Lystræninginn - 01.04.1978, Page 12
GAGNRÝNENDUR
OG AÐRIR PÁFAR
Það fer ekki hjá því að sumir gagnrýnendur liggi
undir grun um að sofa á verðinum. Því er jafnvel
haldið fram að þeir stundi skemmdarstarfsemi í
þágu annarlegra aíla. Hérverður ekki tekin afstaða
til þess, en hinu er ekki að leyna að mikillar
óánægju gætir með hlutskipti þeirra, menn vor-
kenna þeim að þurfa að tjónka við markaðslög-
málin og umsvifin sem af þeim leiða, að þurfa að
hrósa stílafbrigðum sem hafa útvatnazt í tímans rás
síðan ismarnir bárust hingað ferskir, stílafbrigðum
sem allir vita að þeir hatast við. Það er líka grátlegt
að þeim er forboðin sú nautn að fagna nýjungunum
í einlægni í stað þess að sýna þeim afskiptaleysi og
fyrirlitningu. En aföllu illu er þó verst, efaumingja
mennirnir sligast undir ábyrgðinni að falsa lista-
sþgu landsins. En kannski má huggast við það að
þessir landsfeður séu aðeins að skapa spennu í
herbúðum framúrstefnunnar með heimatilgerðum
sálfræðitrixum, vitandi það að jákvæð framvinda
blómgast bezt við hæfilegan mótbyr?
En gagnrýnendur eru ekki einir á báti í óeigin-
gjörnu starfi, því húsbændur þeirra hafa stutt þá
dyggilega í gegnum þunnt og fast, látið þeim eftir
ómælt pláss undir hugsmíðar þeirra, ogjafnvel haft
frumkvæði til þess að taka tali einhvern snillinginn
sem hefur orðið fyrir barðinu á úthlutunarnefnd
frumlegra gáfna. Og síðan leiðir hvað af öðru:
Opinberir aðilar sannfærast, safnráð, safnarar,
fagurkerar sannfærast, já og uppboðshaldarar slást
í dansinn, - þar til allir menningarpáfarnir eru í
sæluvímu saman. Og markaðslistamennirnir sætt-
ast við örlög sín og ríkjandi ástand þar til yfir lýkur.
Dorothy Iahnohe
12