Lystræninginn - 01.04.1978, Síða 2
Sérstök, tímabundin kynningarkjör handa lesendum
Lystræningjans:
• Allar útgáfubækur Ljóðhúsa sem nú eru komnar út (5 bækur)
á kr. 13.000 í stáð kr. 18.120.
eða:
• Einstakar bækur með 15% afslætti.
Pöntun sendist til Ljóðhúsa, pósthólf 629, 121 Reykjavík.
Sendingarkostnaður fellur niður ef peningar fylgja pöntun.
BÓKALISTI:
Þorbcrgur Þórðarson:
ÓLÍKAR PERSÓNUR
Fyrstu ritverk í óbundnu máli
1912-1916. 258 bls. Verð kr. 4800.
Málfríður Einarsdóttir:
SAMASTAÐUR í TILVERUNNI
302 bls. Verð kr. 5400.
Elísabet Þorgeirsdóttir:
AUGAÐ í FJALLINU
Ljóð. 84 bls. Verð kr. 2880.
Richard Wright:
SIGUR í VÍETNAM
Pappírskilja. 239 bls. Verð kr. 1440.
Þorsteinn frá Hamri:
FIÐRIÐ ÚR SÆNG DALADROTTNINGAR
Ljóð. 64 bls. Verð kr. 3600.
ÚR UMSÖGNUM UM BÆKUR LJÓÐSHÚSA:
„Það var mikill fengur fyrir mig, sem og aðra unnendur Þórbergs Þórðar-
sonar, að komast í nýju bókina hans, ÓLÍKAR PERSÓNUR. Þetta eru fyrstu
ritæfingar skáldsins frá því fyrir og í fyrra stríði og alveg stórkostleg lesning.“
Magnús Toríi Olafsson.
„Mörg alvarlegustu ljóð bókarinnar FIÐRIÐ ÚR SÆNG DALADROTTN-
INGAR eru einskonar áminningar til lesandans að huga nú vel að mcnnskum
gildum og gera sér grcin fyrir hvar hann stendur. Eg gæti nefnt mörg ljóð í
bókinni sem þarf að gaumgæfa vel og lesa oft áður en kjarni þcirra opnast.“
Jóhann Hjálmarsson.
„Þessi bók SAMASTAÐUR í TILVERUNNI er iðandi líf, hún er síbrcyti-
leg, glettin eða grálynd, kát eða döpur eins og lund manns. En umfram allt er
hún skemmtileg svo að lesendur biðja: Mættum við fá meira að heyra,
Málfríður.“
Rannveig G. Ágústsdóttir.
„Bók Málfríðar Einarsdóttur er einkennilega skemmtileg bók. Á hverri
einustu blaðsíðu finnur maður eitthvað óvanalegt ogsérstætt. Bókin er í senn
æviminningar, ádeilurit, hugrenningar um lífið og tilveruna, dulsagnir og
mannlífslýsingar. . . Höfundur er snillingur í meðferð máls, hér er ekkert
misrími milli vitundar og skrifa, þessvegna er bókin sönn.“
Siglaugur Brynleifsson.
LJÓÐHÚS HF
Bókaútgáfa
2