Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.08.1976, Page 15
Skipulagsskráin er staðfest af forseta íslands og birt
í Stjórnartíðindum 11. ágúst 1964.
Eins og fram kemur í skipulagsskránni er sjóðurinn
stofnaður af Önnu Ólafsdóttur Johnsen, yfirhjúkrunar-
konu á Vífilsstöðum, sem gaf fyrstu 1000 — eitt þúsund
krónurnar, sem á þeirra tíma mælikvarða var hreint
ekki svo lítið — samsvaraði um það bil tveggja mánaða
iaunum. í 25 ára afmælishófi HFÍ, 30. nóv. 1944 (4.
tbl. Tímarits HFÍ 1944) tilkynnti Kristín Thoroddsen,
þáverandi forstöðukona Landspítalans, um gjöf Onnu
til „húsbyggingarsjóðs hjúkrunarkvenna“. Jafnframt
tilkynnti hún að Sigurður Guðmundsson klæðskera-
meistari hefði gefið kr. 5000 sem þakklætisvott fyrir
ágæta hjúkrun Margrétar Valdimarsdóttur, hjúkrunar-
konu á Sólheimum.
Þegar í upphafi var komið á sölu minningarkorta og
tekið á móli minningargjöfum. Eru minningarkort
Heimilissjóðs HFI seld á skrifstofu félagsins og hjá
hjúkrunarforstjórum nokkurra stærri sjúkrahúsa.
Ymsar aðrar fjáröflunarleiðir voru farnar, svo sem
basarar og kaffisölur. Nefnd var skipuð til að fara með
mál Heimilissjóðs og voru skipaðar í hana: Anna 01-
afsdóttir Johnsen formaður, Salome Pálmadóttir, Bjarn-
ey Samúelsdóttir, Jóna Guðmundsdóttir og Margrét Jó-
hannesdóttir. Núverandi stjórn sjóðsins skipa: Anna
Ólafsdóttir Johnsen formaður, Guðrún Arnadóttir, sem
um nokkurra ára skeið hefur gegnt formannsstörfum í
umboði Önnu, Guðrún Lilja Þorkelsdóttir, Ragnhildur
F. Jóhannsdóttir og Ingibjörg Ólafsdóttir.
A næstu árum jókst sjóðurinn jafnt og þétt. M. a. arf-
leiddi Kristjana Guðmundsdóttir hjúkrunarkona sjóð-
inn að 40 þúsund krónum í peningum og hlutabréfum,
er hún lést árið 1954. Þá hafa þau hjón Anna og Gísli
Johnsen margsinnis gefið stórgjafir til sjóðsins.
Er skipulagsskráin var staðfest var stofnfé sjóðsins
kr. 850.000. Reikningshald sjóðsins yfir árið 1975 er
birt á öðrum stað í blaðinu ásamt öðrum reikningum
félagsins.
Árið 1956 var ráðist í að kaupa íbúð í Blönduhlíð
33, einkum í fjárfestingarskyni og var íbúðin leigð út.
Árið 1963 var ráðist í húsakaup að nýju, og nú með
það fyrir augum að félagið tæki húsnæðið í sínar þarf-
ir. Var leitað eftir fjárframlögum frá félögum HFl.
íbúðin í Blönduhlíð 33 var seld og með sameiginlegu
átaki Heimilissjóðsins, stjórnar HFÍ og fjárframlögum
félagsmanna var keypt efsta hæð hússins að Þingholts-
stræti 30 og var formlega tekið við eigninni 30. nóv.
1964. Kaupverð var 2.000.000 - tvær milljónir. Bruna-
hótamat alls hússins er nú kr. 55.208.000 og er eignar-
hulti Heimilissjóðs HFÍ 17,9%. Þar hefur skrifstofa
félagsins verið til húsa síðan. Hæðin er alls 6 herbergi
og auk þess tvær góðar geymslur í kjallara, en greinar-
góð lýsing er á húseigninni í 1. tbl. Tímarits HFI 1965.
I fyrstu hafði félagið aðeins eitt herhergi auk geymslu-
plássins, hin herbergin voru leigð út. Árið 1970 tók
HFI til afnota rúmgott fundarherbergi og í ár er aftur
bætt við einu herbergi. Enn eru leigð út sem læknastof-
ur 3 herbergi. Heimilissjóður HFl rekur húsnæðið og
greiðir HFl húsaleigu til sjóðsins. Mánaðarleiga er nú
kr. 15.000.
Upphaflega hugmyndin var að stofna heimilissjóð
fyrir aldraðar hjúkrunarkonur, en sú hugmynd breyttist
hins vegar með árunum og sérstaklega með tilkomu Líf-
eyrissjóðs hjúkrunarkvenna.
Árið 1973 er 2. áfangi orlofsheimila BSRB í Munað-
arnesi var í undirbúningi ákvað stjórn Heimilissjóðs
með samþykki stjórnar HFl að leggja fram fé fyrir
einu húsi af minni gerð (30 m2) og skyldu hjúkrunar-
fræðingar, sem komnir voru á eftirlaunaaldur, hafa for-
gang að dvöl í húsinu. Hús Heimilissjóðs IJFÍ, sem er
nr. 62, var tekið í notkun í ágúst 1974. Greiðslur sjóðs-
ins fyrir húsið nema kr. 1.160.000, og af þeirri upphæð
eru nú aðeins ógreiddar kr. 170.000.
Hafa margir eldri hjúkrunarfræðingar dvalið þar, en
þeir hafa þó aldrei fullnotað húsið og hefur því fjöldi
yngri félaga notið góðs af dvöl þar. Væntanlega munu
sem flestir eldri hjúkrunarfræðingar sjá sér fært að
nota orlofshúsið. Skrifstofa HFÍ sér um leigu yfir sum-
artímann, en BSRB yfir vetrarmánuðina eins og önnur
hús bandalagsins í Munaðarnesi. Fjárhagslegan rekstur
hússins annast HFl.
Orlofshús HFi
Á þingi BSRB haustið 1966 var samþykkt ályktun,
þar sem stjórn bandalagsins var falið að beita sér fyrir
að útvega og skipuleggja land í því skyni að gefa banda-
lagsfélögunum kost á að eignast orlofsheimili.
Þegar fengið var land að Munaðarnesi í Borgarfirði
var unnið að uppbyggingu orlofsheimilanna og fyrstu
húsin afhent bandalagsfélögum laugardaginn 22. maí
1971. HFI keypti eitt hús af stærri gerð, sem er um
60 m2. Greiðslan, sem var kr. 400 þúsund, var fengin
að láni hjá Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna til 15 ára.
Árið 1973 er 2. áfangi orlofsheimila BSRB í Mun-
aðarnesi var í undirbúningi, kom til tals að HFl festi
kaup á öðru húsi með aukafjárframlögum félagsmanna,
en á fjölmennum fundi í HFÍ lagðist meirihluti gegn
því. Eins og að framan getur lagði Heimilissjóður HFI
þá fram fé fyrir einu húsi, og á félagið því tvö orlofs-
hús í Munaðarnesi.
Framh. á bls. 102.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
97