Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 33

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 33
» NÁM « LOKAVERKEFNI RANNSÓKN/RITGERÐ Siðfræöi heilbr.þjón. Rannsóknirsiðfr. Stjórnun heilbr.mála Kennslufr. og menntun heilbr.stétta Stjórnunarkenningar Kennslufræði Hjúkrunarstjórnun Kennslutækni Aðferðafræði - Tölfræði - Hjúkrunarrannsókn Hjúkrunarvísindi - Hjúkrunarþjónusta (Tengsl: Vísindi <> nám <> vinna) V2 ár Próf í heimspekilegum forspjallsvísindum 1 1 ár | 1 árstarfsreynsla(100%) _L 3ár Hjúkrunarnám 3. önn 2. önn 1. önn AVD Fyrsti hluti I AVD inn 35 nemendur á ári. Ég vek einnig athygli á að eftir að hafa fengið inn- göngu þarf maður að sækja skriflega um að fá annað framhaldsnám metið. Ég mæli með því að það sé gert sem allra fyrst, því oft taka hlut- irnir lengri tfma en maður heldur. Til gamans má geta þess að stjórnunar- nám mitt var metið sem 1 ár eða 2 annir í fyrsta hluta. Ilver var umsóknarfrestur? - Umsóknarfresturíháskólanner 1. apríl en í sjálfa deildina 1. júlí. Það er verið að vinna að samræm- ingu á umsóknarfrestinum og yrði hann þá væntanlega 1. apríl. Fyrsti hluti í hjúkrunarnáminu byrjar alltaf í janúar. Hvernig var námið byggt upp og hvað varþað langt? - Þetta nám er u.þ.b. 3 ár (sjá mynd 1). Rannsókn eða ritgerð þarf að skila innan 3ja ára frá síðasta prófi úr öðrum hluta. Pau fög sem eru kennd eru m.a.: í fyrsta hluta, 1. önn: Hjúkrunarkenningar m.t.t. hjúkrunarsögu og heimspeki. Hjúkr- unarhugtök, innihald, aðferðir og notkun í starfi. Hjúkrun sem vísinda- grein, röksemdafærsla og siðfærði. 2. önn: Aðferðafræði, tölfræði, hjúkrunarrannsóknir. 3. önn: Val milli stjórnunarkenninga, hjúkrun- arstjórnunar annars vegar og kennslufræði og kennslutækni hins vegar. í öðrum hluta, 1. önn: Hjúkrunar- vísindi, hjúkrunarþjónusta. Val milli stjórnunar heilbrigðisþjónust- unnar eða náms heilbrigðisstétta. 2. MYND 1 önn: Val milli siðfræði heilbrigðis- stétta eða rannsóknir og siðfræði. Námsmat fer bæði fram í formi prófa og verkefna sem eru einstaklings- verkefni. Til þess að mega stunda nám í öðrum hluta þarf maður að ná 2,7 í meðaleinkunn úr fyrsta hluta. Einkunnaskalinn er frá 1.0 sem er best til 6.0, en 4.0 er fall. Finnst þér námið erfitt? -Pað sem kannski var erfiðast í fyrstu var að lesa ensku og þýða yfir á norsku. Á fyrstu önninni voru tungu- málaerfiðleikar, því ég var slök í skandinavísku. Það bjargaði mér að ég er sterk í ensku, því stór hluti námsefnisins er á ensku. Bekkjar- félagarnir hjálpuðu mér þó hvað mest, en þeir voru einstaklega hjálp- samir. Kennsluaðferðir eru aðallega 45 mín. fyrirlestrar en mikið þarf að lesa og því óhætt að segja að þetta sé að stórum hluta sjálfsnám. Hvaða prófgráðu fœrð þú að námi loknu? - Varðandi prófgráðu þá langar mig að geta þess að hér í Noregi lýkur háskólanámi ekki t.d. með BS eða MS gráðu heldur verður maður cand. mag., cand polit. eðadr. polit. Ekki er endanlega ljóst hvert heiti prófgráðu þessa náms verður, þar sem styrr stendur um það hvort námið eigi að tilheyra læknadeild eða samfélagsdeild. Hjúkrunar- deildin vill hins vegar helst standa ein og sér, því fær maður í dag titii- inn kandidat í sykepleievitenskap sem samsvarar prófgráðu að loknu 6- 7 ára háskólanámi í t.d. læknisfræði (cand. med), hagfræði (cand. oecon) eða félagsfræði (cand. sociol). Þrír háskólar í Noregi bjóða upp á nám í hjúkrunarvísindum. Bergen- háskóli reið á vaðið 1980, deildin þar er innan samfélagsdeildar. Námið þar er byggt upp á annan hátt en í Osló en sömu inntökuskilyrði eru og í Osló. Háskólinn í Bergen er eini skólinn sem býður upp á nám í dokt- orsgráðu. Það nám tekur ca. 2Vi ár að loknu cand. polit. Árið 1987 hófst framhaldsnám fyrir hjúkrunarfræðinga við háskól- ann í Tromsö. Þar er ekki nauðsyn- legt að hafa lokið prófi í heimspeki- legum forspjallsvísindum fyrr en eftir fyrsta hluta eða áður en nám hefst í öðrum hluta. Inntökuskilyrði eru þau sömu. Hjúkrunardeildin í Tromsö tilheyrir deild fyrir fram- haldsnám heilbrigðisstétta. Athygl- isvert við námið í þessum háskólum er að hjúkrunarnám, eins árs starf- saldur svo og próf í heimspekilegum forspjallsvísindum er metið til 4XA árs náms í háskóla (sjá mynd 1). Hefur námið haft áhrif á faglega sjálfsmynd þína? - Svo sannarlega hefur námið breytt faglegri sjálfsmynd minni. Því nýr heimur opnaðist fyrir mér innan hjúkrunar. Ég hef nú hlustað á fyrir- lestra og lesið námsefni sem ég nán- ast leit ekki við áður, t.d. hjúkrun sem vísindagrein og þróun á hug- tökum innan hjúkrunar. M.t.t. míns áhugasviðs, stjórnunar, þá styrkir það mann óneitanlega að hafa fengið svo breiða umfjöllun um heilbrigðis- þjónustuna. Áhugi hefur vaknað hjá mér hvað mest að því er lítur að starfsmannastjórnun. Markmið mitt með því að fara í frekara nám var fyrst og fremst að verða hæfari til að gegna stjórnunarstöðu. Námið mun tvímælalaust nýtast mér í starfi. Ef einhver vill fá frekari upplýs- ingar, þá er ykkur velkomið að hafa samband við mig. Hulda Gunnlaugsdóttir Jens Bjelkesgt. 60 L. 612 0652 Oslo 2, sími (2) 57-12-69 HJÚKRUN 2/9i - 67. árgangur 29

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.