Lystræninginn - 01.04.1978, Side 11
NYLISTASAFNIÐ
Það er eitt af markmiðum Nýlistasafnsins að vera
miðstöð nýjustu strauma og tilrauna í íslenzkri list.
Þetta markmið má túlka á tvo vegu: Aðilar safns-
ins eru þeir listamenn sem tjá hvað frumlegasta
hugsun í íslenzkri list, og eru í þeim skilningi sú
miðstöð sem um er rætt. Það leiðir því af sjálfu sér
að frumlegir listamenn standa ekki fyrir ófrumlegu
sýningarhaldi í húsakynnum safnsins, heldur hlýt-
ur áherzlan að verða lögð á nýstárlega starfsemi.
I þessu sambandi er rétt að minnast þess að
lifandi safn verður að ná út fyrir húsveggi sína, út á
götur og torg, út um land. En ekki sízt verður að
beina athygli almennings að safninu og búa honum
aðstöðu til fræðslu og skemmtunar, með aðgangi að
bókasafni, ljósmyndum, úrklippum, fyrirlestrum,
kvikmyndasýningum og hvers konar listaverkum.
Margir hlutir í listaverkaeign safnsins eru
þannig gerðir að auðvelt er að ílytja þá í önnur
landshorn, og margir aðilar að safninu tjá sig á
þann hátt í listinni að farangur er óþarfur, listræn
tjáning þeirra er óbundin stað og tíma og varpar
stundum ljósi á svið sem engin mynd nær yflr þótt
tjáningin sé myndræn.
/
í
/
Wolf Vostcll
a«,ES!í's'
Kristján Guðmundsson
í skipulagsskrá Nýlistasafnsins stendur að fjár-
magna skuli reksturinn með virðulegum hætti! Þar
með er loku fyrir það skotið að hægt verði að útvega
rekstrarfé eða auka verðgildi lausafjár með sömu
aðferðum og öll heiðarleg fyrirtæki. En þá er að
heimta inn ársgjöld og aðgangseyri á sýningar
safnsins, krækja í styrki úr sjóðum, hirða ágóða af
sölu tímarita, bóka, korta og annarrar útgáfu. Þá
heimilar skipulagsskráin stjórn safnsins að koma á
fót styrktarmannakerfi. Styrktarmenn gætu hugs-
anlega látið af hendi rakna misháar íjárupphæðir,
en fengju í staðinn t.d. boðsmiða á sýningar, afslátt
á útgáfuverkum safnsins, árituð sérgerð listaverk,
þ.á m. grafík í takmörkuðu upplagi.
Stofnendur Nýlistasafnsins vilja með framlagi
sínu stuðla að rekstri menningarmiðstöðvar sem
taki nokkurt mið af þeirra eigin viðhorfum, en þar
með er ekki sagt að hafna beri framlögum annarra
aðifa ef þau samrýmast markmiðum eða hafa
eitthvert gildi. I skipulagsskrá er sagt að kynna
skuli vanmetin tímabil og liststíla, list sem hefur
farið forgörðum eða ekki hlotið náð fyrir augum
þeirra sem um listir fjalla, - má þar nefna
Alþýðulistina svokölluðu. Þeir sem vel þekkja til
fullyrða að stór hópur fólks víðs vegar um landið
fáist við listsköpun, einkum eldra fólk sem lítillar
kennslu hefur notið og heldur sér utan við skarkala
heimsins, af meðfæddri hógværð eða í óvissu um
eigið ágæti. Nýlistasafnið mun eftir föngum nálgast
þetta fólk og verk þess svo viðurkenning fáist.
Listasafn sem hafnar sambandi við þjóðarsálina og
bindur sig á einangraðan klafa hlýtur að daga uppi
í leiðindum. Nýlistasafnið frábiður sér tilgerð og
stöðnun, en fagnar þeirri list sem sköpuð er af þörf og
hefur varanlegan lífrænan tilgang.
11