Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 38
Guðmunda Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur
Starfsmannaheilsuvernd
byggð á heilbrigðishvatningu
Grein þessi er byggð á erindi
semflutt var á ráðstefnu í
Glasgow um starfsmanna-
heilsuvernd á vegum Royal
College of Nursing.
í stuttu máli mun ég gera
grein fyrir hvernig undirbún-
ingi og þróun starfsmanna-
heilsuverndar er háttað við
Heilsugœslustöðina Sólvang,
Hafnarfirði og að hvaða niður-
stöðum við höfum komist.
Einnig mun ég gera grein
fyrir hvernig ég hef notað
Hanasaari hugmyndafrœði-
líkanið og finnska þríhyrn-
inginn sem stoðgrind til að
hrinda starfsmannaheilsu-
vernd íframkvœmd, draumur
sem ég hefátt í 4 ár.
Ég vinn við Heilsugæslustöðina
Sólvangi, Hafnarfirði. í Hafnarfirði
búa um 16.000 manns. Heilsugæslu-
stöðin Sólvangi er eina heilsugæslu-
stöðin í Hafnarfirði. Við hana vinna
7 heimilislæknar, 14 hjúkrunarfræð-
ingar, 1 ljósmóðir, 3 sjúkraliðar auk
annars starfsfólks, um 42starfsmenn.
1. september 1988 var starfsemi
stöðvarinnar flutt í nýtt húsnæði. í
kjölfar þessara flutninga urðu miklar
skipulagsbreytingar. Áður hafði öll
starfsemin verið hólfuð niður í ein-
ingar, s.s. lækningastofur, ungbarna-
eftirlit, heimahjúkrun o.s.frv. í dag
er öll starfsemin undir einu þaki og
aðaláherslan lögð á teymisvinnu.
Meginhugmyndafræðin er heildræn
fjölskylduþjónusta (Holistic family
health service and care).
Skipulag teymisvinnunnar
4 læknar og 4 hjúkrunarfræðingar
skipa eitt teymi. Þessu teymi er svo
skipt í 2 einingar eða 2 + 2, þannig
að 2 hjúkrunarfræðingar veita skjól-
stæðingum 2ja ákveðinna lækna
þjónustu. Hver fjölskylda hefur sinn
heimilislækni.
Hlutverk mitt í þessu teymi er
heimahjúkrun og móttaka á skyndi-
vakt stöðvarinnar. Sérverkefni mitt
er að meta hvernig hægt er að tengja
starfsmannaheilsuvernd við aðra
starfsemi stöðvarinnar.
Árið 1980 voru á Alþingi íslend-
inga samþykkt lög nr. 46/1980 um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum. I þessum lögum eru
ákvæði um að fyrirtæki skuli gera
skriflegan samning við heilsugæslu-
stöð eða næsta sjúkrahús um þjón-
ustu til handa starfsmönnum til að
koma í veg fyrir atvinnusjúkdóma. í
lögum um starfsemi heilsugæslu-
stöðva er tekið fram að sinna skuli
atvinnusjúkdómavörnum, en at-
vinnutengdir sjúkdómar eru einn
þáttur innan starfsmannaheilsu-
verndar.
Við höfum nær frjálsar hendur
með hvernig við viljum framkvæma
og veita þessa þjónustu við Heilsu-
gæslustöðina Sólvangi, Hafnarfirði.
í Hafnarfirði eru flest fyrirtæki
smá á evrópskan mælikvarða. Meðal-
starfsmannafjöldi í einu fyrirtæki er
30 til 49 starfsmenn. Eitt stóriðju-
fyrirtæki er þó í Hafnarfirði, ísal,
með um 600 starfsmenn. Annað stór-
iðjufyrirtæki er að rísa upp, en það
er Stálverksmiðja. Þetta eru einu
stóriðjufyrirtækin á svæðinu og
reyndar tvö af fjórum á öllu landinu.
Flest störf í Hafnarfirði eru í heil-
brigðisþjónustu, byggingariðnaði,
verktakastarfsemi, verslun og þjón-
ustu og fiskiðnaði.
Á þessu ári erum við að prófa
okkur áfram með að vinna sam-
kvæmt áðurnefndum vinnuverndar-
lögum. Við höfum lokið við að
skilgreina starfsemina og setja fram
markmið og leiðir.
S.l. haust gengum við til samstarfs
við tvö fyrirtæki í Hafnarfirði.
Annað í fiskiðnaði, en þar vinna um
60 starfsmenn, og hitt er banka-
stofnun með eitt útibú, þar eru um 70
starfsmenn. í báðum fyrirtækjunum
eru konur í meirihluta, en vinna
gjörólík störf. Ég mun síðar í þessari
grein segja frá þessu samstarfsverk-
efni.
Árið 1988 hafði ég þá ánægju að
vera íHanasaari í Finnlandi, þar sem
Hanasaari hugmyndafræðilíkanið
varð til. Ég hef reynt að kynna þetta
líkan fyrir þeim hjúkrunarfræðingum
sem ég vinn með, þó ég hafi mest
notað það fyrir sjálfa mig, til að
skilgreina hlutverk mitt sem hjúkr-
unarfræðingur í starfsmannaheilsu-
vernd. í þessu sambandi langar mig
að vitna í skilgreiningu á hlutverki
34 HJÚKRUN 2/91 - 67. árgangur