Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Síða 29
Ragnheiður Haraldsdóttir lektor
Viðbótarnám fyrir hjúkr-
unarfrœðinga býðst í
fyrsta sinn við Háskóla
íslands nú í haust. Síðastlið-
inn vetur var unnið að skipu-
lagi viðbótar- og endurmennt-
unar hjúkrunarfrœðinga á
vegum námsbrautar í hjúkr-
unarfrœði. Petta grunnskipu-
lag á að taka til framhalds-
náms til meistaragráðu í
hjúkrunarfrœði, endurmennt-
unar ýmiss konar og til við-
bótarnáms á sérsviðum
hjúkrunar.
Einum þætti þessarar vinnu er nú
lokið; fyrir liggja tillögur um viðbót-
arnám sem áformað er að leggja til
grundvallar margvíslegu námi á sér-
sviðum hjúkrunar um fimm ára
skeið. Að þeim tíma loknum verða
menntunaraðstæður hjúkrunarfræð-
inga töluvert breyttar hérlendis. Pá
hefur hjúkrunarfræðingum boðist
sérskipulagt nám til B.S. gráðu um
tíma og framhaldsnám væntanlega
komið lengra en á teikniborð bjart-
sýnismanna. Ekki er þar með sagt að
ekki verði áfram þörf á viðbótarnámi
til kliniskrar sérhæfingar, en gera má
sér í hugarlund að það verði með
öðru sniði.
Vilji hjúkrunarfræðinga
Stefnumótun fyrir viðbótarnám
hefur verið til umfjöllunar í báðum
félögum hjúkrunarfræðinga frá því
um miðjan janúar þegar fyrstu til-
lögur voru lagðar fram. Pað er sér-
stakt fagnaðarefni að tekist hefur
samstaða um þessar hugmyndir,
þegar hafður er í huga sá ágreiningur
sem ríkt hefur um menntunarmál.
Þess er sannarlega vænst að nýjar
námsleiðir við námsbraut í hjúkrun-
arfræði, sérskipulagt B.S. nám og
viðbótarnám til kliniskrar sérhæfing-
ar, styrki samstöðu hjúkrunarfræð-
inga.
Á fundi námsbrautarstjórnar í
maí sl. voru eftirfarandi áform sam-
þykkt sem grundvöllur að áfram-
haldandi undirbúningi viðbótar-
náms, með fyrirvara um samþykki
tillagnanna í ráðgjafanefnd náms-
brautar í hjúkrunarfræði. Fundur
ráðgjafanefndarinnar í maí sam-
þykkti tillögurnar og nú í sumar er
því undirbúið af kappi fyrsta viðbót-
arnámið.
Nám í bráðahjúkrun í haust,
hvað svo?
Ákveðið hefur verið að fyrst skuli
boðið nám til kliniskrar sérhæfingar í
bráðahjúkrun, þ.e. hjúkrun bráð-
veikra sjúklinga á bráðadeildum og
annars staðar. Námsskrá mun liggja
fyrir í ágúst, innritun fer fram fyrstu
vikuna í september og námið hefst
væntalega í lok október.
Mikill áhugi er á þessu námi hjá
félagsmönnum beggja hjúkrunarfé-
laganna. Hugmyndirnar hafa verið
kynntar á nokkrum fundum og hafa
fengið góðan hljómgrunn. Svo kann
að fara að takmarka þurfi aðgang að
náminu með einhverjum hætti. Með
því fyrirkomulagi sem samþykkt
hefur verið gefst þó fleirum kostur á
að taka einstök námskeið þótt þeir
komist ekki í námið að sinni.
Ekki liggur fyrir hvaða nám verður
boðið næst eða hvenær. P*ó er líklegt
að fyrir valinu verði hjúkrun sjúkl-
inga með geðræn vandamál.
Tillögurnar
Eftirfarandi eru tillögur þær sem
lagðar verða til grundvallar viðbótar-
námi hjúkrunarfræðinga næstu árin.
Tilgangur:
Viðbótarnám í hjúkrunarfræði
miðar að því að efla færni hjúkrun-
arfræðinga á klínisku sérsviði og
auka faglega hæfni þeirra til að tak-
ast á við hjúkrunarviðfangsefni á
HJÚKRUN 2/9i - 67. árgangur 25