Fréttablaðið - 16.02.2017, Síða 32
Þegar náminu lauk
vann ég á Ítalíu
fyrir Bvlgari og svo tók ég
að mér ráðgjöf og textíl-
vinnu fyrir ýmsa. Um tíma
vann ég einnig fyrir J
Crew í Bandaríkjunum.
Þetta voru spennandi
verkefni og afar lærdóms-
rík. Fyrirtækin eru svo ólík
og ég var stöðugt að læra
eitthvað nýtt. Eftir níu ár í
London var ég komin með
mikla þörf fyrir að finna
ræturnar aftur.
Aníta Hirlekar
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
„Ég mun sýna nýja línu sem ég
hef unnið að síðustu mánuði. Hún
verður litrík og listræn eins og
fyrri verk mín hafa verið. Hand-
gerðar flíkur hafa einkennt mína
hönnun og þar verður engin breyt-
ing á. Ég er einnig að þróa mynst-
ur en það hef ég ekki gert áður,“
segir akureyrski fatahönnuðurinn
Aníta Hirlekar, en hún tekur þátt í
Reykjavík Fashion Festival, RFF,
sem fram fer í mars.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
ég frumsýni nýja línu á Íslandi,“
segir Aníta en hún flutti aftur til
Íslands fyrir einu og hálfu ári eftir
nokkurra ára dvöl erlendis.
Aníta lauk mastersgráðu í fata-
hönnun frá Central Saint Mart-
ins í London árið 2014 en hún
vann meðal annars hjá Diane
Von Fursten berg, Christian Dior
og fleirum meðan á náminu stóð.
Þegar því lauk tóku við spennandi
verkefni á Ítalíu og í Bandaríkj-
unum. Þá hefur Aníta sýnt hönn-
un sína á tískuvikum í London og í
París en undanfarin ár hefur hún
verið búsett í London.
„Ég er í fæðingarorlofi með
10 mánaða dóttur mína. Ég er
komin með stúdíó hér í Reykja-
vík en sinni áfram mínum kúnn-
um erlendis og mun sækja mikið
út. Þegar náminu lauk vann ég á
Ítalíu fyrir Bvlgari og svo tók ég
að mér ráðgjöf fyrir textílvinnu
fyrir ýmsa. Um tíma vann ég einn-
ig fyrir J Crew í Bandaríkjunum.
Þetta voru spennandi verkefni og
afar lærdómsrík. Fyrirtækin eru
svo ólík og ég var stöðugt að læra
eitthvað nýtt,“ segir Aníta. Hún er
ánægð með að vera flutt heim á
Klakann en ferðast oft út.
„Mér finnst ofboðslega þægi-
legt að vera komin heim. Ég sæki
í friðinn og finnst gott að geta stað-
ið aðeins utan við hlutina. Eftir
níu ár í London var ég komin með
mikla þörf fyrir að finna ræturn-
ar aftur. En ég þarf að fara reglu-
lega utan til að fá innblástur og
halda sambandinu við viðskipta-
vini mína ytra og framleiðendur.
Eftir að hafa verið svona lengi úti
er íslenska hönnunarsenan fersk
fyrir mér. Mér finnst gaman að
taka þátt í Reykjavík Fashion
Festival þar sem allir koma saman
og sýna. Það er mikilvægt að taka
þátt. Á sama tíma finnst mér líka
gott að halda ákveðinni fjarlægð,
ég er ekki inni í öllu. Ég horfi með
öðru auganu út fyrir landið,“ segir
Aníta. Hún bætir við að greinilega
sé mikil gróska í íslenskri hönnun
í dag.
Mér finnst spennandi að fylgj-
ast með íslenskri fatahönnun, það
eru margir að gera mjög góða
hluti. Ég myndi þó vilja sjá fleiri
taka skrefið og sýna. Maður velt-
ir eiginlega fyrir sér hvað verði af
öllum þeim fjölda hönnuða sem út-
skrifast. Vonandi verða viðburðir
eins og RFF til þess að fleiri taki
sig til og fari að sýna skapandi
vinnu sína. Ég er viss um að þessi
bransi á bara eftir að fara stækk-
andi hér heima. Sjálf stefni ég á að
stækka við mig.“
Nánar má kynna sér hönnun Anítu
á, www.anitahirlekar.co.uk.
AnítA HirlekAr
Frumsýnir sínA
Fyrstu línu á rFF
Aníta Hirlekar fatahönnuður er flutt heim til Íslands eftir margra
ára dvöl í London. Hún sýnir sína fyrstu heildstæðu fatalínu á RFF í
mars sem hún lýsir sem listrænni og litríkri. Aníta segir mikla grósku í
íslenskri fatahönnun en fleiri hönnuðir mættu taka skrefið og sýna.
Aníta Hirlekar fatahönnuður hefur starfað bæði fyrir Bvlgari og J Crew. Hún frumsýnir nýja fatalínu á RFF. myNd/RuT SiguRðARdóTTiR
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Smart föt, fyrir smart konur
SUNNUDAGA KL. 20:00
1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r4 f ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X Xf ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a
1
6
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
F
-3
9
6
C
1
C
3
F
-3
8
3
0
1
C
3
F
-3
6
F
4
1
C
3
F
-3
5
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K