Lystræninginn - 01.04.1978, Side 16
Blakta fánar
rauðir yíir járnlitum líkneskjum,
hlægilegir eru löngu dauðir keisarar
steyptir í málm,
tindátar
keisurum í dauðateygjum
til huggunar,
tindátar
sósíaldemókrötum í valdastólum
til fordæmis,
tindátar
undir rauðum fánum.
Götur Pétursborgar eru lifandi,
verkamennirnir hafa yíirgeíið verksmiðjurnar,
járnið bíður nýs lífs,
vopnin
til verkalýðsins.
Dögun
og sumar
fullt af óvissu,
sumar,
sósíaldemókratarnir
tvíhöíða
vakna,
steinrenna,
sumar
og fólkið
milli verksmiðjunnar og götunnar,
þetta sumar,
sósíaldemókratar í valdastólum
frá orði
til verks,
frá verkalýðnum til borgaranna,
þetta rauða sumar,
fólkið
í verksmiðjunum til valdsins,
sósíaldemókratarnir tvíhöíða,
steinrunninn örn
í vinnulausri hendi borgarans,
þetta rauða sumar:
völdin til ráðanna!
16