Lystræninginn - 01.04.1978, Síða 33
maður 2: (æstur) þagnað út fer ég aldrei aftur
maður 1 og 3: nei
(þögn)
maður 3: þó er gott að vita af þessum möguleika
(maðurinn og konan færa sig einu skreíi nær hvort
öðru)
maður 1: usshh
(þögn)
(mennirnir við borðið stara á hurðina til hægri (séð
frá sal), fullir eftirvæntingar og þeir spyrna
fótunum í gólfið líkt og í viðbragðsstöðu)
maður 3: nei, hann ætlar ekki að banka
maður 1: nei ekki núna, en það kemur
maður 2: andskotinn
maður 3: (við mann 2) þú ættir ekki að verasvona
óþolinmóður
maður 2: ég er búinn að vera hér nógu helvíti
lengi
maður 1: ég er þó búinn að vera hér lengst
maður 2: andskotinn hafi það, þú ert bara ekki
nógu fljótur
maður 1: hinir hafa alltaf verið fljótari
maður 3: röðin kemur nú brátt að okkur
maður 1: já, það ætti líklega að fara að koma að
því, loksins
(þögn)
maður 3: (dregur þrjú spil) pass
(þögn)
maður 3: það hefur enginn bætst í okkar hóp lengi
maður 1: mjög lengi
(þögn)
maður 3: hvað ætli að hafi gerst þarna úti?
maður 2: mér er andskotans sama, ólsen ólsen!
(um leið er barið tvö þung högg, sem drynja um
herbergið, á dyrnar til hægri (séð frá sal), og
mennirnir þrír spretta upp frá borðinu og hlaupa
að hurðinni sem opnast sem snöggvast, manni 2
sem sat íjærst hurðinni tekst að verða fyrstur og
smeygja sér innum dyrnar, með því að grípa í hina og
ryðja þeim frá, hurðin skellur aftur á hæla honum,
hinir tveir snúa vonsviknir aftur að borðinu, taka
upp spilin, fitla við þau og látast vera að spila)
maður 1: sá var ákveðinn í að komast inn
maður 3: já hann vissi hvað hann vildi
maður 1: ert þú í vafa
maður 3: ég hélt að þú þyrftir ekki að spyrja mig
að því, ég sefn hef verið hér svo Iengi, eins og þú
veist
maður 1: já þú værir líklega farinn út ef þú værir í
vafa
maður 3: nei, þó ég væri í vafa þá færi ég samt ekki
út, í þetta andskotans ástand
maður 1: var það slæmt þegar þú fórst
maður 3: það var djöfullegt, maður gat ekkert
gert, hinir voru búnir að leggja allt undir sig
maður 1: það var eins þegar ég fór, hvergi staður
til athafna
maður 3: þessi helvítis heimur, eins og maður
hefði þó getað skemmt sér þar
maður 1: já, ef maður hefði orðið ofaná
maður 3: og með smá heppni, en hinir eru fastir í
sessi og eru ekkert að gefa það eftir sem þeir hafa
sölsað undir sig
maður 1: nei, þeir halda fast um sinn hlut
maður 3: þessir andskotans glæpamenn
maður 1: það gengur svona, sumir verða ofaná og
aðrir verða undir
(þögn)
maður 3: þeir troða mann niður í svaðið, þú
hefðir átt að sjá hvernig þeir nutu þess að troða
mann niður í svaðið
maður 1: ætli ég kannist ekki við það
maður 3: það var beinlínis nautn hjá þeim að
trampa á manni og sýna yfirburði sína
maður 1: það eru margir sem ekki hafa þolað þetta
maður 3: og hvað getur maður þá gert annað en
flúið til hans
maður 1: það er það eina sem hægt er að gera
(þögn)
maður 3: hvað heldurðu að taki við þegar við
loksins komumst inn til hans, heldurðu að það verði
nokkru betra
maður 1: jú, það er örugglega miklu betra en að
vera þarna úti
(þögn)
maður 3: ætli hann fari ekki að banka bráðum
maður 1: vertu bara rólegur, hann bankar
maður 3: hvernig er hægt að vera rólegur, það er
ekki mikið betra að hanga hér en að vera þarna úti
maður 1: það þýðir ekkert að vera með æsing, hann
bankar þegar hann bankar, og það er ekkert sem við
getum gert nema bíða
(þögn)
maður 3: þessi sem var hérna áðan hefur aldeilis
verið búinn að fá nóg af verunni þarna úti
maður 1: já, svo til nýkominn hingað og svo ruddi
hann okkur frá og tróð sér inn
maður 3: hann var ákafur í að komast til hans sem
fyrst
(þögn)
maður 1: mér finnst eins og í seinni tíð að þeir sem
koma hingað séu mun ákafari í að komast til hans en
þeir voru hérna áður fyrr
maður 3: og það táknar ekki nema eitt, og það er
að ástandið fari stöðugt versnandi þarna úti
maður 1: það er líklega rétt hjá þér
maður 3: þeir hrinda manni frá með stöðugt
meira offorsi, þessir djöflar
maður 1: já, við erum heldur ekki nógu ákveðnir í
að ryðja þeim burt
maður 3: við erum alltof linir við þá, og svo er ég
bara svo helvíti seinn á mér
maður 1: það er ég líka, og þess vegna er ég nú
búinn að vera hér allan þennan óra tíma
maður 3: varstu kominn hingað löngu áður en ég
kom
maður 1: ég hef verið hér lengi
maður 3: séð margt
33