Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 19

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 19
» FAGMÁL « Til að geta metið hvort framfarir hafi orðið þurfa markmiðin að vera skrifleg, með lýsingu á mælanlegum árangri og tímamörkum. Áhersla er lögð á eftirfarandi: FRAMMISTÖÐUMAT Hjúkrunarfræðingar - Ljósmæður - Óskað er eftir að markmið sé í tengslum við styrkleika, veikleika eða áhugasvið starfsmanns. - Að starfsmenn setji sér raunhæf markmið, að markmiðin séu nógu erfið til að einhvers virði sé að ná þeim, en þó innan raunhæfra marka. - Að markmið séu innan starfsviðs starfsmanns og í tengslum við starf hans. - Að markmiðin stefni í svipaða átt og markmið Landspítala og markmið deildar. Til að frammistöðumat nái til- gangi sínum þurfa starfsmenn að taka virkan þátt með því að vinna að markmiðum sínum. 3. Viðtal starfsmanns og yfirmanns Formlegt viðtal á að fara fram einu sinni á ári og tekur yfirleitt um það bil eina klukkustund. Mikil áhersla er lögð á að viðtalið fari fram í góðu næði. Best er ef hægt er að nota hlutlaust húsnæði, ekki skrifstofu yfirmannsins. Allar upplýsingar sem fram koma á eyðublöðum vegna frammistöðumats og í viðtali í tengslum við það verður farið með sem trúnaðarmál. / viðtalinu á að: - Fara yfir markmið síðastliðins árs og meta hvort þau náðust. - Fara yfir eyðublaðið, sem hefur verið útfyllt af starfsmanni. - Ræða frammistöðu starfsmanns og veita starfsmanni markvissa og uppbyggilega endurgjöf. - Ræða markmið starfsmanns og leiðir til að ná þeim, samþykkja eða semja ný og skrá á markmiða- blaðið. - Fyliaútmarkmiðablaðiðogundir- rita af báðum, starfsmanni og yfir- manni. Árangur-Staðan íjúní 1991 Frammistöðuviðtöl eru hafin á um það bil 30 deildum og langflestir UMÖNNUN SJÚKLINGA - móttaka - mat á líkamlegu / andlegu ástandi / félagslegum aðstæðum - sjúklingafræðsla - aðhlynning líkamlegra / andlegra / félagslegra þarfa - útskrift Styrkleiki: Veikleiki: Markmið: Hvað ætlar þú að gera til að ná markmiðinu? Á hvaða tímabili ætlar þú að vinna aö þessu markmiöi? (dags.) 2 Síða úr eyðublaði hjúkrunarfrœðinga og Ijósmœðra. HJÚKRUN Vn - 67. árgangur 19

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.