Lystræninginn - 01.06.1982, Page 6
G0irlougur Mcignússon:
Hvítliðar
loksins
loksins
feingju slordónarnir
á kjaftinn
rætast
allir rúnkdraumarnir
síðan stelpurnar neituðu
að fylgja þeim heim
eftir stríðsmyndirnar
loksins
loksins
feingju slordónarnir
á kjaftinn
sveifluðu
rakkústinum
og slettu
hörkutólsgrettum
í speigilinn
loksins
loksins
feingju slordónarnir
á kjaftinn
teinréttir
teygðu upp arminn
og þrömmuðu gæsaganginn
inn til forstjórans
loksins
loksins
feingju slordónarnir
á kjaftinn
Tri^ggvi V. Líndol:
Kúrckinn
Vorið: Hjartað bullaði sem eimreið.
Hljóðhimnurnar börðu stríðsdans.
Vindurinn rifaði raddböndin
eins og segl á skonnortu.
Spark: Gljáandi blikkfata hraut
glamrandi. Hvít mjólk freyddi á dökka
mold. Faðirinn:
Sonur; ertu ekki lengur hamingjusamur
með moldinni? Gleðstu ekki lengur
yfir jörðinni?
Afleiðing: Burt frá skítabrúnum akrinum,
burt frá brenngulu heyinu.
Örlög: í haustrigningunum síðasta ár,
hékk hann dauður í gaddavírnum.
Guðni Mor Hsnningsson:
fiusturstræti
Á gangstéttinni
tifa tuskudúkkurnar
alltof hratt
eftir útlitinu að dæma.
Gljápíkurnar eru einsog
hengdar uppá þráð
strengdan mjög.
Stressararnir eru með
slaufuklædda eigendurna
á hraðferð inní
Lansann á síðasta degi.
Vísir, Dagblaðið
á föstudögum Helgarpósturinn.
Hjálpræðisherinn er meiraðsegja
hættur að biðja fyrir okkur
hvað þá að
syngja sálm numer fire.
Jónos Friðg0ir Glíosson:
/
fi fullu gosi
Hann súmmaði sér
á fullu gasi
beint á barinn
kýldi á einn
slokraði honum
alveg á nó tæm.
Feisaði pípúlið
pæld’í píkunum
sá’ana strax
— ofsaleg gella.
Negld’ana á nóinu
alveg að flippa
varð að meka’ða.
Þreif ana til sín
spænd’ana úr
lagð’ana flata
hnykkti inn úr
ældi á nóinu.
Flippaði út.
Nýjan í eftirrétt.
6