Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 25
af því aö Montréal fagnar þá 350 ára afmæli. Ráð-
stefnan fer fram á ensku og frönsku. Þeir hjúkrun-
arfræöingar sem áhuga hafa á að kynna rann-
sóknir í heilsugæslu býöst að senda útdrátt.
Heilsugæsla
Alþjóðleg ráðstefna um heilsugæslu - þróun og
fjölbreytni - verður haldin 18.-20. nóv. 1992 í
Sydney, Ástralíu.
Öryggi barna
Ráðstefna um öryggi norrænna barna verður
haldin í Drammen í Noregi 15.-17. október 1991. Röðun starfsheita hjúkrunarfræðinga í launa-
Efni: Fyrirbygging slysa 7-15 áragrunnskólabarna. f|okka hefurekki breystfrá 1. október 1989, þegar
Upplýsingarveitir Herdís L. Storgaard, sími 10194. ÖN starfsheiti hækkuðu um einn launaflokk:
74. Ifl. Hjúkrunarfræðingur
75. Ifl. Hjúkrunarfræðingur með sérleyfi, sem
vinnur við sérgrein sína
Hjúkrunarfræðingur K-1
Hjúkrunarkennari
76. Ifl. Aðstoðardeildarstjóri
Hjúkrunarfræðingur K-1 með sérfræði-
leyfi, sem vinnur við sérgrein sína
FRÉTTABRÉF FRÁ ICN
Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga, International Council
of Nurses, (ICN) gefur út fréttabréfið „Spotlight", sem fjallar
um hjúkrun og eyðni. ICN og WHO vinna sameiginlega að
verkefni um það mál. Fréttabréfið mun koma út þrisvar á ári.
Það er til á skrifstofu Hjúkrunarfélags islands.
Fundarsalur til leigu
Hjúkrunarfélag íslands vekur athygli á því að fundar-
salur félagsins að Suðurlandsbraut 22 er til leigu fyrir
fundi og samkvæmi.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu HFÍ í
síma 687575.
K
VÁRDINORDEN
- áhugavert hjúkrunartímarit SSN
VÁRD I NORDEN er áhugavert hjúkrunartímarit gefið út af SSN, Samvinnu hjúkrunarfræðinga á
Norðurlöndum. Blaðið birtir eingöngu fræðilegt efni og sagt erfrá hjúkrunarrannsóknum sem unnar
eru á Norðurlöndunum.
Rannsóknargreinar Várd i Norden eru metnar af dómnefnd sem í eiga sæti fulltrúar hjúkrunarfræð-
inga frá öllum Norðurlöndunum. Sérhver grein er metin af a.m.k. þremur hjúkrunarfræðingum sem
eiga sæti í matsnefnd tímaritsins.
Þær rannsóknagreinar, sem eru viðurkenndar til birtingar, eru undir heitinu „hjúkrunarvísindi - hjúkr-
unarrannsóknir". Þær greinar sem vekja áhuga á rannsóknum í tengslum við þróun hjúkrunar eru
metnar af ritstjóra tímaritsins og eru birtar undir heitinu „þróun í hjúkrunarfræði".
Várd i Norden kemur út fjórum sinnum á ári. Þeir sem vilja gerast áskrifendur geta fyllt út og sent
meðfylgjandi áskriftartilkynningu.