Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1992, Síða 50
UPPLYSINGAR
TIL
GREINAHÖFUNDA
Tímaritiö HJÚKRUN, tímarit
Hjúkrunarfélgas (slands, birtir
greinar um hjúkrunarfræði, rann-
sóknir eöa efni sem á erindi til
hjúkrunarfræðinga á einn eöa
annan hátt, t.d. fræðsluefni og
greinar um félags- og hagsmuna-
mál hjúkrunarfræðinga. Tímaritið
er jafnframt vettvangur skoðana-
skipta.
Ritstjórn tímaritsins áskilur sér
rétt til að taka grein til birtingar eða
hafna henni og jafnframt leita
umsagnar tveggja aðila sem rit-
nefnd velur til verksins hverju
sinni. Umsögn þessara aðila fylgir
ákvörðun um birtingu eða synjun.
Ritstjórn áskilur sér rétt til að
setja greinar upp og aðlaga að
formi blaðsins.
Handrit: Höfundar eru vinsam-
lega beðnir að skila handritum vél-
rituðum til ritstjórnar Hjúkrunar,
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykja-
vík.
Handrit skulu vélrituð með tvö-
földu línubili og góðri spássíu.
Handrit eiga að vera á góðri ís-
lensku. Leitast skal við að íslenska
erlend orð og heiti. Ef um sjaldgæf
orð eða nýyrði er að ræða skal rita
enska þýðingu innan sviga fyrir
aftan. Skammstafanir skulu út-
skýrðar í fyrsta skipti sem þær
koma fyrir í texta. Greinar skulu að
jafnaði ekki vera lengri en 12-14
vélritaðar síður. Á fyrstu síðu
handrits skal vera: a) Titill greinar.
Titill skal vera stuttur og lýsa
vel innihaldi greinar. b) Nöfn grein-
arhöfunda og nýleg Ijósmynd.
c) Starfsheiti, vinnustaður og
símanúmer greinarhöfundar.
Myndefni: Númera skal myndir,
gröf, teikningar og Ijósmyndir með
tölustöfum. Öllum myndum skulu
fylgja textar sem eru skráðir á
sérstakt blað og númeraðir eftir
því sem við á. Forðast ber að
endurtaka í texta upplýsingar sem
koma fram í töflum. Töflur skal
númera með tölustöfum og hver
tafla skal prentuð á sérstakt blað.
Koma skal fram hvar höfundur
óskar að myndefni sé staðsett í
texta.
Heimildalisti: Við gerð heim-
ildalista skal fara eftir APA-
stöðlum (Publication Manual ofthe
American Psychological Associa-
tion, 3rd ed., 1983). Bókin liggur
frammi á skrifstofu HFÍ, víða á
bókasöfnum og fæst t.d. hjá Bók-
sölu stúdenta í Reykjavík. Heim-
ildalista skal skila á sérstökum
blöðum og skulu heimildir aö jafn-
aði ekki vera fleiri en 20.
Sé um rannsókn að ræða, skal
koma fram útdráttur, tilgangur,
nákvæm lýsing efnis, aðferða-
fræði og niðurstöður.
Greinarhöfundar geta fengið
senda próförk til leiðréttingar af
uppsettum greinum og frá-
gengnum til birtingar sé þess
óskað.
Greinarhöfundar geta fengið
sendar nánari leiðbeiningar sé
þess óskað.
Ritstjórn HFÍ
46 HJÚKRUN '/92 - 68. árgangur