Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 32

Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 32
Jón Pálsson BIÐSTOFAN (það er nú svo) sviðið: herbergi með hurðum á sitthvorum hlið- arveggnum, veggirnir ganga skáhallt út frá veggn- um sem er í baksýn, þannig að hurðirnar sjáist og eru þær nær veggnum í baksýn heldur en brún sviðsins, þær opnast báðar út, veggurinn í baksýn er grásvartur á lit og mjög dökkur, hliðarveggirnir eru ljósari, hurðirnar eru venjulegar viðarhurðir, borð er í miðju herberginu á þverveginn, en er nær brún sviðsins en veggnum í baksýn, við borðið sitja þrír menn og eru að spila ólsen, þeir sitja til sitthvorrar hliðar og við enda borðsins sem er nær veggnum, til að komast frá borðinu að hurðunum þurfa mennirnir að taka ein sjö til átta skref, bak við borðið ca. 1 metra og til sitthvorrar hliðar við það standa maðurinn og konan, andlit þeirra eru sem steinrunnin. I herberginu er rökkur sem er þó ekki rökkur heldur óraunverulegt og þokukennt líkt og að ljósiðsé í vafa (hvernigsem slíkt má vera), birtan deyr upp í loft, persónur: maður 1: (situr við mitt borðið) er í dökkum jakkafötum, mjög þvældum, aldur ca. um fimm- tugt, haltur, maður 2: (situr til vinstri séð frá sal) er í svörtum jakkafötum, hreinum og stífpressuðum, aldur ca. um þrítugt, maður 3: (situr hægra megin við borðið séð frá sal) er í dökkgráum jakkafötum, frekar þvældum, aldur ca. um fertugt, maðurinn: (stendur aftan við borðið hægra meg- in) er í venjulegum fötum, þvældum, aldur ca. þrjátíu og fimmára, konan: (stendur aftan við borðið vinstra megin) er í venjulegum fötum, þvældum, aldur ca. 35 ára, (maður 1 gefur spilin og mennirnir þrír við borðið spila um stund) maður 1: ég haíði ekki hugsað mér að deyja fyrr en . . . maður 2: (leggur út spil) ég breyti í spaða (þögn) maður 3: að hugsa sér að hann skuli banka (þögn) maður 2: (dregur þrjú spil) pass (þögn) maður 1: þegar ég var barn hélt ég að hann væri vondur (þögn) maður 3: hann bankar en kemur ekki inn (þögn) maður 1: svo þegar ég varð eldri gerði égmér ljóst að hann væri í rauninni góður (þögn) maður 1: (dregur þrjú spil) pass (þögn) maður 3: hann bankar og gefur merki um að næsti megi koma (þögn) maður 1: svo er hann traustur því hann er alltaf til staðar (þögn) maður 3: (dregur þrjú spil) pass (þögn) maður 3: og hann opnar hurðina og við hlaupum inn til hans (þögn) maður 1: það er alltaf hægt að flýja til hans (þögn) maður 3: hver á fætur öðrum maður 2: (leggur út spil) ólsen maður 1: (leggur út spil) ég breyti í laufa maður 2: andskotinn! (starir á spilabúnkann) heyrðu þú hentir tveim spilum maður 1: ég gerði það ekki, sjáðu (Iyftir upp spili) þetta spil var hér fyrir maður 2: nei, það var það ekki maður 1: það var það víst maður 3: verið nú rólegir, það er enginn ástæða til að æsa sig útaf svona smámunum maður 2: (æstur) vert þú ekki að skipta þér af þessu, djöfulsins helvítis maður I: það er rétt hjá honum, við skulum ekki vera að æsa okkur, ég skal taka spilið til baka (tekur upp spil úr bunkanum), ertu þá ánægður maður 2: það var líka eins gott fyrir þig maður 3: verið nú rólegir og spilum maður 2: andskotans (þeir spila nokkra stund þegjandi) maður 3: þó eru hér aðrar dyr maður 1: maður getur valið 32

x

Lystræninginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.