Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 14
r
Einar Olafsson
OKTÓBER
Febrúar 1917 - að gömlu tímatali rússa: alþýða
Rússlands - bláfátækir bændur sem kallaðir hafa
verið til vígstöðvanna og samþjappaður verkalýð-
ur stórborganna - er þreytt á fátækt og kúgun og
heimsstríði auðstéttanna, sem alþýðan er látin
borga. I einu vettfangi er keisarastjórninni í Péturs-
borg steypt. Samkvæmt þeirri söguþróun sem
virtist eðlileg fékk borgarastéttin hin pólitísku völd,
en jafnvel með aðstoð kratanna - mensévíka og
þjóðbyltingarmanna - og síðar undir forystu
þeirra, stóð hún ráðþrota gagnvart kröfum alþýð-
unnar. I ráðunum undir forystu Pétursborgarráðs-
ins óx upp ríkisvald öreiganna. I landinu var
tvíveldi; annað hvort hlaut að sigra: alræði öreig-
anna eða ógnarstjórn borgarastéttarinnar byggð á
arfi keisarastjórnarinnar. Sú söguþróun sem virtist
eðlileg hlaut að tákna ósigur alþýðunnar. Bylting-
in varð að halda samfellt áfram frá borgaralegu
byltingunni í febrúar, og sú samfellda byltinghófst
í rauninni strax með tilkomu ráðanna og tvíveld-
isins. I október - 7. nóvember að okkar tímatali -
tók Pétursborgarráðið völdin undir forystu bolsé-
víka, valdatakan varð án blóðsúthellinga. Blóðið
rann síðar, fyrst í dauðateygjum borgarastéttar-
innar og gamla aðalsins, síðar í úrkynjun öreiga-
byltingarinnar yfir í stalínismann.
Nokkrar skýringar:
Tvíhöfða örn var á veldissprota keisarans.
Salarkynni ballerínunnar var hús uppáhaldsball-
erínu keisarans; bolsévíkar gerðu það að fiokks-
skrifstofum sínum.
Skólastofur stássmeyja er Smolny, klausturskóli
fyrir dætur aðalsmanna, sem var gerður að höfuð-
stöðvum Pétursborgarráðsins.
Eftir að öll Pétursborg var á valdi byltingarmanna
sat bráðabirgðastjórnin enn í Vetrarhöllinni ásamt
dyggustu liðssveitum sínum; frá fijótinu Neva
beindi herskipið Aurora byssum sínum að þessu
stolti keisarans.
Haustið var votviðrasamt í Pétursborg árið 1917.
14