Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Page 22

Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Page 22
22 Sjálfstæöis-uppk væði liéldu embætti og live liá laun peim væri lögð og hvort pcir fengju pau greidd. Hann heíir stofnað urmul nýrra emhætta og sent hingað hópa embættlinga til að hrjá þjóð vora og éta út æfni hennar. Hann lieflr á friðartímum lialdið hér her manns í landi án sampykkis löggjafarþings vors. Hann hefir viljað gjöra hervaldið óháð og yflrhoðið borgaralegu valdi. Hann hefir verið samtaka öðrum í því, að kúga oss undir löggjafarvald, sem þekkist ekki í stjórnarskrá vorri og er óhelgað af lögum vorum, með því að liann hefir staðfest svokölluð lög, er þeir hafa þózt semja oss: Til að skipa til dvalar hjá oss stórfjölda vopnaðs liðs; Til að verja hermenn þessa hegningu með málamynd- ar-réttarfari fyrir liver þau morðvíg, er þeir ynnu á íbú- um ríkja þessara; Til að slíta verzlun vorri við öll lönd í heimi; Til að leggja skatt á oss án vors samþykkis; Til að svifta oss í mörgum tilfellum hagræði kvið- dóma; Til að stefna oss utan um haf til rannsóknar fyrir yfirsjónir, er vér vorum kallaðir drýgt hafa; Til að af nema ið frjálsa fyrirkomulag enskra laga í grannlandi voru og setja þar á laggir gjörræðis-stjórn, og færa svo út landamæri grannlands þessa, svo að það yi;ði 1 einu hæði fyrirmynd og hentugt verkfæri, til að inn- leiða sömu einræðis-stjórn í þessar nýlendur; Til að svifta oss réttinda-skrám vorum, nema úr gildi vor dýrmætustu lög, og breyta frá rótum valdsviði stjórna vorra;

x

Stjórnmálatímarit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjórnmálatímarit
https://timarit.is/publication/1254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.