Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 35

Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 35
ykkur svo miklu máttugri, og ég myndi skemmta mér djöfullega (aftur er lamið á dyrnar (til hægri), íjögur þung högg og nú fastar en áður, þau líta á hurðina, þegja og bíða) maður 1: (andvarpar) hann er farinn (þögn) maðurmn: núna vilt þú ekki fara inn, en hvers vegna komstu þá hingað á meðan þínir líkar stjórn- uðu maður 1: við vorum orðnir of margir maðurinn: áðan sagðirðu að þið heíðuð kannski allir komið og farið til hans maður 1: já konan: og skilið okkur hin eftir? maður 1: nei, það höfum við örugglega ekki gert konan: en þú sagðir áðan maður 1: ég var að blekkja ykkur einfeldningana, þið skiljið aldrei neitt konan: en. . . maður 1: sjáið nú til, þegar við vorum orðnir of margir þá fengu ekki allir jafn mikið ísinn hlut, svo þeir sem minnst fengu komu hingað og flúðu til hans, en alltafvoru einhverjir sem undu hagsínum vel þarna úti, þeir gátu svo af sér fleiri af okkar líkum, en þeir fengu ekki mikið í sinn hlut og fóru því til hans, með ákveðnu millibili, þannig skapað- ist jafnvægi konan: en nú hafa engir komið mjög lengi maður 1: einmitt, jafnvægið hefur farið úr skorðum, og þar sem strax er hægt að útiloka þann möguleika að þið hafið rekið okkur af höndum ykkar, því við erum svo margfalt sterkari en þið, þá er raunar ekki eftir nema einn möguleiki á því hvað hafi gerst þarna úti konan: og hvað er það, hvað hafið þið gert maður 1: þú spyrð, þið skiljið ekkert og hafið aldrei gert, sjáðu nú til elskan mín, það sem hefur gerst er að allt er búið (þagnar) öllu hefur verið eytt, mínir líkar skilja ekki við án þess að eyða öllu, en því miður er það ekki hægt nema eyða sjálfum sér um leið (þagnar) en ég er þó eftir, og svo þið vesalingarnir maðurinn: hvað ætlarðu að gera með okkur maður 1: (hlær) ég mun láta ykkur uppfylla jörðina, af einfeldningum, og þar mun ég einn ríkja um aldur og ævi (nú er Iamið ógurlega á dyrnar, þau fyllast öll skelfingu, stara á hurðina, bíða, en ekkert gerist) maður 1: (andvarpar) nú kemur hann ekki oftar, allt er þegar þrennt er, og nú komið þið með mér (maður 1 og konan rísa á fætur) maður 1: (við manninn, undrandi) hvað! ætlarðu ekki að koma maðurinn: (lágt og óákveðið) nei maður 1: hvað er þetta, uppsteyt? slíkt hefur aldrei gerst áður (ógnandi) þú skalt ekki reyna slíkt við mig 35 L

x

Lystræninginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.