Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Page 3

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Page 3
EFNISYFIRLIT Starfsánægja þriggja starfsstétta á geðdeild Landspítala Jóna Siggeirsdóttir og Þórunn Pálsdóttir bls. 4 - Ég er sátt við stöðu félagsins í dag - Vidtal við fráfarandi formann félagsins, Sigþrúði Ingimundardóttur bls. 9 Sjúklingar með langvinna lungna- sjúkdóma - gildi og gæði lífs þeirra Jóna Valgerður Höskuldsdóttir bls. 13 Frammistöðumat á almennu hjúkrunarsviði Landspítala Lilja Jónasdóttir bls. 1 7 Atferlisaðlögun - meðferð við offitu Jóna V. Höskuldsdóttir og Stefanía Sigurjónsdóttir bls. 21 Viðbótarnám hjúkrunarfræðinga í Háskóla íslands Ragnheiður Haraldsdóttir lektor bls. 25 Háskólanám í hjúkrunarstjórnun Viðtal við Huldu Gunnlaugsdótiur bls. 28 Hugmyndir að heilsuskóla Hrönn Jónsdóttir bls. 30 Starfsmannaheilsuvernd byggð á heilbrigðishvatningu Guðmunda Sigurðardóttir bls. 34 Smitgát og sýkingavarnir Hepatitis B smit Sigriður Antonsdóttir bls. 37 Fréttir bls. 38-40 Kæru félagar. Ég þakka ykkur það traust sem þið hafíð sýnt mér með því að kjósa mig sem formann félagsins okkar, Hjúkrunarfélags Islands. Þegar nokkrir hjúkrunarfræðingar komu að máli við mig í ágústmánuði á síðasta ári og hvöttu mig til að gefa kost á mér sem formannsefni félagsins hafði ég aldrei leitt hugann að því að til mín yrði leitað og ég beðin að standa í forsvari fyrir félagið mitt. Þetta er mér mikill heiður og ég er reiðubúin að vinna heilshugar að málefnum félagsins. Sigþrúður Ingimundardóttir hefur ieitt félagið farsællega til fjölda ára sem formaður Hjúkrunarfélags Islands. Ahugi hennar á málefnum félagsins og viljinn til að gera alltaf vel hefur einkennt öll hennar störf. Þótt hún hverfí nú til annarra starfa vona ég að félaginu eigi eftir að nýtast kraftar hennar á einn eða annan hátt í framtíðinni. Hjúkrunarfélag íslands er stórt og öflugt félag. Það saman- stendur af hjúkrunarfræðingum með víðtæka þekkingu á því hvernig hlúa megi sem best að sjúku fólki. Styrkja og styðja þá sem minna mega sín og standa vörð um heilbrigði. Hvað er það sem skipar okkur saman í félag? Það er það að við viljum öll vinna að hjúkrun með einum eða öðrum hætti og við viljum hag hjúkrunar sem mestan. Við teljum okkur sterk- ari að standa saman að þeim málum er varða störf okkar sem hjúkrunarfræðingar og að með því að skipa okkur saman í félag getum við haft meiri áhrif á ýmsa þætti er lúta að hjúkrun hér á Iandi. Ég tel að það sem hafí einkennt félagsmenn í Hjúkrunar- félagi Islands sé að þeir hafa hugsað stórt, verið víðsýnir og verið framsýnir, kjarkmiklir og áræðnir. Innan félagsins eru mörg verkefni framundan. Ég hlakka til að takast á við þau og vona að þar eigi ég eftir að njóta sam- vinnu við sem flesta hjúkrunarfræðinga. Ég vona að við getum sanreinast um leiðir til að leysa þessi verkefni á sem farsælastan hátt, fyrir félagsmenn. Ég þakka ykkur traustið og vona að ég sé traustsins verð. Vilborg lngólfsdóttir HJÚKRUN 2/9i - 67. árgangur 3

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.