Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 138
Samræði við samlokur
McDonald’s notaði árið 2005 fras-
ann „I’d hit it“ í auglýsingu sinni
um ákveðna samloku. Auglýsinga-
stofan sem sá um að búa til þessa
auglýsingu var greinilega ekki
búin að vinna heimavinnuna sína
en frasinn „I’d hit it“ vísar, eins og
glöggir lesendur hafa kannski áttað
sig á, til kynlífs. Mikið grín var
gert að þessu enda auðvitað bráð-
fyndið að heyra hamborgararisann
McDonald’s hvetja fólk til samræðis
við samlokur.
Breyttir tímar
Á sjötta áratugnum voru auglýsing-
ar töluvert öðruvísi en þær eru í dag
og það getur verið ágætis skemmt-
un að skoða ýmislegt sem þar var
haldið fram. Til að mynda aug-
lýsti 7-Up að mæður ættu að gefa
börnum sínum þennan sykursæta
gosdrykk í stað mjólkur eða að þær
ættu nú að minnsta kosti að blanda
7-Up í mjólkina svo að börnin
fengju lyst á að drekka bragðvonda
og óspennandi brjóstamjólk. Síður
skemmtilegt var þó viðhorfið gagn-
vart konum sem endurtekið birtist
í auglýsingum frá þessum tíma – til
að mynda er fræg kaffiauglýsing þar
sem eiginmaður rassskellti konu
sína fyrir að hafa ekki keypt nógu
ferskt kaffi. Mikið var gert út á það
viðhorf að húsmóðirin væri hálf-
gerður kjáni sem húsbóndinn þyrfti
sífellt að vera að skamma eins og
barn fyrir að velja vitlausar vörur.
Glæpsamlegar auglýsingar
Tískumerkið Calvin Klein birti á
tíunda áratugnum sjónvarpsauglýs-
ingar þar sem hermt var eftir klámi.
Í þeim sást fáklætt og mjög unglegt
fólk eiga í ansi tæpum samræðum
við manneskju sem var ekki í mynd.
Ekki bara vöktu þessar auglýsingar
reiði meðal fólks, heldur hótuðu
verslanir að hætta frekari viðskiptum
við Calvin Klein og meira að segja
var bandaríska alríkislögreglan FBI
komin í málið og rannsakaði hvort
þarna væri um barnaklám að ræða.
Óþægilegt svar við
óþægilegri auglýsingu
Auglýsingar sem Dolce & Gabb-
ana birtu í kringum 2007 og sýndu
fáklæddan karlmann halda konu
niðri á meðan nokkrir aðrir menn
stóðu yfir öllum ósköpunum
þóttu minna óþægilega mikið á
hópnauðgun. Talsvert var kvartað
yfir auglýsingunni og það knúði
Newsweek til að spyrja Stefano
Gabbana út í málið. Honum fannst
þetta ekkert stórmál og sagði: „Frá
bæði mannlegu og tilfinn-
ingalegu sjónarhorni
myndum við aldrei
ráðast á konur,
kynið sem við
höfum ávallt
lýst yfir ást á,
vegna þess
að heil 60%
af öllu því
sem við selj-
um á heims-
vísu fara til
kvenna. Ef ég
ætti að túlka
myndina segði
ég hana erótískan
draum, eins konar kynlífs-
leik.“ Gríðarlega óþægilegt svar við
gríðarlega óþægilegri auglýsingu.
Hamborgarajómfrúin
Burger King eyddi miklu púðri
í auglýsingaherferð sína fyrir
Whopp er-borgarann, en herferð-
in gekk undir heitinu „Whopper
Virgin“ sem mætti kannski útleggja
sem „Whopper jómfrú“ á íslensku.
Hamborgarakeðjan sendi tökulið
um allan heim í leit að fólki sem
hafði aldrei smakkað á hamborg-
ara áður – til að mynda var farið til
Transylvaníu, Grænlands og Taí-
lands. Það sem vakti hneykslun
fólks var að ekkert var minnst á
að á sumum áfangastaðanna á fólk
ekki málungi matar – sérstaklega í
Taílandi þar sem um
30% landsmanna
gætu aldrei haft efni
á að kaupa sér ham-
borgara.
Erótískt
fjöldamorð
„AIDS is a mass
murderer“ var
titill herferðar
gegn eyðnifar-
aldrinum. Mynd-
b a n d n o k ku r t
sem Regen bogen,
þýsku samtökin bak
við herferðina, sendu
frá sér hneykslaði fólk
um allan heim og var fyrir
löngu síðan tekið af YouTube.
Í myndbandinu, sem er raunar
nánast eins og ljósblátt klám, sést
par stunda kynlíf í myrku herbergi.
Skotin eru hröð og „töff“ og engin
andlit sjást fyrr en í lok mynd-
bandsins þegar kemur í ljós að
karlinn er enginn annar en Adolf
Hitler. stefanthor@frettabladid.is
Óheppilegar auglýsingaherferðir
Pepsi-auglýsingin með Kendall Jenner hefur verið mikið á milli tannanna á fólki upp á síðkastið enda þykir
hún með eindæmum óheppileg. Pepsi er þó ekki eina fyrirtækið sem hefur sent frá sér óheppilega auglýsingu.
Viðbrögð margra við ummælum Stefano Gabbana.
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r74 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
1
-B
0
9
8
1
C
A
1
-A
F
5
C
1
C
A
1
-A
E
2
0
1
C
A
1
-A
C
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K