Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Síða 2
Helgarblað 8.–11. janúar 20162 Fréttir
Svefndrukkinn
ók á staur
Lögreglu var tilkynnt um um-
ferðaróhapp rétt eftir miðnætti
aðfaranótt fimmtudags þegar
ökumaður ók beint á staur. Sá
útskýrði óhappið með þreytu og
sagðist líklega hafa sofnað undir
stýri. Maðurinn meiddist ekki við
áreksturinn.
Annar ökumaður ók á þrjár
kyrrstæðar bifreiðar og stakk
svo af ásamt farþega sem var
með honum í bílnum. Lögreglan
stöðvaði skömmu síðar ökumann
og farþega og handtók þá, en
þeir eru grunaðir um verknað-
inn. Ekki fylgdi þó sögunni hvort
ökumaðurinn hefði einnig verið
sofandi, þó aksturslagið benti til
þess.
Kristín er
Vestfirðingur
ársins
Sundkonan Kristín Þorsteins-
dóttir er Vestfirðingur ársins
2015. Kristín hlaut yfirburða-
kosningu í valinu sem fór fram á
vefnum bb.is í desember. Í öðru
sæti var Þröstur Leó Gunnarsson,
sjómaður og leikari. Kristín setti
tvö heimsmet og átta Evrópumet
á EM í sundi einstaklinga með
Downs-heilkenni í vetur. Hún
vann til fimm gullverðlauna
auk silfur- og bronsverðlauna á
mótinu.
„Bullkröfur“ en ekki
raunverulegar skuldir
Lýstar kröfur í þrotabú Sigurðar Einarssonar námu 254 milljörðum
M
eginmálið í þessu er að
skiptastjóri tekur ekki af-
stöðu til réttmætis þessara
krafna og það segir allt
sem segja þarf,“ segir Sig-
urður Einarsson, fyrrverandi stjórn-
arformaður Kaupþings, um þær
furðuháu kröfur sem lýst var í þrota-
búa hans upp á ríflega 254 milljarða
króna. Skiptum er lokið á þrotabúinu
en DV greindi fyrstur fjölmiðla hinn
25. september síðastliðinn að Sigurð-
ur, sem nú afplánar fjögurra ára fang-
elsisdóm á Kvíabryggju, hefði lýst
sig persónulega gjaldþrota. Sigurð-
ur segir í samtali við DV að kröfurn-
ar sem tiltekin félög og bankar lýstu
í þrotabúið séu ekki raunverulegar
skuldir hans við þá.
„Bullkröfur“
Það var Vísir sem greindi fyrst frá
skiptalokum á þrotabúi Sigurðar á
fimmtudag þar sem fram kom að
lýstar almennar kröfur í þrotabúið
hefðu numið 254.388.227.406 krón-
um sem ekkert fékkst upp í en 38,3
milljónir króna hefðu fengist upp í
lýstar veðkröfur, eða sem nemur 3,4
prósentum af lýstum veðkröfum.
Sigurður hafði sjálfur greint frá því í
viðtali við Áramótablað Viðskipta-
blaðsins, 30. desember síðastliðinn,
að kröfur í bú hans hljóðuðu upp á
250 milljarða króna. Hann sagði að
í hans huga væru þetta „bullkröfur
sem aldrei fást greiddar“.
Skiptastjóri upplýsir að stærstu
kröfuhafar í þrotabú Sigurðar hafi
verið aflandsfélagið Chesterfield
United með 99 milljarða króna,
Deutsche Bank með 73 milljarða
króna, Murray Holdings með 58
milljarða króna og Arion banki 21
milljarð. Helgi Jóhannesson sagði í
samtali við dv.is á fimmtudag að þar
sem engar eignir hafi fundist í þrota-
búinu hafi ekki verið tekin nein af-
staða til þessara krafna.
„Þetta eru einfaldlega þær kröfur
sem þessir einstaklingar telja sig eiga
á hann,“ sagði Helgi og bætti við: „Ég
tek enga afstöðu til krafnanna enda
eru engar eignir í búinu. Þar af leið-
andi er ekki lagt í að fara að greina það
sérstaklega. Ég set þetta einfaldlega
inn á kröfuskrá eins og þessu er lýst.
Það er ekki búið að dæma þessar kröf-
ur og þar af leiðandi get ég ekki sagt til
um hvort þetta er rétt eða ekki.“
Ekki raunverulegar skuldir
Aðspurður hvort um sé að ræða
raunverulegar skuldir hans við þessa
aðila segir Sigurður: „Nei, þetta er
það ekki.“
Þannig að Deutsche Bank lánaði
þér aldrei 73 milljarða? „Nei, nei. Þeir
gerðu það ekki.“
Sigurður kveðst aðspurður ekki
vita hvort upphæðir krafnanna megi
rekja til tjóns sem ofangreindir aðil-
ar telji sig hafa orðið fyrir vegna starfa
hans hjá Kaupþingi og hvort frekar sé
því um að ræða táknrænan gjörn-
ing, þar sem þeir vissu að skiptastjóri
þyrfti ekki að taka afstöðu til réttmæt-
is krafnanna.
