Lystræninginn - 01.06.1982, Qupperneq 16

Lystræninginn - 01.06.1982, Qupperneq 16
RUT: Hvernig veistu það? STELLA:Ég sá þegar hann fór. RUT: Ertu viss um að það hafi verið hann? STELLA: Er það ekki maðurinn sem þú komst með hingað — sem þú varst með í grísaveislunni. RUT: Það er hann. Fór hann einn? PÉTUR: Við höfum ekki talað saman áður. NÍNA: Við höfum ekki gert það. Þetta er stór hópur. PÉTUR: Ég hefveitt þér eftirtekt. NÍNA: Já, einmitt. PÉTUR: Þú ert hlédræg. NÍNA: Erég það? PÉTUR: Ég kann vel við fólk sem er hlédrægt. STEFÁN: Það hlýtur einhver að vera þarna inni. STELLA: Heyrist nokkuð? JÓN: Ertu einhvað óhamingjusöm? ELIN: Ég er ekki að segja það. STELLA: Ég heyri ckkert. Heyrið þið? PÉTUR: Ég hefáhuga á að kynnast þér. NÍNA: Einmitt. JÓN: Hann elskar þig. ELÍN: Af hverju sló hann mig þá? JÓN: Kannski einmitt afþví hann elskar þig. NÍNA: Þú slóst konuna þína. PETUR: Hún hagaði séreinsog kjáni. NÍNA: Heldurðu að þú eigir að slá hana fyrir það?. PÉTUR: Þetta erasni. NÍNA: Talarðu svona um konuna þína? PÉTUR: Þú þekkir hana ekki. NINA: Hún er konan þín. PÉTUR: Ég þoli hana ekki. NÍNA: Af hverju ertu þá giftur henni. PÉTUR: Ég veit það eiginlega ekki. NÍNA: Þú hefðir átt að hugga hana. ELÍN: Hann getur stundum verið svo hrjúfur að ég verð hrædd við hann, en stundum getur hann grátið einsog barn — Það eru svo miklar andstæður í honum. En hann lætur mig aldrei vanta neitt. Hann er agalega duglegur. Við eigum stórt hús og tvo bíla og við förum í frí tvisvar á ári. STELLA: gengur um meb drykki Fáið ykkur drykki. RUT: Veistu að ég held að þú sért góður maður. STEFÁN: Af hverju heldurðu það? RUT: Þú hefur þannig svip. STEFÁN: Ég hef nú aldrei fengið neitt sérstakt orð fyrir að vera góður. RUT: Kannski ertu vanmetinn. Það er margt fólk van- metið. Ertu giftur? STEFÁN: Konan mín er þarna. RUT: Er þetta hún? STELLA: Ætlarðu ekki að fá þér drykk? NINA: Þakka þér, ómögulega. PÉTUR: Heldurðu að þú fáir þér ekki drykk. RUT: Viltu kyssa mig? STEFÁN: Finnst þér það viðeigandi? ELIN: Ertu aldrei neitt afbrýðisamur útí konuna þína? JÓN: Ekki alvarlega. ELIN: Hún gefur þér kannski aldrei tilefni til þess. JÓN: Ekki svo ég viti. RUT: Trúirðu því að ég hefaldrei haldið framhjá — nema kannski einu sinni. — Það getur alltaf hlaupið snurða á þráðinn. STEFÁN: Þó það nú væri. RUT: Ertu hamingjusamur? STEFÁN: Ég mundi segja það. RUT: Þú lítur kannski ekki á aðrar konur. STEFÁN: Svona einsog gerist. Maður er mannlegur. RUT: Hefurðu haldið framhjá? PÉTUR: Það er eitthvað fínlegt við þig. NÍNA: Ég þakka. PÉTUR: Ég þoli ekki gróft fólk. NÍNA: Ekki það? PÉTUR: Ég hugsa að við eigum ýmislegt sameiginlegt. NÍNA: Hvað ætti það að vera? PÉTUR: Eigum við ekki að fá okkur sæti? NÍNA: Mér finnst betra aðstanda. PÉTUR: Mig langar til að bjóða þér út. NÍNA: Ég er gift. PÉTUR: Ég veit það. NINA: Ég fer ekki út nema með manninum mínum. PÉTUR: Hann þarfekki aðvitaþað. NINA: Ég fer aldrei á bak við hann. PÉTUR: Þú segir mér það. NÍNA: Þú getur haldið það sem þú vilt. PÉTUR: Ég gæti trúað að þú værir ekki alltof ánægð í hjónabandinu. NINA: Ég ætla ekki að fara að skrifta fyrir þér. STELLA: við Rut Stefán er góður vinur minn. Er það ekki satt? STEFÁN: Það er alveg satt. Stella og maðurinn hennar eru bestu vinir okkar hjónanna. Við komum hingað saman. RUT: Mér finnst hann ægilega sætur. STELLA: Hann er yndislegur maður. RUT: Ég held bara að hann sé svolítið feiminn. STEFÁN: Ég hef nú ekki þótt feiminn hingað til. RUT: Hann er þá kannski bara feiminn við mig. STEFÁN: Það skyldi þó aldrei vera. PÉTUR: Þú dansar, er þaðekki? NÍNA: Það kemur fyrir. ELÍN: Sérðu hvað ég er brún? JÓN: Ég sé það. ELÍN: Sérðu hérna? JÓN: Þú ert orðin dökk. ELÍN: Eg ligg allan daginn og samt brenn ég aldrei. JÓN: Það er ekki furða, ef þú kemur hingað tvisvar á ári til að liggja í sól. ELÍN: Sérðu hérna. JÓN: Þú þarft ekki að sýna mér meira. ELIN: Svonaerégöll. Þéreralvegóhættaðkomavið mig. PÉTUR: Þú dansar vel. NÍNA: Þakka þér. ELÍN: Finnurðu hvað húðin er mjúk? JÓN: Hún er einsog silki. ELÍN: Má ég sjá hvað þú ert brúnn? Hnepptu skyrtuna frá. RUT: Kysstu mig. — Viltu ekki kyssa mig? STEFÁN: Þú ert alltof bráðlát. STELLA: Hann kyssir mig.— Erþað ekki Stefán? Stefán kyssir Stellu. RUT: Það er aldrei. STELLA: Ég vissi það. RUT: Ekki átt þú hann. STELLA: Hann kyssir mig fyrir það. 16

x

Lystræninginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.