálms síðustu tvö árin. Af- raksturinn verður frumsýndur í kvöld á Nýja sviði Borgarleikhússins. FréttABlAðið/EyÞór ÁrNAsoN Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Möggu Blöndal kom út. Því sneri ég mér að því að gera sýningu um hana en auk hennar koma Raggi Bjarna, Villi Vill, Sigrún Jóns, Svavar Gests og galleríið frá þessum tíma við sögu.“ Gísli Örn segir Ellý hafa orðið fyrstu atvinnudægurlagasöng- konu Íslands þegar hún fékk fastan samning hjá Kristjáni Krist- jánssyni, hljómsveitarstjóra KK- sextetts. „Sigrún Jóns var áður að syngja með KK en flutti til Noregs og KK gerði mikla leit að annarri söngkonu, meðal annars í Danmörku, enda voru danshljómsveitir að fylla húsin sex sinnum í viku á þeim árum. Sagan segir að Raggi Bjarna hafi stungið upp á Ellý og svo fór að hún fékk fyrsta íslenska atvinnusamn- inginn. Hún var braut- ryðjandi – dægurlaga- söngkona sem saumaði kjólana sína sjálf. Ég vildi fjalla um lífsbaráttu lista- manns sem lagði grunn að því sem við erfðum og skýrir að vissu leyti af hverju við erum hér í vel kyntu Borgarleikhúsi, með deild þar sem allir búningar eru saumaðir af fólki sem er á launum við það.“ Gísli Örn skrifaði sjálf- ur handritið ásamt Ólafi Egilssyni. „Við styðjumst við bókina hennar Möggu og heimildir sem lágu bak við hana. Ellý var dul kona en við erum búnir að hitta fullt af fólki sem kynntist henni. Sýningin segir margt um hana og hennar lista- mannsþörf en líka um hvernig litið var á konur í hennar bransa enda gafst hún upp gagnvart fordóm- unum og kom ekki fram í 22 ár, frá árinu 1964 að telja. Lokaorðin eru bein tilvitnun í útvarpsviðtal við hana og eru býsna sláandi.“ Í þessu gengur Katrín Halldóra í salinn og fær sér sæti við borðið, aðeins búin að slaka á eftir æfing- una. „Þetta tekur helling á,“ viður- kennir hún. „Ég syng 28 lög en það er yndislega gaman að fá að leika Ellý og mikill heiður.“ „Við hlustuðum stundum á plötur Ellýjar í byrjun til að finna tóntegundir og á æfingatímabilinu kom fyrir að ég var ekki viss um hvor þeirra væri að syngja: Er Kata að mæma? hugsaði ég – nei, hún er að syngja!“ segir Gísli Örn hlæjandi. Aðdáun vekur hversu lengi var hægt að halda því leyndu hver færi með aðalhlutverkið. „Það voru allir að giska,“ segir Gísli Örn. „Ég var búinn að heyra Steinunni Ólínu nefnda, Hönsu, Ágústu Evu, Bryn- hildi, Selmu og Guðrúnu Gunnars – sem allar hefðu örugglega verið frábærar líka en Katrín Halldóra er eins og sköpuð í hlutverkið.“ Spurð hvort þær Ellý hafi verið skyldar svarar Katrín Hall- dóra brosandi: „Ekki það ég veit. Mamma kannast ekki við það, þó finnst mér amma, mamma og systur hennar líkar henni.“ „Einhvers staðar í keðjunni liggur kannski leyndarmál,“ skýtur Gísli Örn inní. Að lokum er leikkonan spurð hvort hún eigi eftirlætislag í sýn- ingunni. „Já, Lítill fugl eftir Sigfús Halldórsson er í uppáhaldi, textinn eftir Örn Arnarson er svo fallegur. Það er líka lagið sem Ellý var sjálf ánægðust með, enda var það samið með hana í huga.“ Ég var Búinn að hEyra StEinunni ÓlÍnu nEfnda, hönSu, ÁgúStu Evu, Brynhildi, SElmu og guð- rúnu gunnarS – SEm allar hEfðu örugglEga vErið frÁBærar lÍka En katrÍn hall- dÓra Er EinS og Sköpuð Í hlut- vErkið. Katrín Halldóra á sviðinu sem er eins og hljóm- sveitarpallur á skemmtistað. Áhorfendur sitja svo við dúkuð borð í salnum. MyNd/GríMur BjArNAsoN 1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r52 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð menning 1 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 7 8 -B 8 1 C 1 C 7 8 -B 6 E 0 1 C 7 8 -B 5 A 4 1 C 7 8 -B 4 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.