„Ég veit það ekki. Ég held að þú
hefðir bara getað gert kröfu þarna. Þá
væri bara Sigurður Mikael með kröfu
þarna í búið,“ segir Sigurður kíminn.
En þú skuldaðir þessum aðilum
ekkert svo þú vitir? „Nei, nei. Þetta
snýst ekki um það.“
Aðspurður um tengsl hans við
Chesterfield United og Murray
Holdings og þessa helstu kröfuhafa
segir Sigurður: „Ég hef engin tengsl
við þessi félög.“
Hann kveðst standa við það sem
hann hefði áður sagt, að um væri að
ræða bullkröfur. En vegna þess að
þessum kröfum var lýst í þrotabú-
ið, hvað svo sem býr að baki þeim,
þá gerir það gjaldþrot Sigurðar að
langstærsta persónulega gjaldþroti
Íslandssögunnar. Björgólfur Guð-
mundsson hafði þar áður átt þann
titil skuldlaust og með nokkrum yf-
irburðum en lýstar kröfur í bú hans
námu 85 milljörðum þegar skiptum
lauk í maí 2014.
Chesterfield-fléttan fyrir dómi
Félagið Chesterfield United hef-
ur áður komið upp í umræðunni
hér eftir hrun en um er að ræða fé-
lag sem var í eigu bresku kaupsýslu-
mannanna Kevins Stanford og Tony
Yerolemou, tískukeðjudrottningar-
innar Karen Millen, og Íslendings-
ins Skúla Þorvaldssonar, sem oftar er
kenndur við Hótel Holt.
Var meðal annars fjallað um fé-
lagið í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis. Viðskipti Kaupþings og félags-
ins enduðu fyrir dómi sem svokallað
Chesterfield-mál, en aðalmeðferð í
því hófst 8. desember síðastliðinn.
Þar eru Hreiðar Már Sigurðsson
og Sigurður Einarsson ákærðir fyr-
ir stórfelld umboðssvik vegna hátt
í 70 milljarða króna lánveitingar til
aflandsfélaganna Chesterfield og
Partridge Management Group, á ár-
inu 2008. Partridge var í eigu Ólafs
Ólafssonar, sem afplánar nú, líkt og
Sigurður og Hreiðar, dóm sem þeir
hlutu í Al Thani-málinu. Deutsche
Bank hafði aðkomu að áðurnefndum
viðskiptum í Chesterfield-málinu. n
„Bullkröfum“ lýst í búið Sigurður Einarsson segir að engar raunverulegar skuldir séu að baki lýstum kröfum stærstu kröfuhafa í þrotabú
hans, sem nema hundruð milljarða króna. Mynd Sigtryggur Ari
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is „Ég hef engin tengsl
við þessi félög
J
ens Gunnarsson lögreglumað-
ur, sem sat í gæsluvarðhaldi á
Litla-Hrauni og í einangrun, er
grunaður um óeðlileg tengsl við
brotamenn. Samkvæmt heim-
ildum dv.is er Jens grun-
aður um að hafa tekið við
greiðslum í skiptum fyrir
upplýsingar úr fíkniefna-
deild lögreglunnar. Ör-
uggar heimildir DV herma
að lögreglan hafi grun um að
um fastar mánaðarlegar greiðsl-
ur sé að ræða sem nema um mánað-
ar grunnlaunum almenns lögreglu-
manns, eða í kringum 300 þúsund.
Ekki er vitað hversu lengi þessar
meintu greiðslur hafa staðið yfir.
Það vakti mikla athygli þegar
greint var frá því að lögreglumaður
sæti í einangrun á Litla-Hrauni. Jens
var látinn laus á fimmtudag. Hann
neitar sök. Þá hefur annar maður ver-
ið handtekinn í tengslum við málið.
Dv.is hefur rætt við tvo fyrr-
verandi fíkniefnasölumenn
sem greina frá því að ekki sé
nýtt af nálinni að lögreglu-
menn taki við greiðslum
gegn upplýsingum, þá til
dæmis til að vara við að leita
eigi á heimili viðkomandi.
Samstarfsfólk Jens er í áfalli
og hefur þegið áfallahjálp eftir að mál-
ið kom upp. Sigríður Björk Guðjóns-
dóttir lögreglustjóri segir að málið
hafi komið samstarfsmönnum í opna
skjöldu og er Jens lýst sem yfirveguð-
um og faglegum og hingað til talinn
stálheiðarlegur í öllu sínu starfi. n
Sagður hafa þegið fé
úr undirheimunum
Jens gunnarsson lögreglumaður sat í gæsluvarðhaldi