Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Page 40
» FAGMÁL «
fyrir samstarfsverkefni því sem ég
gat um hér að framan. Við byggjum
tilraunaverkefnið upp á áðurnefnd-
um grundvallarhugtökum, „Þekk-
ing-Hvati-Breyting“.
A fyrstu samstarfsfundunum með
starfsfólki byrjum við á að „greina“
vinnustaðinn, þ.e. söfnum í þekk-
ingarbrunninn. Starfsmenn eru
álitnir sérfræðingar í vinnu sinni en
við leggjum fram vitneskjuna sem
við höfum um heilbrigði. Samtímis
liggur alltaf fyrir, hvað vilt „þú
gera“? Ákvörðunin er og verður allt-
af þín. Ég get t.d. sagt þér allt um
skaðsemi reykinga en ég get ekki
hætt að reykja fyrir þig.
Vinnustaðafundir eru haldnir á
2ja vikna fresti, 30 mínútur í senn.
Þeir skiptast í tvo meginflokka:
- Fræðslufyrirlestra
- Verkleg kennsla, annað hvort á
fundarstað eða úti á vinnusvæð-
inu.
Lögð er áhersla á að taka sérstak-
lega fyrir í byrjun þau atriði sem allir
eru sammála um að séu mikilvæg.
Notaðar eru litskyggnur sem teknar
hafa verið af starfsfólki að störfum
og starfsumhverfi.
Þetta er gert til að starfsmennirnir
nálgist sem mest viðfangsefnið svo
að setningar eins og „þetta geri ég
aldrei", „þetta kemur ekki fyrir hjá
okkur“, heyrist ekki. Á þennan hátt
erum við öll þátttakendur. Eftir
hvern fund er svo ráðrúm til að
spyrja eða veita einstaklingsbundna
ráðgjöf. Á þennan hátt greinum við
vinnuumhverfið og áhættuþætti sem
finnast þar.
Á þessum niðurstöðum byggjum
við ákvarðanir okkar, ákveðið er
hvaða mælingar, mat eða heilsufars-
rannsóknir skulu gerðar. Lögð er
mikil áhersla á að vinna eingöngu
fyrirbyggjandi, allri meðferð er beint
til viðkomandi aðila.
Við Heilsugæslustöðina Sólvang,
Hafnarfirði eru allar sjúkraskrár
tölvufærðar í ákveðnu kerfi, sem
kallast MEDICUS. Vonandi verður
hægt að bæta starfsmannaheilsu-
verndinni inn í þetta kerfi, en það
þýðir að öllum upplýsingum um ein-
staklinga er safnað saman í eina
sjúkraskrá.
Hér hef ég reynt í stuttu máli að
segja frá undirbúningi og þróun
starfsmannaheilsuverndar við Heilsu-
gæslustöðina á Sólvang, Hafnarfirði.
Ég vona að mér hafi tekist að gefa
ykkur smá innsýn í, hvers vegna við
höfum kosið að nota heilbrigðis-
hvatningu sem aðferð til að fá ein-
staklinga til að taka aukna ábyrgð á
eigin heilbrigði.
Hjúkrunarráð
Hjúkrunarlög kveða á um
það í 2. gr. að starfa
skuli hjúkrunarráð. Pað skal
skipað 3 mönnum tilfjögurra
ára í senn. Einn skal til-
nefndur af heilbrigðisráðu-
neyti, einn af menntamála-
ráðuneyti og einn af Hjúkr-
unarfélagi íslands.
í Hjúkrunarráði í dag sitja Ingi-
björg R. Magnúsdóttir skrifstofu-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu for-
maður, Sigþrúður Ingimundardóttir
Hjúkrunarfélagi íslands ritari og
Marga Thome dósent í námsbraut í
hjúkrunarfræði tilnefnd af mennta-
málaráðuneyti. Verksvið hjúkrunar-
ráðs er að fjalla um og mæla með
veitingu sérfræðileyfa til ráðherra og
starfa samkvæmt reglugerð þar að
lútandi. Hjúkrunarfélag íslands skal
tilnefna tvo sérfróða hjúkrunar-
fræðinga til þátttöku með ráðinu í
meðferð einstakra mála er varða sér-
grein þeirra. Þá skal hjúkrunarráð
fjalla um og mæla með veitingu
hjúkrunarleyfis til ráðherra. Einnig
gefur hjúkrunarráð umsögn um
stöður hjúkrunarforstjóra hinna
ýmsu heilbrigðisstofnana.
Á fundum sínum gegnum árin
hefur ráðið oft haft til meðferðar hin
margvíslegu mál er snerta menntun-
Höfundur er hjúkrunarfrœðingur
á Heilsugœslustöðinni Sólvangi,
Hafnarfirði. Hún lauk námi í starfs-
mannaheilsuvernd frá Arbetar-
skyddsstyrelsen, Solna, Stokkhólmi,
Svíþjóð, 1986.
HEIMILDIR
Alþingi. Lög um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum. Nr. 46/1980.
XI. kafli. Alþingi 1980.
Edelman C. og Mandle C.L. (1986).
Health Promotion Throughout the Life
span. Mosby Comp. 9-10.
armál stéttarinnar. Árið 1986 var
stofnaður samstarfshópur um hjúkr-
unarráð. Fulltrúar í hjúkrunarráði
mynda þann hóp ásamt hjúkrunar-
forstjórum Landspítalans, Geð-
deilda Landspítala, Borgarspítala,
Landakots, Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur og formanni Félags
háskólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga, en forntaður Fhh hefur setið
fundi hjúkrunarráðs síðan 29. maí
1990.
Samstarfshópur um hjúkrunarmál
hefur haft til umfjöllunar hin marg-
víslegustu mál er snerta hjúkrunar-
þjónustu á íslandi. Hópurinn stóðað
gerð myndbands um nám hjúkrunar-
fræðinga í samvinnu við námsbraut í
hjúkrunarfræði og einnig ráðstefnu
með yfirskriftinni „Við byggjum brú
í menntunarmálum hjúkrunarfræð-
inga.“
Undirrituð hefur setið sem fulltrúi
HFÍ í hjúkrunarráði frá árinu 1983.
Marga Thome hefur einnig verið
fulltrúi menntamálaráðuneytis frá
sama tíma en Ingibjörg R. Magnús-
dóttir hefur verið formaður ráðsins
frá upphafi. Það er skoðun mín að
eðlilegt sé að formaður HFÍ sitji fyrir
hönd félagsins í hjúkrunarráði og
mun ég því hætta störfum í haust en
Vilborg Ingólfsdóttir formaður taka
við. Ég vil færa öllum þeim hjúkrun-
arfræðingum sem ég hef starfað með
að þessum málum bestu þakkir fyrir
ánægjulegt samstarf sem hefur verið
einstaklega lærdómsríkt fyrir mig.
Sigþrúður Ingimundardóttir
36 HJÚKRUN 2/9i - 67. árgangur