Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Qupperneq 9

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Qupperneq 9
- Ég er sátt við stöðu félagsins í dag - Viðtal við fráfarandi formann félagsins, Sigþrúði Ingimundardóttur Pegar þú tókst við formannsstarfi HFÍ haustið 1982 stóðu fyrir dyrum miklar breytingar á uppbyggingu félagsins samkvœmt lögum þess. Ertu sátt við það hvernig þau mál hafa þróast? - Já, tvímælalaust. Ég tel það hafa verið mikið framfaraspor að breyta lögum félagsins eins og þau eru í dag. Breytingin fólst fyrst og fremst í því að skipta félaginu upp í svæðisdeildir og að formenn þeirra mynduðu félagsstjórn er færi með æðsta vald í málefnum félagsins á milli fulltrúafunda. Með því var lagður grundvöllur að aukinni virkni félagsmanna alls staðar af landinu og möguleiki á því að dreifa valdi og ákvarðanatöku. Það hefur sýnt sig þessi ár að ákvörðunin var rétt því svæðisdeildirnar hafa eflst og dafnað, ekki hvað síst eftir að fjár- hagur félagsins batnaði og hægt var að veita meira fjármagni til þeirra. Hvað sérgreinadeildirnar varðar hafa þær lokast meira af sem faghóp- ar. Áður höfðu þær einn fulltrúa á aðalfundi félagsins samkvæmt lögum en í dag verða þær að sækja slíkt gegnum Reykjavíkurdeildina hún er þeirra svæðisdeild því þær hafa allar aðsetur sitt í Reykjavík þótt félags- menn þeirra séu um allt land. Sumar sérgreinadeildir hafa lagt áherslu á að eiga fulltrúa á fulltrúafundi en aðrar ekki. Þetta var sérstaklega áberandi fyrst í stað. Ég tel nauðsyn- legt bæði fyrir Reykjavíkurdeildina og sérgreinadeildirnar að þar verði skipulegra samband en verið hefur. Einn af burðarásunum í hverju félagi er trúnaðarmannakerfi þess. Hver svæðisdeild hefur ábyrgð á trúnaðarmönnum hver á sínu svæði og stærstu vinnustaðirnir hafa aðal- trúnaðarmenn. Eftir að trúnaðarráð var lagt niður sem hafði yfirumsjón með trúnaðarmönnum og sá um námskeiðahald myndaðist ákveðið tómarúm. Þetta hefur verið að breyt- ast eftir því sem stjórnir hverrar svæðisdeildar hafa látið sig málefni trúnaðarmanna á svæðinu meira máli skipta. Seinni ár hefur verið reynt að skipta trúnaðarmannanám- skeiðum þannig að bæði væri sem best tekið á kjara- og hagsmuna- málum stéttarinnar en einnig að styrkja trúnaðarmenn sjálfa í starfi sínu. Slíkt gerir það að verkum að strax á sjálfum vinnustaðnum er hægt að taka upp og leysa mál í stað þess að beina þeim öllum til skrif- stofunnar. Á fulltrúafundinum í vor var samþykkt að kjósa nefnd til að endurskoða reglugerðina fyrir trún- aðarmenn og á næsta ári ættu ákveðin drög að liggja fyrir. Hvað hefur áunnist undanfarin árí kjaramálum stéttarinnar, getur þú bent á einhverja mikilsverða áfanga sem hafa náðst? - Þegar ég tók við sem formaður hafði ég ekkert komið nálægt kjara- málum nema lítilsháttar sem for- maður í Kennaradeildinni. Það var því ásamt mörgu öðru í okkar félags- málum sem óplægður akur fyrir mig. Ég sagðist myndi reyna að gera mitt besta, öðru gat ég ekki lofað. Á þeim tíma fram til ársins 1986 fór BSRB með gerð aðalkjarasamnings en félögin gerðu sjálf sína sérkjara- samninga. Það þróaðist í reynd upp í það að sérkjarasamningurinn var í raun lítið annað en niðurröðun í launaflokka. Við áttum þrjá fulltrúa inn í stóru samninganefndinni hjá BSRB sem var skipuð sextíu full- trúum alls staðar af landinu. Síðan var minni nefnd, svokölluð tíu- mannanefnd, er stóð í beinum samn- ingaviðræðum við ríkið. Þar var línan lögð þótt við færum síðan og gerðum samning við Reykjavíkur- borg og Akureyrarbæ. Það var lærdómsríkt fyrir mig að sitja í þessum nefndum og þar lærði ég margt sem kom sér vel, ekki hvað síst eftir að nýju samningsréttar- drögin tóku gildi árið 1986, en eftir það fóru félögin sjálf með samnings- umboðið. Það hefur verið stefna HFÍ að semja sjálft en ekki að vera með í samfloti við önnur félög, t.d. meðan við vorum enn sem félag HJÚKRUN -/91 - 67. árgangur 9

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.