Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.05.2017, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 06.05.2017, Qupperneq 44
Þráinn Freyr Vigfússon, fyrrverandi yfirmatreiðslu-maður í Bláa lóninu og Kola- brautinni, hélt nýlega til Marokkó og Máritaníu í norðvesturhluta Afríku með það að markmiði að kynnast matar- og vínmenningu landanna. Upphaflega var ferðinni bara heitið til Marokkó en betri ferðahelmingur hans, Katrín Sif Einarsdóttir, vildi einnig heim- sækja nágrannalandið Máritaníu. „Katrín Sif ferðast mikið og hefur það markmið að heimsækja 200 lönd fyrir þrítugt. Það er reyndar álitamál hversu mörg lönd eru til, það fer allt eftir því hvernig er talið. Hún hafði a.m.k. ekki komið til Máritaníu þannig að við ákváðum að nýta ferðina og skella okkur til höfuðborgar landsins, Nouakchott.“ Þráinn segir matargerð þess- ara tveggja landa einkennast af kryddum og góðum brauðum. „Kryddin tala alveg fyrir sig og skila sér í mjög bragðgóðum mat. Mat- reiðslan á þessu svæði er mjög holl og heimamenn nota lítið af smjöri og rjóma en þeim mun meira af ólívuolíu, grænmeti og jógúrt.“ Ferðin hófst í Marrakesh í Mar- okkó þau sem þau upplifðu frá- bæra stemningu á útimörkuðum borgarinnar. Næsti viðkomustaður var Nouakchott í Máritaníu sem Þráni fannst mjög spennandi upp- lifun. „Við stoppuðum stutt þar en náðum að kynnast fiskmarkað- inum, höfninni og ströndinni þar sem fiskibátar lágu eins langt og augað eygði og heimamenn stund- uðu mjög frumstæðar aðferðir við veiðar.“ Kefta stóð upp úr Næst var flogið til Casablanca í Marokkó en þaðan héldu þau til borganna og bæjanna Meknes, Fez, Rabat og Meknes. „Það var mjög gaman að skoða sveitir og minni bæi og kynnast t.d. tagine, kefta, beghrir og mörgu fleiru á leiðinni. Ég smakkaði t.d. ótrúlega góðan kefta-rétt í Maknes og man enn bragðið og hvað lambahakkið var vel kryddað og hæfilega fitumikið. Kefta samanstendur yfirleitt af hökkuðu kjöti, kryddi og lauk og er algengur réttur víða um heim, t.d. á þessum slóðum.“ Í það heila var Marokkó mikil matarupplifun og var mjög gaman að ferðast um sveitir og borgir landsins til að kynnast matarhefðum landsmanna. Máritanía var einnig mjög spenn- andi land að sækja heim með flottum mat en um leið mjög lokað land og því erfitt kynnast hefðum með sama hætti og í Marokkó.“ Næst á dagskrá hjá Þráni Frey er að opna veitingastaðinn Sumac Grill + Drinks á Laugavegi 28 síðar í þessum mánuði. „Vonandi opnum við á afmælisdaginn minn, 24. maí en sjáum til hvort það tekst. Þar er ég akkúrat að fá inn- blástur frá Marokkó og Líbanon. Allt kryddið verður þar, geðveiku grilluðu flatbrauðin, hummusinn og margt fleira sem gerir þessa matreiðslu spennandi og heilsu- samlega. Svo ætlum við að hafa á boðstólum vín og kokteila með kryddi frá þessum löndum.“ Star Wars ævin- týragarðurinn í Flórída verður glæsilegur og afar spennandi. Ég smakkaði t.d. ótrúlega góðan kefta-rétt í Maknes og man enn bragðið og hvað lambahakkið var vel kryddað og hæfilega fitumikið. Þráinn Freyr Vigfússon Elín Albertsdóttir elin@365.is Starri Freyr Jónsson starri@365.is Þessir nýju Disney-garðar verða opnaðir eftir tvö ár en þar getur fólk lifað sig inn í kvikmyndaheim Star Wars. Risahótelbygging verður reist í garðinum í Orlando í Flórída. Fyrir- mynd hótelsins verður Millennium Falcon geimskipið. Gestir á hótel- inu eiga að finna fyrir fígúrunum úr myndunum allt í kringum sig. Þá verða ýmsar leynilegar uppákomur fyrir gesti á hótelinu og í garðinum. Meðal annars eiga þeir sem dvelja þarna í tvo daga von á ýmsum spennandi og óvæntum atriðum. Á veitingastað hótelsins fá gestir mat og drykk með vélmennum. Frá gluggum hótelsins verður hægt að virða fyrir sér Star Wars heim. Það verður sannkallað Star Wars þema á þessu skemmtilega hóteli sem ætti að gleðja alla aðdáendur, stóra sem smáa. Star Wars myndir hafa verið teknar upp á átján spennandi stöðum í heiminum, þar á meðal á Íslandi, Írlandi og í Abu Dhabi. Ekki er vafi á því að fjölgun ferða- manna til Íslands er ekki síst að þakka þeim kvikmyndum sem teknar hafa verið hér á landi á undanförnum árum. Star Wars hótelið verður mikil paradís. Glæsileg sundlaug í garðinum, vatnagarður og líkams- ræktarstöð. Hægt verður að hlýða á lifandi tónlist daglega í garðinum. Ekki er ólíklegt að sú tónlist tengist bíómyndunum. Herbergin verða skemmtilega útbúin í misjöfnum stærðum með glæsilegu útsýni yfir Star Wars garðinn. Það verður ekkert sérstaklega ódýrt að búa í þessari paradís. Talið er að tvær nætur með öllu inniföldu kosti um 95 þúsund krónur. Innifalinn er aðgangur að Disney World í Orlando. Þangað til þessi paradís verður að veruleika í Flórída geta aðdá- endur átt þann kost að dvelja á Sidi Driss hótelinu í Túnis sem aðdáendur munu kannast við sem æskuheimili Luke Skywalker, Tattooine. Fullt af skemmtilegum hlutum frá upptökum á mynd- unum eru þar enn til staðar, jafnt inni í hótelinu og fyrir utan það. Þess má geta að í fyrradag, 4. maí, var alþjóðlegur Star Wars dagur sem margir fagna árlega. Fyrsta Star Wars myndin var sýnd árið 1977. Aðalpersónur myndarinnar Star Wars hótel rís í Flórída Milljónir aðdáenda Star Wars myndanna um allan heim geta glaðst þar sem nú stendur til að opna skemmtigarða og hótel tengd myndunum. eru Luke Skywalker sem leikinn er af Mark Hammill, Han Solo sem leikinn er af Harrison Ford, Leia prinsessa, leikin af Carrie Fisher og Svarthöfði, leikinn af David Prowse. Besta kefta-rétt- inn sem Þráinn Freyr hefur smakkað fékk hann í Meknes. Bakari í Volu- bilis keyrir út brauðin sín. Mikil matarupplifun í Afríku Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumaður hélt nýlega í ævintýraferð til Marokkó og Máritaníu í norðvesturhluta Afríku. Markmið ferðarinnar var að kynnast matar- og vínmenningu landanna. Bragðgóð krydd og góð brauð einkenna meðal annars matarmenningu beggja landa. 4 KYNNINGARBLAÐ 6 . M A Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 0 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 1 3 6 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C C F -C 6 C 0 1 C C F -C 5 8 4 1 C C F -C 4 4 8 1 C C F -C 3 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 3 6 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.