Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 27

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Blaðsíða 27
» FAGMÁL « léttist geti þeir vonandi leyst önnur vandamál. Það er mikilvægt að það sé ljóst því ég er t.d. ekki fær um að leysa úr kynlífsvanda. Það er að sjálfsögðu hægt að nota atferlismeð- ferð við því en ég hef ekki þá færni eða þjálfun. Það skiptir miklu máli að heiðarleiki ríki og að ljóst sé að þetta sé það svið sem við getum veitt þeim aðstoð á. Að sjálfsögðu eru mörg vandamál tengd ofáti, þá þarf ég að vísa einstaklingunum til t.d. sálfræðinga, félagsráðgjafa eða lækna. Kenningin sem þú byggir á er ein- göngu atferlismeðferð, hugþjálfun er hluti af henni og mikilvægasti hluti hennar. Notar þú hjúkrunarkenn- ingar í starfi þínu? - Já, ég tel að ég tengi saman atferlismeðíerð og aðlögunarkenn- ingu sem Calista Roy hefur þróað, einnig það sem Patricia Bernard hefur sett frani. Þar sem ég er hjúkr- unarfræðingur þá auðveldar það starfið, það verður skipulagðara og markvissara. Það er áhrifamikið fyrir aðra að sjá að hjúkrunar- fræðingar hafa notað svipaða áætl- un. | Telur þú árangurinn vera góðan? - Já, svo langt sem við vitum hefur engin meðferðaráætlun skilað jafngóðum árangri nriðað við niður- stöður sem birst hafa í vísindaritum. í einu vísindaritanna er sagt frá því að við höfum náð bestunr árangri eftir 4 ára meðferð. Niðurstöður eftir 10 ára meðferð birtast bráðlega. Við vitum að okkar árangur er bestur. Árangur meðferðar er met- inn með hliðsjón af þremur þáttum: - Þyngdaraukning stöðvuð. - Dregið úr sjúkdómseinkennum, t.d. háþrýstingi, sykursýki. - Óskaþyngd náð. Allir sem fara í byrjunarmeðferð léttast, en 80% þeirra þyngjast aftur, sumri ná árangri aftur með viðhalds- meðferð, aðrir þurfa að taka aftur þátt íbyrjunarmeðferð. Niðurstöður frá Karolinska sýna að þeir sem sýna árangur eftir 6 mánuði skila bestu niðurstöðunum eftir 4 og 10 ár. Ég tel og það hef ég rætt við vísinda- menn víðs vegar um heiminn að það sé hjúkrunarþátturinn sem gefi góða raun. Hjúkrunarfræðingar hafa til að bera svo mikla þolinmæði. Sú gæti verið ein ástæðan sem er mjög góður kostur í þessari meðferð. Hjúkrun- arfræðingurinn Swanson frá Seattle hefur spurt skjólstæðinga hvað þeim finnist mikilvægast í hjúkrun. Einn af fimm þáttum sem nefndir voru var að vera til staðar og gera einstaklingi kleift að komast í gegnum meðferð, hjálpa þeim að komast í gegnum hana, ekki gera fyrir þá það sem þeir eru færir um að gera sjálfir e.t.v. með smávegis aðstoð. Einnig var nefnt að efla von þeirra, því þeir telja oft og tíðum að þeim takist þetta ekki, þeir hafi svo oft reynt. Hjúkrunarfræðingurinn sem hóp- stjóri segir þeim frá og fær þá til að trúa á sjálfa sig. Hann veitir þeim- von, er von þeirra. Svo ég tel að það sé sambland hjúkrunar og atferlis- kenningar sem er ástæða þessa mikla árangurs. Hvaða aðalatriði á einstaklingur að hafa í huga þegarhann villléttast? - Það að borða reglulega morgun- verð, hádegisverð ogkvöldverð. Það er hið mikilvægasta. Velja fremur fæðu með lágt fituhlutfall. Reyna að breyta viðhorfi sínu til fæðu. Læra að hitaeiningasnauð fæða getur verið jafngóð og hitaeiningarík fæða. Læra að hugsa örðuvísi svo að hægt sé að breyta lífsstíl. Stunda hreyf- ingu reglulega t.d. ganga daglega í hálftíma. Það skiptir líka miklu hvað er drukkið yfir daginn. Allir þessir gosdrykkir og ávaxtasafar sem fólk drekkur milli mála og á kvöldin. Það sakar ekki að fá sér t.d. glas af léttu víni með góðri máltíð, en allt er best í hófi. Hægt er að venja sig á nánast hvað sem er, t.d. að nota sykur í kaffið, rjóma út á skyrið o.s.frv., en erfiðara er að venja sig af því. Þetta er spurning um hugþjálfun. Hvað segir þú um þessa vinsœlu megrunarkúra? - Það er enginn megrunarkúr sem virkar varðandi þyngdartap. Það verður að leggja áherslu á atferlið. Við getum borðað venjulegan mat og ættum að gera það. Það er eina leiðin til þess að léttast þegar til lengri tíma er litið. En með því að fara í megrunarkúr er að sjálfsögðu hægt að léttast á tveimur vikum og komast í nýju bikinisundfötin, t.d. með því að fara í bananakúr, ananas- kúr eða með því að drekka vatn. Það er hægt að léttast um 3-5 kg en jafn- framt þyngjast um þau aftur þegar hætt er í kúrnum og farið yfir í venju- legan mat. Attu einhver ráð varðandi matar- œði? - Aðeinsþaðaðborðafjölbreytta fæðu í hóflegu magni; morgunverð, hádegisverð og kvöldverð reglulega, á svipuðum tíma, á sama stað, læra hvernig hægt er að breyta viðhorfum til mataræðis og stunda reglulega hreyfingu. Sé slíkum ráðleggingum fylgt munu þeir Iéttast sem eru of þungir. Er offita sjúkdómur? - Nei, offita er ekki sjúkdómur. Það er hægt að ákveða að kalla offitu sjúkdóm. Þetta er spurning um hug- myndafræði. Sumir telja að ef of þungir einstaklingar líti á offitu sem sjúkdóm þá annist þeir sig betur, verði áhugasamari að gera eitthvað í málinu eða þeir telja þetta vera við- fangsefni fyrir lækna. Ég lít ekki á offitu sem sjúkdóm. Ég tel offitu stafa af truflun á atferli og ég tel að einstaklingur með þær upplýsingar geti sjálfur gert eitthvað í eigin málum. í Svíþjóð er aldrei talað um offitu sem sjúkdóm, en aðrir sjúk- dómar geta valdið offitu og offita getur valdið eða stuðlað að öðrum sjúkdómum. HJÚKRUN - 67. árgangur 23

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.