Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Qupperneq 17
Umræða 17Helgarblað 8.–11. janúar 2016
Mamma mín
er ekki feit!
Ég er alls ekki
forsetaefni
Ég var í
algjöru sjokki
Sóleyju Sif blöskraði þegar ókunnug kona gerði athugasemd við holdafar móður hennar. – DVBiggi lögga útilokar framboð. – DV Diljá Guðmundsdóttir lenti í vafasömum „skutlara“ eftir að hafa beðið um far á Facebook. – dv.is
Hvar liggur ábyrgð Íslands?
V
íða um heim eru blikur á lofti.
Milljónir manna hafa flúið
heimkynni sín vegna hernað-
ar heima fyrir. Og flótta-
mannavandinn vindur upp á sig, nú
síðast í Kúrdistan.
Í öðru lagi eru illvirki hafin til skýj-
anna sem aldrei fyrr; ríki og öflugar
stríðshreyfingar beita þannig kúgun
og ofbeldi sem minnir á margt það
versta úr myrkri fortíð. Kannski ekki
að undra því þangað virðist förinni
heitið. Í vikunni kom í ljós að Sádi-
Arabar vilja ekki vera minni ofbeldis-
fantar en ISIS trúbræður þeirra og
keppinautar. Í þriðja lagi eru kjarn-
orkuvopn aftur á dagskrá. Eitt frum-
stæðasta ríki veraldarinnar gumar
af tilraunum sínum við kjarnorku-
sprengjuna en sem kunnugt er kveð-
ast Norður-Kóreumenn hafa sprengt
í tilraunaskyni í vikunni.
Getum ekki firrt okkur ábyrgð
Í öllum tilvikum eru gerendur of-
beldisins fjarri okkur landfræði-
lega en ekki er þar með sagt að við
getum firrt okkur ábyrgð. Á vanda-
málum stríðshrjáðs heims eru ekki
alltaf til einfaldar lausnir en þær eru
þó til oftar en margir vilja vera láta.
Ef allir litu í eigin barm og tækju á
þeim hluta vandans sem er að finna
heima fyrir má ætla að við byrjuðum
á því að þokast fram á við.
Flóttamannavandinn
Ég efast ekki um að það er erfitt fyrir
smáríkið Ísland að hafa sig yfirleitt í
frammi á fundum hernaðarbanda-
lagsins NATÓ þar sem ákvarðanir eru
teknar. Enda mun hafa farið lítið fyrir
okkar mönnum á NATÓ-fundinum
í Brussel í júlílok þegar Tyrkir fengu
grænt ljós á að ráðast á Kúrda til að
veikja réttindabaráttu þeirra í Tyrk-
landi. Allir sem til þekkja vita að allar
götur frá því flokkur Erdogans forseta
missti meirihluta sinn í þingkosning-
um í Tyrklandi um miðjan júní hafa
stjórnvöld staðið fyrir ofbeldishrinu
gegn Kúrdum til þess að eyðileggja
friðarferli sem nú hefur varað um
nokkurra missera skeið og orðið til
þess að Tyrkir almennt voru farnir að
líta Kúrda jákvæðari augum en áður.
Á ofbeldisöldunni sem Erdogan skóp,
reið flokkur hans síðan til valda að
nýju með hreinan meirihluta í þing-
kosningum í byrjun nóvember. Í kjöl-
far kosninganna hefur enn verið hert
á ofsóknum gegn Kúrdum í austur-
hluta Tyrklands. Í neyðarkalli sem
nýlega barst frá kúrdískum verkalýðs-
samtökum segir að tvö hundruð þús-
und manns hafi þurft að flýja heimili
sín af völdum þessa ofbeldis. Ef ekki
verður lát á má ætla að þetta flótta-
fólk leiti norður á bóginn.
Hvernig væri að erindrekar ríkis-
stjórnar Íslands hreyfðu þessu máli
á næsta NATÓ-fundi? Og það með
afdráttarlausum hætti! Það yrði lóð
á þá vogarskál að draga úr flótta-
mannavandanum.
Illvirki bandalagsríkja
Ýmsar kenningar eru uppi um hvað
valdi fjöldaaftökunum í Sádi-Arabíu
í byrjun árs. Sumir telja Sádi-Araba
vilja hleypa upp nýgerðu samkomu-
lagi Bandaríkjanna og Írans, aðrir að
þetta sé liður í innbyrðis valdaátök-
um mismunandi hópa innan Sunni-
hreyfingar Múhameðstrúar og snúist
um ítök í arabaheiminum. Enn fleiri
skýringar eru uppi. Það sem ég tel
hins vegar að við eigum að staðnæm-
ast við, er að ofbeldið í Sádi- Arabíu
er látið óátalið af hálfu bandalags-
ríkja Íslands og ekkert slíkra ríkja
hefur gagnrýnt Bandaríkjastjórn fyrir
umfangsmestu vopnasölusamninga
til Sádi-Arabíu í sögunni en síðustu
samningarnir voru undirritaðir fá-
einum dögum fyrir fjöldaaftökurnar.
