Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Page 29

Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Page 29
29. Stjórnarstaða íslands. stjórnfræðinámsmðnnum í Danmörku er inurætt að ríkis- ping Dana og konungr hafi gagnvart pjóð vorri og sjálf- stæði hennar. Hins vegar verðum vér að fulltreysta pví, að aldrei ynni stjórnin og fulltrúaping bræðra-þjóðar vorrar, Dana, á oss nokkurt það verk, er þeir sjálfir eins og hver heilbrigð skynsemi yrðu að játa, að væri hreint og beint níðings- verk. Með öðrum orðum: vér verðum að fulltreysta því, að ef fullskýr lagafyrirmæli, sem eigi yrði hártoguð með neinu sannleiks yfirskyni, væru fyrir því, að engin bregt- ing yrði gjör á neinu, er snerti stöðu íslands í ríkinu að lögum, án samþylckisins sjálfstæða fulltrúa-löggjafarþings vors, þá mundi örugt um það, að vér ættum enga vald- boðna breyting á hættu í þessu efni. En til þessa þurfum vér að fá ný stöðulög í stað inna núverandi, og þau þurfa: 1. að vera svo til komin, að þau sé samþykt bæði af alþingi Islands og ríkisþingi Danmerkr og staðfest af konungi; 2. að innilialda skýlausa ákvörðun um, að þeim verði í engu breytt, nema með löglegu samþykki allra þriggja hlutaðeiganda: alþingis, ríkisþings og konungs. J>að væri þar að auki hyggilegt, að kveða svo á, að sam- þykki íslands væri þá fyrst gilt, er breytingarnar hefðu sætt sömu meðferð eða áþekkri, sem nú er fyrirskipuð um breyting stjórnarskrár vorrar, hvernig sem menn kynnu nú að vilja orða þau ákvæði í sjálfum lögunum. |>ar með væri girt fyrir, að eitt þing léti gjörræðislega ginnast til að samþykkja skaðvænlegar hreytingar á þessum mikil- væga grundvelli sjálfstæðis þjóðar vorrar. Með þessu væri þá eitt skifti fyrir öll viðrkendr réttr vor sem sjálfstæðs og samningsbærs málsaðila um grund-

x

Stjórnmálatímarit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjórnmálatímarit
https://timarit.is/publication/1254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.