Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 34
Hrönn Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri
Hugmyndir að heilsuskóla
Hugmyndin að heilsuskóla
gœti einfaldlega verið
kjörorð Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar „Heilbrigði
fyrir alla árið 2000“. Við
þekkjum öll skilgreiningu
hennar á heilbrigði, en við
vitum einnig að til eru margar
mismunandi skoðanir og
gildismat á heilbrigði ogsama
gildir um heilbrigðisfræðslu.
En hvað er heilbrigði? Orðabók
Menningarsjóðs segir eftirfarandi
um orðið heilbrigði: Það að vera
heill, hraustur, sjúkdómalaus, líða
vel líkamlega, andlega og félagslega.
Þetta er ekki einfalt mál sem allir
leggja sama skilning í, þvert á móti
hefur mönnum reynst erfitt að koma
sér saman um skilgreiningu á heil-
brigði. Vænta má að í gegnum lífið
sveiflist einstaklingar á milli góðrar
og slæmrar heilsu, en mikilvægast er
hvort þeir geti haft áhrif á hana.
Þeirri spurningu getum við hiklaust
svarað játandi. Þó að við getum ekki
alfarið stjórnað heilsunni þá höfum
við áhrif á hana sjálf.
Hvernig höfum við áhrif á eigið
heilbrigði?
- Með þekkingu á líkamanum og
okkur sjálfum.
- Með þekkingu á frumþörfum
mannsins.
- Með þekkingu á þeim þáttum í
umhverfinu sem hafa áhrif á líðan
og ástand.
Sjálfsbjörg eða sjálfsumönnun er
lykilatriði. Liður í sjálfsbjörg er að
þykja vænt um sjálfan sig og sinna
sjálfum sér vel. Sjálfsbjörg er
athafnir sem einstaklingurinn hefur
frumkvæði að og framkvæmir á eigin
spýtur til að viðhalda lífi, heilsu og
vcllíðan. Sjálfsbjörg er persónulegt
framlag einstaklingsins til eigin
heilsu og vellíðunar; að einstakl-
ingurinn taki ábyrgð á eigin heilsu og
nýti sér hina ýmsu möguleika sem til
eru til að auka gæði heilsunnar og
lífsins. Hvernig má öðlast sjálfs-
björg? Með því að vera tilbúinn að
læra og nýta sér þá þekkingu sem
maður hefur tileinkað sér.
Heilbrigðisþekking flokkast einnig
undir grundvallarmannréttindi. Það
er sú þekking sem hefur áhrif á líf og
heilsu einstaklingsins. Almenningur
sækist í auknum mæli eftir heilbrigð-
isfræðslu og fólk telur sig eiga rétt á
að fá upplýsingar um hluti sem varða
heilsu þess. Þekking er afl og fræðsla
tæki til að gera fólki kleift að stjórna
lífi sínu og/eða heilsufari.
Heilbrigðisfrœðsla þarf að vera
tvíþætt. í fyrsta lagi verður frœðslan
að innihalda nœgar upplýsingar til
þess að einstaklingurinn geti tekið
raunhœfa ákvörðun um hvort hann
vilji ástunda lifnaðarhœtti, sem eru
heilbrigðishvetjandi. í öðru lagi
verður frœðslan að miðast við að
auðvelda, viðhalda og koma heilsu-
samlegum lifnaðarháttum afstað.
Hvernig má haga slíkri fræðslu?
Augljóst er að miðla má fræðslu til
margra einstaklinga samtímis ef
farið er eftir skipulagi og markvissri
námsáætlun. Á þann hátt næst vinnu-
hagræðing, tímasparnaður og fjár-
hagslegur sparnaður. Þó skulu þarfir
hvers einstaklings eftir sem áður sitja
í fyrirrúmi. Heilbrigðisfræðsla er
ferli sem hefur þann tilgang að miðla
þekkingu og hjálpa einstaklingi til að
læra hluti sem auðvelda honum að
lifa ánægjulegu lífi, bœta andlega og
líkamlega heilsu hans. Aðferðir og
innihald heilbrigðisfræðslu er breyti-
legt en tilgangurinn er ætíð sá sami,
sem er að miðla einstaklingi hug-
mynd og gera hann hæfari að takast á
við þau vandamál sem geta hindrað
heilbrigði hans og forðast sjúkdóma.
Heilbrigðisfræðsla hefur þróast
mjög ört á síðustu árum. Enda langt
síðan að hjúkrunarfræðingar endur-
skoðuðu stöðu sína og gerðu sér
grein fyrir hvað raunverulega felst í
því að hjálpa fólki í veikindum þess,
þ.e.a.s. mikilvægi þess að virkja
lækningamátt skjólstæðinga okkar
samanber orð Albert Schweitzer er
sagði: „Sérhver sjúklingur ber sinn
eigin lækni innra með sér. Þeir koma
til okkar vitandi þennan sannleika.
Okkur tekst best upp þegar við
gefum lækninum sem býr innra með
sérhverjum sjúklingi færi á að hefjast
handa“.
Til hvers heilsuskóla og fyrir
hvern? Heilbrigðisþjónustan er
þríþætt, það er heilsurækt, heilsu-
vernd og lækning. Fólk sem sækir um
dvöl á heilsuskóla eða heilsuhæli
kemur vegna einhverra fyrrgreindra
þátta. Það er komið til að læra nýjan
lífsstíl, leita sér lækninga eða til
endurhæfingar eftir veikindi. Fólk
sem sækir til slíkra stofnana er með-
vitað og tilbúið að taka ábyrgð á
heilsu sinni sjálft ef það fær viðeig-
andi fræðslu og ráðgjöf. Hópar sem
30 HJÚKRUN %i - 67. árgangur