Ef ISIS samtökin hefðu myrt fjörutíu
og sjö fanga á einum degi í höfuð-
vígi sínu í Raqqa í Sýrlandi og flesta
með því að höggva af þeim höfuðið
hefði verið rekið upp ramakvein í
okkar heimshluta. En þegar slíkt ger-
ist í Ryad í Sádi-Arabíu – bandalags-
ríkinu góða, heyrist hvorki hósti né
stuna. Og Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna lætur við það eitt sitja
að fordæma árás á sendiráð Sádi-
Arabíu í Íran. Hergagnasamningar
Bandaríkjanna hafa verið gagnrýndir
af hálfu Amnesty International sem
segir þá brot á ATT samningunum
sem kveða á um að sala á vopnum
sem vitað er að beitt sé gegn óbreytt-
um borgurum skuli teljast ólögleg.
Alþjóðanefnd Rauða krossins hefur
gert lista yfir eitt hundrað árásir Sádi-
Araba á sjúkrahús í Jemen. Ekki er
úr háum siðferðissöðli að detta fyrir
Bandaríkjamenn því sjálfir hafa þeir
tekið þátt í árásum á saklausa borg-
ara með drónum í Jemen og víð-
ar. Hvernig væri að erindrekar ríkis-
stjórnar Íslands hreyfðu þessu máli á
næsta NATÓ-fundi? Og það með af-
dráttarlausum hætti!
Kjarnorkusprengjan og við
Árið 1970 gekk í gildi samningur
um bann við útbreiðslu kjarnorku-
vopna. Þessi samningur endurspegl-
ar vel völdin í heiminum. Hann kveð-
ur á um að óátalið sé að fimm ríki
hafi kjarnorkusprengjur í vopnabúr-
um sínum og vel að merkja þetta eru
ríkin sem ráða lögum og lofum hjá
Sameinuðu þjóðunum með fasta-
fulltrúa í Öryggisráðinu: Bandaríkin,
Rússland, Kína, Frakkland og Bret-
land. Ekki hafa öll ríki heims undir-
gengist samkomulagið, ekki Ind-
land, Pakistan, Súdan og Ísrael en
þrjú þessara ríkja hafa komið sér upp
kjarnorkuvopnum að því er talið er.
Norður-Kórea sagði sig frá samkomu-
laginu árið 2003 og við þekkjum eftir-
leikinn sem síðast var staðfestur í
vikunni. Hvernig væri að kjarnorku-
veldin horfðust í augu við að aldrei,
ekki undir neinum kringumstæðum,
yrði forsvaranlegt að beita kjarn-
orkuvopnum, hvorki í sókn né í vörn
og að þeim beri að eyða eigin vopn-
um. Hvernig væri að erindrekar ríkis-
stjórnar Íslands töluðu slíku máli
innan NATÓ og annars staðar?
Engin lausn án lýðræðis.
Ég hef reyndar ekki trú á því að
orð okkar á fundum NATÓ breyttu
einhverju en við gætum sýnt vilja
okkar í verki með því að ganga út
úr bandalaginu eftir að á þetta
hefur verið látið reyna án árangurs.
Og varðandi hinar einföldu lausn-
ir sem vikið var að í upphafi, þá
rúmast þær undir regnhlífinni lýð-
ræði. Það er umhugsunarvert að
lausnir stórveldanna á taflborði
sýrlenskra valdastjórnmála, svo
nærtækasta dæmið sé notað, snú-
ast aldrei um þetta hugtak heldur
hvað komi hagsmunum viðkom-
andi stórveldis best. Hvernig væri
að Íslendingar gerðust málsvarar
lýðræðisins, að allar friðartilraunir
miðist við lýðræðislegar lausnir,
ekki hagsmuni Assads og Pútíns,
Obamas eða Erdogans, hvað þá
þeirra sem kunna það eitt að drepa
andstæðinga sína með sveðjum? n
Ögmundur Jónasson
þingmaður Vinstri grænna
Kjallari
„Hvernig væri að
erindrekar ríkis-
stjórnar Íslands hreyfðu
þessu máli á næsta
NATÓ-fundi?
Persónugerður markpóstur
er mælanlegur miðill og árangursríkur
www.umslag.is2010- 2014
Umslag tryggir hámarksárangur við
útsendingu markpósts
• Mismunandi skilaboð
• Mismunandi myndir
• Mismunandi markhópar
Við getum prentað nöfn og heimilisföng á allan mark-
póst. Stór og lítil upplög. Markhópalistar eru í boði sé
þess óskað eða við áritum eftir þínum excel lista.
}Ein prentun
*Samkvæmt könnun Gallup á meðal markaðsstjóra um notkun á miðlum árið 2015 mun markpóstur vera næsta val á eftir internetinu.
31%
auglýsenda ætla að
nota markpóst meira
árið 2015*
- hvað ætlar þú að gera?