Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Síða 14
14 Skrýtið Helgarblað 8.–11. janúar 2016
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...
Flóttamenn í slag við þýsku lögregluna Fréttir af
flóttafólki voru tíðar árið 2015. Margar fréttir hafa verið sláandi og hreyft við fólki sem hefur
reynt að bregðast við og koma bágstöddum til aðstoðar. Aðrir hafa notað tækifærið og sagt
ósannar fregnir af flóttafólki. Það gerðist meðal annars þegar flóttamenn í Þýskalandi voru
sagðir hafa lent í slagsmálum við lögreglu. Flóttamennirnir áttu að hafa veifað ISIS-fána og
voru birtar myndir sem sögðust tengjast árásinni. Myndirnar voru frá árinu 2012, fólkið á
myndinni var ekki flóttafólk heldur mótmælendur og fáninn á myndinni tengist ISIS ekki.
Við féllum fyrir þessu
n Bullið sem lék lausum hala á netinu 2015 n Gulllest, ISIS-bani og alltof lítið af Gary
Þ
að er sjaldnast skortur á frétt-
um í heiminum, en stundum
gerist það þó að flökkusögur
og lygafréttir komast í fjöl-
miðla og er slegið upp sem
sannleik. Erfitt getur reynst að leið-
rétta bullið eftir birtingu og breiðast
tíðindi af þessum toga gjarnan hratt
út. Þetta eru nokkrar „fréttir“ sem
einhverjir féllu fyrir á árinu 2015, en
reyndust vera rakalaust bull. n
Nasistagulllestin í Póllandi Ekki er langt síðan tveir menn, sem eltast við fjársjóði og gersemar, sögðu
heimsbyggðinni, með aðstoð fjölmiðla, að í Póllandi væri að finna lest, troðfulla af gersemum, gulli og peningum. Hún átti að vera grafin rétt
við pólska bæinn Walbrych. Það tók ekki langan tíma fyrir gullgrafara að hlaupa af stað og mæta til Walbrych. Eðli málsins samkvæmt
reyndist enga lest vera að finna þar.
Mennirnir sem voru skotnir í mæðrum sínum
Árið 2014 varð myndbandið „10 klukkustundir sem kona í göngutúr í New York“ afar vinsælt,
en það sýndi konur verða fyrir kynferðislegri áreitni á götum New York-borgar. Að sögn var
annað myndband gert, í Perú, þar sem menn voru látnir áreita konur á svipaðan hátt, nema
þær áttu að vera mæður þeirra. Hið síðarnefnda reyndist vera uppspuni og voru það leikarar
sem þar brugðu á leik, en þó til að vekja athygli á kynferðislegri áreitni og þeirri meinsemd
sem henni fylgir.
Eiturlyfjabarón í
stríð við ISIS Mexíkóski
eiturlyfjabaróninn El Chapo er einn
ógnvænlegasti maður jarðar og hann óttast
eflaust flestir eftir að hafa farið yfir ferilskrá
hans. Þegar fjölmiðill greindi frá því að El
Chapo hefði lýst yfir stríði gegn hryðjuverka-
samtökunum ISIS (Daesh) þótti það því afar
fréttnæmt og margar fréttastofur gerðu
fréttina að sinni eigin. Það sem enginn
varaði sig á var að „fjölmiðillinn“ reyndist
vera grínsíða, sem kallast Thug life videos.
Það var því lítið að marka söguna.
Parísarárásirnar
skipulagðar á Play
Station 4 Forbes birti fyrirsögn sem
hristi upp í mörgum. Þar kom fram að
árásirnar í París síðastliðið haust hefðu verið
skipulagðar af hryðjuverkamönnum með
notkun PlayStation 4-leikjatölvu. Þetta olli
miklu uppnámi, en eins og oft áður sagði
fyrirsögnin bara hálfa söguna, og raunar
lygasögu. Reyndin var sú að það var ekki
blaðamaður Forbes sem skrifaði fréttina og
reyndist þetta vera bloggpistill frá bloggara á
Forbes sem hafði mislesið lögregluskýrslu.
Hjúkrunarkonu sló
niður af ebólu Í október 2015
var Pauline Cafferkey, hjúkrunarfræðingur
sem starfaði með ebólusmituðu fólki í
Afríku og hafði sjálf smitast af ebólu og
verið hætt komin en sigrast á henni, flutt í
skyndi á sjúkrahús. Fréttir bárust af því að
henni hefði slegið niður af ebólunni og væri
aftur fárveik og vart hugað líf. Cafferkey var
vissulega sárlasin, en þó ekki af völdum
ebólu heldur heilahimnubólgu.
Donald Trump
kallaði repúblikana
heimska Í bandarískum fjölmiðlum,
árið 2015, voru fáir jafn fyrirferðarmiklir og
Donald Trump, sem hyggur á forsetafram-
boð í nóvember. Hann kemur úr ranni
Repúblikanaflokksins og vonast til að verða
forsetaefni hans. Hann hefur farið mikinn
og þarf í raun ekki að kaupa sér neinar
auglýsingar, því allt sem hann segir og gerir
hefur verið fréttaefni. Hann hefur verið
hálfgerð vonarstjarna margra íhaldssamra
repúblikana og frétt þess efnis að hann
hefði kallað repúblikana og kjósendur
flokksins heimska komu því við kaunin á
mörgum. Var Trump sagður hafa látið þessi
orð falla í viðtali árið 1998: „Ef ég færi í
framboð, myndi ég fara í framboð fyrir
repúblikana. Þeir eru heimskasti hópur
kosningabærra manna þessa lands. Þeir
trúa öllu á Fox News. Ég gæti logið og þeir
mundu éta það allt upp sem sannleika. Ég
hugsa að vinsældir mínar yrðu miklar.“ Í ljós
hefur komið að Trump sagði þetta aldrei.
Skortur á Gary
Í mars í fyrra fengu Bretar
algjört áfall þegar greint var frá
því að nafnið Gary þætti svo
hallærislegt að það væri algjör
skortur á nýburum sem fengju
þessa nafngift. Þetta komst í
heimsfréttirnar, en það var
grínsíðan Daily Mash sem sló
þessu upp og kom á framfæri.
Það ku enginn skortur vera á því
að ungbörn heiti Gary og eflaust
hafa einhverjir foreldrar tekið
þetta til sín og nýtt sér nafnið
eftir þetta upphlaup.