Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1992, Síða 19
Hildur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur
Samkynhneigð og sorg
Frá því að sjúkdómurinn
alnœmi kom fram á sjón-
arsviðið, við upphaf níunda
áratugarins, hafa hjúkrunar-
frœðingar þurft að takast á
við það verkefni að þróa og
veita sérhœfða hjúkrunarmeð-
ferð sem hœfir þeim flóknu
og margbrotnu heilsufars-
vandamálum sem þessi sjúkl-
ingahópur hefur.
Þrátt fyrir að samkynhneigðir
karlmenn séu einungis hluti þess
fólks sem smitast af alnæmi, þá eru
þeir að öllum líkindum sá hópur sem
við vitum minnst um. Fyrir daga al-
næmis var ákaflega lítið skrifað um
samkynhneigða í hjúkrunartímarit
og sjaldan eða aldrei fjallað um
þennan hóp í hjúkrunarnámi. Þetta
er að breytast, en betur má ef duga
skal.
Hjúkrunarfræðingar þurfa að
kunna skil á viðhorfum og reynslu-
heimi samkynhneigðs fólks í þeim
mæli að þekkingarleysi, hugsunar-
leysi og fordómar hamli ekki viðeig-
andi hjúkrunarmeðferð. í þessari
grein verður fjallað sérstaklega um
sorgarviðbrögð samkynhneigðra
karlmanna sem missa elskhuga sinn
úr alnæmi.
Sorg og samkynhneigð
Allt frá því að Lindemann (1944)
lýsti einkennum bráðrar sorgar hjá
þeim sem misstu nána ættingja sína í
frægum eldsvoða (Coconut Grove)
hefur það sorgarferli sem fer af stað
við mikinn missi verið rannsakað
ítarlega. Stærstu og þekktustu sorg-
arrannsóknir (t.d. Maddison, 1968;
Parkes, 1975; Silverman og Cooper-
band, 1975) fjalla um eftirlifendur
gagnkynhneigðra sambanda og
styðja ákveðið það sem komið hefur
í ljós í streitumælingum að maka-
missir er mest streituvaldandi missir
sem unnt er að upplifa (Holmes og
Rache, 1967). Sú staðreynd að ekki
hefur verið athugað sérstaklega
hvernig samkynhneigðir bregðast
við missi maka síns á væntanlega
rætur að rekja til algengra fordóma
um eðli samkynhneigðra sambanda.
í fyrsta lagi er gengið út frá því að
fólk sem upplifir makamissi sé alltaf
gagnkynhneigt (Berger, 1982). Þetta
viðhorf leiðir til þess að samtök og
stofnanir sem bjóða upp á aðstoð við
syrgjendur, s.s. varðandi úrvinnslu
tilfinninga og ýmissa lagalegra og
fjárhagslegra atriða, eru ekki í stakk
búin til að mæta þörfum samkyn-
hneigðra syrgjenda sem eru að ýmsu
leyti frábrugðnar þörfum annarra.
Alnæmi hefur orðið til þess að nú
hriktir í undirstöðum þessa viðhorfs
og hefur sannað að hommar eru til
þrátt fyrir allt.
í annan veg er sá útbreiddi mis-
skilningur að sambönd homma séu
ekki varanleg og byggist á kynlífi
eingöngu. Þrátt fyrir að rannsóknir
hafi ekki sýnt fram á að hommar líti
almennt á kynlíf sem mikilvægasta
þátt lífs síns þá hefur þessi trú manna
orðið til þess að margir eiga erfitt
með að skilja og viðurkenna hin
sterku tilfinningabönd sem geta
tengt tvo karlmenn (Poorman, 1988).
Meginástæða þess að samkyn-
hneigðir syrgjendur eiga erfitt með
að fá tilskilinn stuðning á þung-
bærum tímum er sú að þjóðfélagið er
skipulagt fyrst og fremst fyrir gagn-
kynhneigt fólk. Þörf homma fyrir
formlegan stuðning er venjulega
ekki viðurkennd nema á svæðum þar
sem stórir hópar samkynhneigðra
hafa sest að, t.d. í San Francisco.
Samkynhneigðarfælni (homo-
phobia, ótti við samkynhneigð,
(Poorman, 1987)) er oftast undirrót
hinna neikvæðu viðhorfa sem margir
gagnkynhneigðir hafa til þessa
lífsstíls. Slík viðhorf hafa orðið mjög
áberandi og stundum leiðandi í al-
næmisumræðunni þar sem menn
töldu fyrst að alnæmi væri homma-
sjúkdómur. Jafnvel nú þegar orsök
sjúkdómsins er þekkt, ljóst er
hverjar smitleiðir eru og að allir geta
fengið alnæmi þá eru samt sem áður
margir sem kenna hommum alfarið
um alnæmisfaraldurinn. Sumir
ganga jafnvel svo langt að álíta að
alnæmi sé réttlát refsing fyrir kyn-
hneigð homma.
Útskúfun
Samkynhneigðir syrgjendur eru í
óvenjulegri aðstöðu. Til þess að
skilja hvers vegna er nauðsynlegt að
skoða nánar nokkur atriði. Útskúfun
(stigma) hefur verið skilgreind sem
„aðstaða einstaklings sem er ekki
félagslega viðurkenndur" (Goffman,
1963). Hommum sem eru elskhugar
alnæmissjúklinga er líklega útskúfað
á þrennan hátt. í fyrsta lagi er um að
ræða fyrirbæri sem Parkes (1972)
lýsti þannig: . . viðmótsbreyting
(sem) verður í samfélaginu þegar
einhver deyr. Allar ekkjur uppgötva
að fólk sem áður var vingjarnlegt og
auðvelt í umgengni, fer hjá sér og
HJÚKRUN '/92 - 68. árgangur 19