Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 25

Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 25
1965 ERT ÞÚ: 1. Flokksbundinn hefur fylgt flokknum áratugum í Framsóknarflokknum? en finnst svona píp? í próíkjöri Ef við getum rétt, ætlum við ekki nuuiA og dómgreind, heldur koma til þig og samfélag þitt. 4. Óflokksbundinn og finnst öll stjórnr vera þras og jafnvel loddaraskapur? III Ragnar hóf að skipuleggja baráttu sína fyrir útnefningu í öruggt sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Hann tilkynnti þátttöku til formanns prófkjörs- nefndar Snorra Þórs Guðmundssonar stórkaup- manns og gamli maðurinn sendi honum í ábyrgð- arbréfi ávísun uppá 800 þúsund krónur; framlagtil baráttunnar. Ragnar tók húsnæði á leigu í vestur- bænum, ekki langt frá veitingarhúsinu Nausti, og réði kunningja sinn, Björn Heiðar bankagjaldkera við útibú eins ríkisbankans, sem forstöðumann kosningaskrifstofunnar. Hann fékk um það bil milljónkróna víxil fyrir tilstuðlan bankagjaldker- ans og var semsagt tilbúinn í slaginn; keypti hljómplötur með ræðum Olafs Thors og John F. Kennedys og spilaði þær daginn út og inn, innritaði sig á Dale Carnegie námskeið í ræðu- flutningi og framkomu, skipti um hárgreiðslu og haíði að fyrirmynd tískuklippingu Birgis Isleifs Gunnarssonar borgarstjóra. Guðríður fór með honum í Herrahúsið og valdi á hann tvö sett af Kórónafötum með vesti, nokkrar mislitar skyrtur og vandaðan ullarfrakka. Næst lá leiðin á Ljós- myndastofu Lofts, þar voru teknar af Ragnari lit- myndir í tugum af ýmsum stærðum og gerðum. Kosningaskrifstofan dreifði þeim á stórum vinnu- stöðum t.d. Álverinu, Keflavíkurflugvelli ogMorg- unblaðshöllinni við Aðalstræti. Einnig voru prent- aðar stórar myndir af Ragnari til að setja á síma- staura, almenningssalerni og strætisvagnaskýli. Ragnar hringdi í móðurbróður sinn Pétur Diðrik Pétursson og leitaði ráða um baráttuna. Pétur bauð honum þegar í stað að ganga í Frímúr- araregluna og sagðist ætla að mæla með honum vegna framúrskarandi hæfileika hans og skyld- leika við sig. Ragnar þáði boðið, vissi að það var lykillinn að allsnægtaborðinu. Ragnar sótti fundi góðgerðarsamtaka og gætti þess ávallt að lenda inná myndum sem blaðaljósmyndarar tóku af þeim samkvæmum. I einni og sömu vikunni sótti hann allar leiksýningar leikhúsanna, heimsótti frænda sinn Bjöm Lárus Baldursson, gallharðan flokksmann, og fór þess á leit við Björn að hann ræki fyrir sig áróður á fjölmennum vinnustað þarsem hann var verkstjóri. En svo brá við að Björn hafði enn einu sinni lent á drykkjutúr, hafði verið fullur í þrjár vikur og bað um meira áfengi, ekkert 25

x

Lystræninginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.