Lystræninginn - 01.04.1978, Page 4
Jón Oskar
LAND MITT
í dölum þínum hef ég lesið ber,
í fjörum þínum tekið oft á sprett,
ég fann þar skeljar, kuðunga og gler,
ég settist auðugur á háan klett
og söng og söng á meðan brimið small
á klettsins harða vegg og aldan svall
og blóðið vall í æðum mér, ég söng
um ást og líf og vötnin blíð og ströng,
um landið, íjall og dal og kaldan mar,
um þjóðarinnar líf og nótt og dag,
um hennar draum og strit og áralag.
Halldór S. Stefánsson
KREPPTUR HNEFI
Minnstu að afl þitt
býr í þessum kreppta hnefa.
En mundu að misnota það ekki
því að þetta er hið eina sem þú átt.
Vertu þolinmóður og starfaðu
þar til krepptu hnefarnir
- fyrir áróður þinn -
eru orðnir nógu margir.
Þá munu allir krepptir hnefar
reiða til höggs!
4