Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 7
» FAGMÁL «
^ viðhald faglegrar þekkingar
| mögul. að láta gott af sér leiða
□ samstarf við annað starfsfólk
Þakklæti og ánægja sjúklinga
mikilvægast næst mikilvægast þriðja
mikilvægast
Mynd 5. Mikilvœg atriði varðandi ánœgju í starfi sjúkraliða.
liða fylgja svipuðu mynstri. Þannig
verður niðurstaðan lík hvað varðar
eftirfarandi atriði: Tækifæri til að
nota fjölþætta þekkingu, viðhalda
faglegri þekkingu, laun, vaktafyrir-
komulag og fjölbreytileika í starfi.
Einnig má sjá á mynd 3 að hjúkrun-
arfræðingum finnst heldur mikilvæg-
ara að fá útrás fyrir faglegan metnað
og hafa tækifæri til að taka sjálf-
stæðar ákvarðanir en sjúkraliðum og
starfsmönnum. Sjúkraliðunum
finnst ntikilvægara en hjúkrunar-
fræðingum og starfsmönnum, mögu-
leikinn á að láta gott af sér leiða og
þakklæti og ánægja sjúklinganna.
Á myndum 4-6 getur að líta niður-
stöður þær sem fengust er hóparnir
voru beðnir um að raða atriðum
varðandi starfsánægju í forgangsröð.
Mynd 4 sýnir hvernig hjúkrunar-
fræðingar forgangsraða atriðunum.
Flestir eða 25,8% hjúkrunarfræð-
inga setja tækifæri til persónulegra
samskipta við sjúklinga/skjólstæð-
inga í fyrsta sæti, það sama atriði
setja 6,1% í annað sæti og 7,6% í
þriðja sæti, samtals 39,5% hjúkrun-
arfræðinga setja þetta atriði í fyrstu
þrjú sætin. Laun skipta hjúkrunar-
fræðinga miklu máli 43,9% þeirra
setja laun í 1.-3. sæti, 21,2% setja
laun í fyrsta sæti 13,6% setja laun í
annað sæti og9,l% í þriðja sætið. Pá
setja 13,6% hjúkrunarfræðinga sjálf-
ræði og ábyrgð í fyrsta sæti 13,6% í
annað sæti og 9,1% í þriðja sæti.
Möguleikann á að viðhalda faglegri
þekkingu sinni setja 9,1% hjúkrun-
arfræðinga í fyrsta sæti, 14,2% setja
það í annað sæti og 10,6% í þriðja
sæti.
Pað sést skýrt á mynd 5 hvernig
sjúkraliðar forgangsraða atriðum
varðandi ánægju í starfi. Tæplega
helmingur eða 48,1% setja mögu-
leikann að láta gott af sér leiða í
fyrsta sæti, 7,4% í annað sæti og jafn
margir í þriðja sæti. Þetta atriði er
ekki í 1.-5. sæti hjá hjúkrunarfræð-
ingunum. Þá setja 7,4% sjúkraliða
samstarf við annað starfsfólk í fyrsta
sæti, 18,5% setja það í annað sæti og
11,1% í þriðja sæti. Möguleikann á
að halda við faglegri þekkingu sinni
setja 7,4% sjúkraliða í fyrsta sæti,
22,2% setja það í annað sæti og
3,7% í þriðja sæti. Þakklæti og
ánægja sjúklinganna segja 3,7% að
sé mikilvægast, 14,8% næst mikil-
vægast og 3,7% þriðja mikilvægast.
Flestir starfsmanna setja tækifæri
til persónulegra samskipta við sjúkl-
inga í fyrsta sæti eða 23,8%, 13,1%
setja þetta sama atriði í annað sæti
og 7,4% í þriðja sæti. Möguleikann
að láta gott af sér leiða setja 23% í
fyrsta sæti, 14,8% í annað sæti og
13,9% í þriðja sæti. Þá setja tæp 10%
starfsmanna samstarf við annað
starfsfólk í fyrsta sætið og 13,1%
starfsmanna setja þetta sama atriði í
annað sæti og 16,4% í þriðja sæti.
Þakklæti og ánægju sjúklinga settu
6,6% starfsmanna í fyrsta sæti, 9,1%
í annað sæti og 9,9% í þriðja sæti.
Lokaorð
Niðurstöður þessara rannsókna
sýna að hjúkrunarfræðingum,
sjúkraliðum og starfsmönnum á geð-
deild Landspítalans fellur starfið vel
og að lítillar óánægju gætir í starfi
þessara hópa. Niðurstöðurnar sýna
einnig að gæta ber fyllstu varúðar við
túlkun þessara niðurstaðna á afger-
andi hátt, sem einhverjum endan-
legum dómi um starfsánægju um-
ræddra starfshópa. Þetta má meðal
annars sjá af því að niðurstöður eru
örlítið breytilegar eftir því hvernig
spurt er og fylgnin milli spurning-
anna sem notaðar eru til þess að
mæla starfsánægju er ekki mjög
mikil. Starfsánægja virðist því vera
margþætt fyrirbæri og er brýnt að
átta sig betur á hinum ýmsu þáttum
þess ef skilja á þetta fyrirbæri til ein-
hverrar hlítar.
Niðurstöður þessarar rannsóknar
sýna einnig að ekki er mikill munur á
50-
45-
40-
35-
30-
25-
m tækifæri t. persónul. samskipta
| mögul. að láta gott af sér leiða
□ samstarf við annað starfsfólk
þakklæti og ánægja sjúklinga
mikilvægast næst mikilvægast þriðja
mikilvægast
Mynd 6. Mikilvœg atridi varðandi ánœgju í starfi starfsmanna
HJÚKRUN 2/9i - 67. árgangur 7