Stjórnmálatímarit

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Qupperneq 23

Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Qupperneq 23
Bamlaríkjanna 23. Til að slíta lögþingum vorum, en lýsa sig og þá valdbæra til að semja oss iög í öllum tilfellum. Hann lieíir afsalað sér stjórnvöldum hér með því að lýsa oss undan vernd sinni og hefja hernað gegn oss. Hann heíir rænt sem víkingr í liöfum vorum, lierjað strendr vorar, hrent borgir vorar og týnt lífi landa vorra. Hann er nú sem stendr að flytja hingað stórar her- sveitir útlendra leigu-sveina, til að fullkoma það dauða, eyðingar og harðstjórnar verk, sem þegar er liafið, og það með þeirri grimdar og ódrengskapar aðferð, sem vart munu dæmi til flnnast á inum siðlausustu öldum og 'sern með öllu er ósamboðin yfirdrotni mentaðrar þjóðar. Hann liefir knúið landa vora, þá er hann hefir lier- tekið á hafi úti, til að bera vopn gegn ættjörðu sinni, til að verða bana-böðlar vina sinna og bræðra, eða að falla sjálfir að öðrum kosti fyrir þeirra liöndum. Hann hefir vakið uppreist innanlands ineðal vor, og hefir reynt að æsa gegn þeim af oss, er við landamærin búa, ina miskunnarlausu indversku villimenn, sem al- kunnugt er að fylgja þeirri reglu í liernaði, að gjöra eng- an mun á börnum né fullorðnum, konum né körlum, en drepa alt niðr, liversu sem á stendr. Við sérlivert stig þessara kúgunarverka höfum vér beiðzt umbóta með mjúklátlegasta orðalagi; en hvert sinn sem vér liöfum beðið á ný, hefir oss að eins svarað verið með nýjum illræðisverkum. Konungr sá, er þannig hefir lýst skaplyndi sínu með sérhverju því atferli, er einkent getr harðstjóra, er óhæfr til að vera stjórnandi frjálsrar þjóðar. J>á heíir það eigi heldr skort, að vér höfum sýnt vorum brezku bræðrum alla kurteislega nærgætni. Vér

x

Stjórnmálatímarit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjórnmálatímarit
https://timarit.is/publication/1254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.