Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 47
Mynd 3
Menntun hjúkrunarfræðinga
60,0%
50,0%
40,0%
30,0%
20,0%
10,0%
0,0%
Hjúkrunarsk. BS-gráða frá Sérskipulagt Meistaragráða
íslands HÍ eða HA nám í hjúkrun
Aldursbreytan er fimmskipt: 1) 29 ára og yngri; 2) 30-39
ára; 3) 40-49 ára; 4) 50-59 ára; 5) sextug og eldri.
Starfsaldursbreytan er fjórskipt: 1) 5 ár og skemur; 6-15
ár; 16-25 ár; 25 ár og lengur. Breytan starfsaldur á
vinnustað er fjórskipt: 1) 3 ár eða skemur; 2) 3-5 ár; 3) 5-
10 ár; 4) 10 ár og lengur. Námi er skipt í þrjá flokka: 1)
hefur lokið prófi frá Hjúkrunarskóla (slands; 2) hefur lokið
B.S. gráðu í hjúkrun; 3) hefur lokið framhaldsmenntun í
hjúkrun, Ijósmóðurnámi, meistaranámi eða doktorsnámi.
Starfshlutfalli er skipt í 4 flokka: 1) fullt starf við hjúkrun, 2)
80-90% starf, 3) 60-75% starf og 4) 50% eða minna.
Stofnanabreytunni er skipt í 4 flokka: 1) sjúkrahús; 2)
heilsugæslustöð; 3) hjúkrunar- og dvalarheimili; 4) einka-
fyrirtæki eða einkastofnun, félags- eða hagsmunasamtök
og opinberar stofnanir sem ekki eru sjúkrastofnanir.
Stöðubreytunni er skipt í 4 flokka: 1) almennir hjúkr-
unarfræðingar; 2) aðstoðarhjúkrunardeildarstjórar; 3)
hjúkrunardeildarstjórar; 4) aðrir stjórnendur, en í þeim flokki
eru hjúkrunarframkvæmdastjórar, hjúkrunarforstjórar,
verkefnisstjórar og fræðslustjórar. í spurningalistanum var
spurt um fjölmargar aðrar bakgrunnsbreytur en nefndar
eru hér að ofan, s.s. hjúskaparstöðu, fjölda og aldur
barna, hjúkrunarsvið, vaktavinnu og heilsuhegðun. Niður-
stöður verða greindar eftir þessum bakgrunnsbreytum
þegar búast má við að orsakasamhengi sé á milli þeirra og
niðurstaðnanna.
Þegar niðurstöður eru ekki reiknaðar sem meðaltöl eru
þær birtar sem hlutfallstölur í töflum (tíðnitöflur) sem sýna
hve mörg prósent í hverjum hópi bakgrunnsbreyta
svöruðu á ákveðinn hátt. í tíðnitöflunum er notaður kí-
kvaðratpróf (Chi-square) til að meta hvort munur milli
bakgrunnsbreytuflokka var tölfræðilega marktækur. Þegar
niðurstöður eru reiknaðar sem meðaltöl er stuðst við dreifi-
greiningu (ANOVA) til að meta tölfræðilega marktækni. í
þeim tilfellum, þegar tveir hópar eru bornir saman, eru
notuð t-próf.
Lýðfræði þátttakenda
Eins og lýst er hér að framan endurspeglaði aldursdreifing
þátttakenda á raunsannan hátt aldursdreifingu allra
starfandi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Tafla 1 sýnir ýmsar
lýðfræðilegar breytur rannsóknarinnar. Þar kemur fram að
flestir þátttakenda voru á aldrinum 40-49 ára (38,8%), stór
meirihluti var giftur eða í sambúð (78,6%), rúmlega
helmingur (59,4%) átti tvö eða þrjú börn (að meðaltali áttu
þeir 2,17 (SD=1,25) börn) og álíka margir eru með B.S.
próf í hjúkrun og með próf frá hjúkrunarskóla (42,5% á
móti 46,1%). Þátttakendur voru spurðir að því hvort þeir
væru eina fyrirvinna fjölskyldunnar og svöruðu 47 (21,5%)
þeirra því játandi.
Tafla 1. Lýðfræði þátttakenda
Fjöldi Hlutfall (%)
Aldur
29 ára og yngri 20 9,1
30-39 ára 59 26,9
40-49 ára 85 38,8
50-59 ára 42 19,2
sextug og eldri 11 5,0
Vantar svar 2 0,9
Kyn
Kona 214 98,9
Karl 3 1,4
Vantar svar 2 0,9
Hjúskaparstaða
Gift / kvæntur 137 62,6
Ógift / ókvæntur 20 9,1
Sambúð 35 16,0
Fráskilin/n 19 8,7
Ekkja /ekkill 5 2,3
Vantar svar 3 1,4
Fjöldi barna 20 ára og yngri
Ekkert barn 25 11,4
1 barn yngra en 20 ára 50 22,8
2 börn yngri en 20 ára 70 33,2
3 börn yngri en 20 ára 22 10,0
4 börn yngri en 20 ára 7 3,2
Eingöngu uppkomin börn 38 17,6
Vantar svar 7 1,8
Síðasta prófgráða í hjúkrun Frá Hjúkrunarskóla eða
Ljósmæðraskóla íslands 101 46,1
B. S. gráða í hjúkrun 93 42,5
Framhaldsnám á háskólastigi (meistaranám, doktorsnám,
Ijósmóðurfræði) 9 4,1
Þrófgráða óþekkt 14 6,4
Vantar svar 2 0,9
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000
287