Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 34

Lystræninginn - 01.04.1978, Blaðsíða 34
maður 1: séð marga maður 3: en nú hefur enginn komið hingað lengi maður 1: ég skil þetta ekki, það hefur aldrei liðið svona langur tími milli þess að einhver kæmi maður 3: og ekkert útlit fyrir að neinn komi, (við manninn) athugaðu hvort einhver sé ekki að koma (maðurinn gengur að hurðinni til vinstri (séð frá sal) og ekki var bankað á, leggur eyrað uppað henni, hlustar, kemur svo aftur og hristir höfuðið) maður 3: þetta er skrítið maður 1: já, mjög undarlegt maður 3: hvað ætli að hafi gerst maður 1: ég veit ekki (þögn) maður 1: (hugsi) þegar maður hugsar um það, þá er varla nema tvennt sem gæti hafa gerst, held ég (aftur er lamið tvisvar á dyrnar til hægri og mennirnir tveir spretta upp, hurðin opnast sem snöggvast, maður 3 verður á undan, ogsmeygirsér inn, hurðin lokast strax á hæla honum, maður 1 snýr vonsvikinn til baka, sest og tekur upp spilin) maður 1: (við manninn og konuna) komið nú og setjist hjá mér (maðurinn og konan setjast, maður 1 fer að leggja kapal) maður 1: (eftir nokkra stund og einsog við sjálfan sig) þá er ég einn eftir í þessari andskotans biðstofu, eða ætti ég kannski heldur að segja biðstofu and- skotans (hlær lágt) (þagnar) (bitur) ég einn hef mátt þola það að þúsundir, já, jafnvel miljónir hafi rutt mér frá dyrunum, eins og þeir eigi nokkuð frekar skilið að komast inn á undan mér, nei, í rauninni heíði ég átt að vera sá fyrsti er fengi að ganga inn til hans, ég sem eitt sinn hefði getað stjórnað veröldinni, já, veröldinni allri, en þessir andskotans djöflar eyðilögðu allt, þessi öfund og þessi ósamstaða, ég hefði getað skipulagt allt, þannig að allir af okkur hefðu fengið eitthvað í sinn hlut, og þá hefðu þeir ekki þurft að flýja til hans frekar en þeir vildu, já, ég hefði getað skipulagt veröldina, heyriði það! skipulagt veröldina! en hváð er ég að rifja þetta upp núna, það er langt síðan þetta var, og það mistókst, því er nú and- skotans verr að það mistókst, og þeir léku miggrátt bölvaðir, ég májafnvel hrósa happi yfir því að hafa sloppið, síðan þá hef ég setið hér og beðið þess að komast til hans, og ég hef mátt þola það að þessir smádjöflar hafi rutt mér úr vegi hvað eftir annað, jafnvel þegar ég var að því kominn að stíga inn til hans, þessi fúlmenni og heimskingjar, heyriði það! fúlmenni og heimskingjar! en nú eru þið ekki fleiri sem komið, ég er hér einn, svo næst þegar kallið kemur get ég gengið hinn rólegasti inn til hans, eða. . . . (þagnar) . . . hvað sagði ég áðan, það hefur enginn komið hingað mjög lengi, svo eitthvað hlýtur að hafa gerst þarna úti, og það eru varla nema tveir möguleikar á því hvað það sé, eða . . . (rekur upp hlátur), hvers vegna hugsaði ég ekki út í þetta fyrr, bara tveir möguleikar eða hvað . ... (hlær), nei, ekki bara tveir möguleikar, heldur aðeins . . . (hlær), andskotans hálfviti var ég að sjá þetta ekki fyrr, nú skal ég leika heldur betur á þá, hver veit nema mér takist það nú sem ég ætlaði mér, já, hver veit (hlær kuldalega) (tekur saman spilin á borðinu) . . . og þó að þessi andskotans kapall gangi ekki upp, þá skal fyrirætlun mín ganga upp, og það fullkomlega (fer aftur að raða spilunum á borðið) (þegir nokkra stund) (við manninn og konuna) alltaf hafið þið verið hér og þjónað okkur maðurinn: (fremur kuldalega) ekki aðeins við maður 1: hvað! (lítur snöggt í kringum sig) eru fleiri hér maðurinn: nei, en þarna úti maður 1: (rekur upp hlátur) já þið eruð mörgsem hafi þjónað okkur þarna úti konan: (óákveðið) kannski verður einhverntím- ann endir á því maður 1: kannski er það þegar orðið (hlær) (maðurinn og konan líta hvort á annað með sambland af undrun og von í svipnum) maðurinn: hvað áttu við maður 1: sjáiði nú til börnin mín, hingað hefur enginn komið í mjög langan tíma, svo eitthvað hlýtur að hafa gerst þarna úti, ogeins og égsagði þá koma ekki nema tveir möguleikar til greina (hlær) (nú er lamið þrjú þung högg á dyrnar (til hægri), þau líta öll á hurðina, maðurinn og konan líta svo á mann 1 sem hreyfir sig ekki) (þögn) maðurinn: (undrandi) af hverju fórstu ekki inn maður 1: (hlær) eins og égsagði, þá hefur eitthvað gerst þarna úti og . . . konan: en hann bankaði maður 1: mér er andskotans sama þó hann hafi bankað, því ég ætla út maðurinn: en þú sem ert búinn að bíða svo lengi eftir því að komast þangað inn maður 1: það skiptir ekki máli lengur, því það sem hefur gerst þama úti er annaðhvort að allir mínir líkar eru farnir til hans, eða að þarna úti sé enginn konan: enginn? maður 1: ekki sála, allir farnir maðurinn: en hvert maður 1: dauðir konan: allir dánir? maðurinn: það getur ekki verið maður 1: það kemur ekkert annað til greina (þögn) konan: og hvað ætlar þú að gera maður 1: fara út maðurinn: en ef einhverjir eru eftir maður 1: þá væru það bara einfeldningar eins og þið konan: hvað myndurðu gera maður 1: hvað ég myndi gera (hlær), það sem mínir líkar hafa ætíð gert, láta ykkur þjóna mér og tilbiðja, etja ykkur saman, koma af stað illindum, sundra ykkur, koma af stað stríði, því við erum 34

x

Lystræninginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.