Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1992, Page 42
» FRÉTTIR «
Flokkar Fjöldi kc
Umsóknir 10
Skrároglistar 13
Fundargerðir 11
Sérmál - raðað eftir efni 78
Ljósmyndir 3
Prófogeinkunnir 13
Teikningar 1
Samtals fyllti skjalasafnið 129
öskjur eftir að það hafði verið grisjað
og hreinsað. Af þessum skjalaflokk-
um eru sérmálin lang umfangsmest,
78 öskjur. Undir þau flokkast öll
bréfaskipti, skýrslur af ýmsu tagi og í
raun öll skjöl sem ekki falla undir
aðra málaflokka. Tvítök af ljós-
myndum voru afhent Hjúkrunar-
félagi íslands. f>ar eru nú varðveitt
eintök af öllum brautskráningar-
myndum hjúkrunarkvenna og -fræð-
inga. Safnið er heilsteypt og fjöl-
breytt. Auk þess sem rekja má feril
hvers nemanda, er unnt að lesa sögu
hverrar námsgreinar og sjá hvernig
nám í fagskóla þróaðist til háskóla-
náms. Möguleikar til rannsókna eru
því í raun aðeins takmarkaðir við
ímyndunarafl fræðimannsins.
Safninu fylgir skjalaskrá þar sem
leita má eftir málaflokkum. Ef leita á
að tilteknum hlutum í safninu er
aðgengilegast að fletta í nafna- og
atriðaorðaskrá sem er aftast í skjala-
skránni.
Nemendur skólans höfðu með sér
félag, Hjúkrunarnemafélag íslands.
Flest skjöl frá félaginu (5 öskjur)
fylgdu skjalasafni skólans. Nokkur
hluti þeirra mun hafa farið til Hjúkr-
unarfélags íslands. Skrá yfir skjöl
Hjúkrunarnemafélagsins fylgir
skjalaskrá skólans.
Hjúkrunarskólinn átti dágott
bókasafn, bæði fagbækur og skáldrit
sem nemendur höfðu aðgang að.
Flest skáldritin voru gefin til hjúkr-
unarheimilsins Sunnuhlíðar í Kópa-
vogi, samtals 475 bækur. Fagbók-
unum hefur verið komið fyrir í
geymslu í kjallara Eirbergs og verða
því í vörslu Námsbrautar í hjúkr-
unarfræði innan skamms. Þær Sig-
þrúður Ingimundardóttir, Stefanía
Sigurjónsdóttir og Lilja Óskarsdóttir
sáu um að raða þeim upp. Nokkur
hluti fjölrita hefur verið tekinn inn í
skjalasafnið, þ.e. námsskrár, hjúkr-
unarhandbækur og fleira, sem var
beint á vegum skólans, og er óvíst að
það fyrirfinnist annars staðar.
Upplýsingar um próf hjúkrunar-
fræðinga úr Hjúkrunarskóla íslands
hjá Námsbraut í hjúkrunarfrœði
Ákveðið var að skrifstofa Náms-
brautar í hjúkrunarfræði veitti
hjúkrunarfræðingum frá Hjúkrunar-
skóla íslands upplýsingar um próf og
námsárangur. Því eru afrit af próf-
skírteinum (PHSÍ3) varðveitt á
skrifstofu Námsbrautar í hjúkrunar-
fræði. Skjalasafn Hjúkrunarskóla
íslands er varðveitt hjá Námsbraut í
hjúkrunarfræði. Þeirsem hafaáhuga
á að skoða gögnin geta haft samband
við skrifstofu eða bókasafn Náms-
brautar í hjúkrunarfræði. Skjala-
skrána er einnig að finna hjá Skjala-
safni Háskóla íslands, Þjóðskjala-
safni íslands og Háskólabókasafni.
Þeir sem vilja leita frekari frum-
heimilda um hjúkrunarmenntun á
íslandi er bent á að skoða skjalasafn
Landlæknisembættisins, skjalasafn
Menntamálaráðuneytisins í Þjóð-
skjalasafni íslands og skjalasafn
Hjúkrunarfélags íslands sem Krist-
jana Kristinsdóttir hefur nýlega
skráð.
Hinn 28. nóvember 1991
Magnús Guðmundsson
Skjalasafni Háskóla íslands
★
Fréttatilkynning frá
Námsbraut
í hjúkrunarfræði
Hjúkrunarfræðingum býðst nú í
annað sinn viðbótarnám til klín-
ískrar sérhæfingar við Námsbraut í
hjúkrunarfræði við Háskóla íslands.
Sl. haust hófst viðbótarnám í bráða-
hjúkrun sem enn stendur yfir. Næsta
haust er fyrirhugað að í boði verði
viðbótarnám í hjúkrun sjúklinga
með geðræn vandamál - geðhjúkr-
un. Eydís Sveinbjarnardóttir, lektor
í geðhjúkrun, sér um skipulagningu
námsins.
Fyrirhugað er að námið taki 9
mánuði, frá byrjun sept. 1992 til loka
maí 1993. Bóklegt nám er 5 mánuðir
og verklegt nám eða starfsþjálfun 4
mánuðir. Nánari lýsing á heildar-
skipulagi námsins og innihaldi þess
mun birtast í kennsluskrá háskólans
fyrir árið 1992-1993.
Námið miðar að því að hjúkrun-
arfræðingar öðlist þekkingu, færni
og viðhorf, sem nauðsynleg eru til að
veita fagmannlega og árangursríka
geðhjúkrun, á geðdeildum, öðrum
sjúkradeildum og á heilsugæslu-
stöðvum. Hjúkrunarfræðingar í
Hjúkrunarfélagi íslands eru hvattir
til að kynna sér drögin að þessu við-
bótarnámi í geðhjúkrun hjá Eydísi
Sveinbjarnardóttur. Hún er með
viðtalstíma á þriðjudögum kl. 12-13 í
síma 694975. Eydís hvetur alla þá
félagsmenn sem áhuga hafa á viðbót-
arnámi í geðhjúkrun að hafa sam-
band við sig á áðurnefndum viðtals-
tíma.
★
Opið hús
Stjórn HFÍ hefur ákveðið að
standa fyrir opnu húsi í húsa-
kynnum félagsins að Suður-
landsbraut 22, mánaðarlega.
Hugmyndin er að félögum gef-
ist kostur á að ræða málefni er
snerta hjúkrunarfræðinga félags-
lega og faglega eða eru efst á
baugi hverju sinni.
Aðilar úr stjórn félagsins
munu mæta á fundina. Ákveðið
er að þessir fundir verði haldnir
fyrsta þriðjudag í hverjum mán-
uði frá kl. 16-18.
Hjúkrunarfræðingar eru
hvattir til að mæta, notfæra sér
möguleika til skoðanaskipta og
koma málefnum sínum á fram-
færi.
Stjórn HFÍ
38 HJÚKRUN V92 - 68. árgangur