Lystræninginn - 01.04.1978, Qupperneq 24
II
Ragnar sleit upp nokkur blóm á blettinum við
Hraunbæ 96. Hann var líkastur kálfi sem hleypt er
út að vori. Hann lagði blómin frá sér og stóð á
höndum á gangstéttinni og blístraði; tók tilhlaup
og stökk yfir snúru sem strengd var á milli tveggja
staura á blettinum.
- Nýtt íslandsmet! Nýtt hraunbæjarmet! hróp-
aði Ragnar um leið og hann tók blómin upp af
gangstéttinni. Hann kom blístrandi inní eldhúsið í
íbúð sinni með blómin í hendinni, settist við eld-
húsborðið á móti eiginkonu sinni Guðríði Glúms-
dóttur og sagði.
- Sæl elskan. I love you darling. Fæ ég ekki einn
koss elsku krúttið mitt.
- Það er naumast það liggur vel á mínum manni
í dag. Þú hefur þó ekki fengið stöðuhækkun eða
hvað? Vannstu kannski í Happdrætti Háskólans?
Þú hlýtur að hafa unnið einhvern sigur.
- O, nei, nei, Guðríður mín, ég hef hvorki fengið
stöðuhækkun eða unnið í happdrætti. Eghefunnið
persónulegan sigúr. Sigrast á hlédrægni minni og
feimni. Eg hefsemsagt ákveðið að bjóða mig fram í
prófkjöri til Alþingis. Eg hef nú loks ákveðið að
gerast stjórnmálamaður. Eg hef heimsótt þing-
húsið og myndað alþingismenn að störfum, skoðað
húsið í krók ogkima enda tímabært þarsem ég mun
starfa á Alþingi næstu árin. Jæja, hvernig Iíst þér á
elskan mín? Ertu ekki stolt af eiginmanninum?
- Stolt! Eg veit varla hvað ég á að segja við
slíkum tíðindum. Þú hefur aldrei minnst á það áður
að þú ætlaðir að gerast stjórnmálamaður. Er
einhver framtíð í þessu?
- Framtíð! Hvernig spyrðu manneskja! Einhver
framtíð!
- Já, ég spyr nú bara svona. Ekki veit ég hvernig
þingmenn starfa Ragnar. Er nokkur furða þótt ég
spyrji?
- Nei, það er kannski engin furða þótt þú spyrjir
elskan mín. Þú sem ert í eldhúsinu kvölds og
morgna. Við stefnum hátt Guðríður. Við stefnum
að því að eignast fasteign á Arnarnesinu viðsjóinn.
Hvað sagði ekki skáldið: Hafið lokkar og heillar.
Við stefnum að því að kaupa Range Rover jeppa,
að fara utan einu sinni á ári minnst. Við ætlum að
lifa einsog manneskjur meðan tækifæri gefast. Það
er ekkert líf, að búa í þriggja herbergja íbúð á
neðstu hæð í blokk. Einbýlishús er framtíðin og það
sem koma skal. Einbýlishús með útisundlaug og
öðrum þægindum samkvæmt kröfu tímans. Sem-
sagt; Ragnar Sigurðsson og Guðríður Glúmsdóttir
stefna á tindinn. Lífsgæðatindinn.
- Alltílagi, við stefnum á tindinn. Ragnar,
hefurðu nokkuð gleymt að taka pillurnar í dag,
þessar róandi. Þú manst hvað læknirinn sagði
góði minn þegar þú fékkst brjálæðiskastið síðast og
mölvaðir rúðuna í svefnherberginu og reyndir að
drekkja þér í baðkerinu. Hann bað þig að forðast
allt stress, alla spennu. Þú hefur því miður ekki
verið of góður á taugum undanfarið Ragnar minn.
Tókstu pillurnar í morgun? Þú ert eitthvað svo
spenntur.
- Æjá, ég gleymdi að taka pillurnar mínar í
morgun en ég tek þær inn á eftir. Annars hefur
bölvaður karlskunkurinn ekki alltaf rétt fyrir sér
með þessar pillur en það er nú einusinni atvinna
hans að koma taugaróandi pillum ofaní fólk. Hann
hefur góðar tekjur af slíku Guðríður mín.
- Segðu mér eitthvað frá starfi alþingismannsins
Ragnar. Eg er orðin voðalega spennt elskan mín.
Kannski þú sért loksins að finna atvinnu við þitt
hæfi.
- Starf alþingismannsins er heillandi verkefni
góða mín. I Alþingishúsinu gerast hlutirnir, þar er
ráðið málum þjóðarinnar og þar vil ég starfa og
hvergi annarsstaðar. Eg er orðinn þreyttur á
helvítis sölumennskunni sem er virkilega mann-
skemmandi starf. Hið háa Alþingi er helsta stofnun
þjóðarinnar og elsta. Þar verður fjármáláfrum-
varpið til, reyfari ársins einsog Snorri Þór Guð-
mundsson frændi minn komst að orði í sjötugs-
afmæli sínu um daginn. Snorri lánar mér milljón í
baráttuna ef ég þekki frænda rétt. Hann á nóg af
peningum.
Hvernig eru þið Snorri aftur skyldir Ragnar
minn og afhverju fékk ég ekki að koma með í
sjötugsafmælið væni minn?
- Við Snorri Þór skyldir spyrðu. Nú hann er
hálíbróðir hans pabba heitins. Þeir er synir hans
Guðmundar bruggara sem bruggaði mest allra í
gamla daga. Sá hefur nú lifað fjölbreyttu lífi.
Einusinni var hann kommi en nú er hann einn
ríkasti maður landsins. Eg hef alltaf haldið mikið
uppá frænda. Hann er mín fyrirmynd. Eg býst við
að hann Ijármagni baráttu mína fyrir öruggu þing-
sæti; tel það raunar víst. Ætli hann bjóði mér ekki í
Frímúrararegluna. Þeir eru komnir þangað inn
flestir frændur mínir t.d Pétur Diðrik hæstarétt-
arlögmaður, gamall nasisti. Já afmælið góðan mín.
Því miður er Snorri þannig gerður að hann vill
aðeins frændfólk sitt af karlkyni í afmælisveislur
sínar, hefur aldrei haft neitt álit á kvenfólki nema
konu sinni sem hann dýrkar.
- Konan hans er auðvitað voðalega íín frú.
Hvernig bíl eiga þau?
- Konan hans, jújú hún er fín frú en þú verður
enn glæsilegri krúttið mitt þegar ég hef efni á að
kaupa á þig pelsana. Þau eiga fjóra bíla: tvo Range
Rover jeppa, nýjan Citreon glæsilegan vagn ogsvo
á strákurinn Volkswagen.
- Veistu það Ragnar að mig langar í svartan
loðfeld en ekki fyrr en þú verður orðinn þing-
maður. Svo vii ég líka eignast góða samkvæmis-
kjóla elskan mín.
- Koma tímar koma ráð Guðríður Glúmsdóttir.
Þegar ég hef efni á verður þú einsog upplýst jólatré
elsku krúttið mitt, sagði Ragnar og kleip í aðra rass-
kinn Guðríðar.
24