Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 36
» FÉLAGSMÁL «
Systir Irena sýnir okkur gerviliði sem notaðir eru í Rússlandi.
og fyrirlestrum. Tékkar og Slóvakar
stefndu að því að 1. janúar 1992 yrði
starfsfólki í heilbrigðisþjónustu gert
kleift að stunda eiginn rekstur sam-
hliða ríkisrekstri en ekki var þó búið
að útfæra þá hugmynd alveg. Tékkar
ákváðu að sýna okkur nýjasta og
besta sjúkrahúsið sitt sem var „Bur-
lava Hospital Ortopedia“. Hjúkrun-
arfræðingar þar eru töluvert langt
komnir hvað varðar fræðslu til sjúkl-
inga og skráningu hjúkrunar. Einnig
voru húsakynni rýmri, en öll tæki í
gamla stílnum svo og sjúkrarúmin.
Lokaorð
Hér á undan hef ég sagt frá heim-
sókn minni til Pétursborgar,
Moskvu, Búdapest og Prag. Eftir
bestu getu hef ég reynt að segja frá
aðstæðum og kjörum starfssystra
okkar í austri. Niðurstaðan var sú að
það er sama hvar við erum í heimin-
um, markmið okkar eru alltaf þau
sömu, að sinna skjólstæðingum
okkar á sem bestan mögulegan
máta, andlega, félagslega og líkam-
lega.
Þessi ferð var mér ógleymanleg og
er ég sannarlega reynslunni ríkari.
Erfitt var þó að vera eini fulltrúi
landsins og þurfa alltaf að vera að
segja frá landi sínu en það vandist þó
fljótt. Mig langar til að nota tæki-
færið hér og koma því á framfæri til
hjúkrunarfræðinga að ef á þeirra
vinnustað eru hlutir sem ekki eru
nýttir í starfinu, t.d. tæki og ekki síst
einnota hjúkrunarvörur, þá er vert
að hafa í huga að þörfin fyrir þessa
muni er gífurleg í austurvegi. Ég hef
heimilisföng sjúkrahúsa í Pétursborg
og Moskvu, en þaðan barst okkur
hjálparbeiðni. Þó að land okkar sé
lítið þá höfum við getað hjálpað
öðrum þegar þörfin er hvað mest.
Höfundur er hjúkrunarforstjóri Vinnu- og
dvalarheimilisins Sjálfsbjargar.
FYRIRLESTRARÖÐ — um kenningar sáigreiningar og notkun þeirra í meðferð
Þerapeia hf. gengst fyrir fyrirlestraröð um kenningar sálgreiningar og notkun þeirra í meðferð og hófst hún
10. febrúar sl. Önnur lota hefst 27. apríl nk. - Fyrirlestrarnir eru ætlaðir fagfólki sem stefnir að því að vinna
eftir þessum kenningum eöa hefur áhuga á að kynna sér þær.
Fyrirlestraröðin er með svipuðu sniði og tvær fyrri fyrirlestraraðir Þerapeiu, en aukin. Henni er skipt í fjórar
lotur og er þátttökugjald kr. 4.200 fyrir hverja. - Erindin eru haldin í Odda, húsi Háskóla íslands, stofu 201,
kl. 20-21:30. - Framhald fyrirlestranna verða sem hér segir:
2. Lota Undirstöðuhugtök sálgreiningar li
27.04.1992 Draumar
04.05.1992 Hugsun
11.051992 Kenningar um þróunarskeið
18.05.1992 Aðskilnaður og myndun einstaklingsvit- undar (Seperation-individuation).
25.05.1992 Viðfangstengslakenningar
4. Lota „Psychopathology"
02.11.1992 Skilningur sálgreiningar á sjúklegum fyrirbærum sálarlífs
09.11.1992 Taugaveiklun
16.11.1992 „Narcissismi"
23.11.1992 „Borderline" fyrirbæri
30.11.1992 Þunglyndi og geðhvörf (maniodepr. sjd.
07.12.1992 Geðklofi
3. Lota
14.09.1992
21.09.1992
28.09.1992
05.10.1992
12.10.1992
19.10.1992
Samtalsmeðfer&
Samtalsmeðferð eftir leiðum sálgreiningar
„Psychotherapeutic intervention"
Yfirfærsla, mótstaða og úrvinnsla
Lok meðferðar
Hópmeðferð eftir kenningum sálgreiningar
Hjóna- og fjölskyldumeðferð eftir
kenningum sálgreiningar
Fyrirlesarar verða:
Halldóra Ólafsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir,
Högni Óskarsson, Ingvar Kristjánsson, Magnús Skúla-
son, Oddur Bjarnason og Sigurjón Björnsson.
Allar nánari upplýsingar og þátttökutilkynningar í
síma 623990, milli kl. 15-17.
32 HJÚKRUN Vn - 68. árgangur