Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 38
» FRÉTTIR «
F réttatilkynning
Norræn ráðstefna
um illa meðferð á börnum,
Reykjavík, 3.-6. ágúst 1992
í byrjun ágúst 1992 verður haldin í
Reykjavík ráðstefna um illa meðferð
á börnum. Efni ráðstefnunnar er:
Barnið í brennidepli - Vanræksla og
forvarnir. í fyrirlestrum og hópvinnu
verður fjallað um ýmsa fleti á van-
rækslu barna, greiningu hennar og
meðferð, samvinnu stofnana, laga-
leg atriði og siðfræðileg. Meira en 50
sérfróðir aðilar munu flytja erindi
um reynslu sína úr starfi svo og um
rannsóknir.
Þetta er 5. ráðstefnan sinnar teg-
undar, en þær eru að jafnaði haldnar
annað hvert ár. Að undirbúningi
hafa staðið fulltrúar frá öllum
Norðurlöndunum, en fulltrúar
íslands í norrænu undirbúnings-
nefndinni eru Hulda Guðmunds-
dóttir, yfirfélagsráðgjafi, Gunnar
Sandholt, yfirmaður fjölskyldudeild-
ar Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar og Gerður Helgadóttir,
læknaritari. Auk þess skipa íslensku
undirbúningsnefndina Guðjón
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Barnaverndarráðs íslands, Pétur
Lúðvígsson, barnalæknir, Guðjón
Magnússon, skrifstofustjóri í Heil-
brigðisráðuneytinu og Bragi Guð-
brandsson, aðstoðarmaður félags-
málaráðherra.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur á
ráðstefnunni verði ekki færri en 300,
flestir úr starfsgreinum sem vinna að
forvarnarstarfi með börnum eða
stunda meðferð og rannsóknir á
þessu sviði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Gerður Helgadóttir í síma 696301.
★
Tilkynning
um stofnun félags
um heilbrigðislöggjöf
Þann 17. apríl 1991 var stofnað í
Reykjavík Félag um heilbirgðislög-
gjöf og er það aðili að alþjóðasam-
bandi félaga um sama efni. (World
Association for Medical Law). Sam-
kvæmt lögum félagsins er tilgangur
þess einkum að afla upplýsinga og
miðla þekkingu á heilbrigðislöggjöf;
eiga frumkvæði að og taka þátt í gerð
tillagna að lagasetningu á sviði heil-
brigðismála; gefa umsagnir og stuðla
að könnunum og rannsóknum um
málefni er tengjast áhugasviði
félagsins og hafa samstarf við hlið-
stæð félög erlendis.
í fyrstu stjórn félagsins voru kosin:
Valgeir Pálsson, hdl., formaður,
Örn Bjarnason, læknir, varaformað-
ur, Páll Þórðarson, hdl., gjaldkeri,
Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur, rit-
ari, Inga Þórsdóttir, hjúkrunar- og
næringarfræðingur, Elín Hafsteins-
dóttir, hjúkrunarfræðingur og
Haukur Þórðarson, læknir.
í félagið getur gengið hver sá, sem
lokið hefur embættisprófi í lögfræði
eða lokið hefur prófi í einhverri
grein heilbrigðisfræða og fepgið
löggildingu heilbrigðisráðherra til
starfa. Ennfremur er stjórninni
heimilt að veita öðrum aðild að
félaginu, ef þeir stunda rannsóknir
eða störf á áhugasviði félagsins eða
hafa sýnt sérstakan áhuga á heil-
brigðismálum.
Þeir sem æskja inngöngu í félagið
eru vinsamlegast beðnir að snúa sér
til Páls Þórðarsonar, gjaldkera, á
skrifstofu læknafélaganna í Domus
Medica við Egiisgötu (sími 91-
18331). Árgjald er kr. 500,-.
34 HJÚKRUN Vn - 68. árgangur